Vinna hafin við að bregðast við ábendingum um aðgengi fatlaðra kjósenda

Yfir­kjör­stjórn í Reykja­vík suður telur að aðbún­aður kjós­enda með fötlun hafi í hví­vetna verið í sam­ræmi við lög, en ekki haf­inn yfir gagn­rýni. Yfir­kjör­stjórnin telur þó að fötl­uðum hafi ekki verið kerf­is­bundið mis­munað, eins og einn kjós­andi sagði í kæru.

Yfir­kjör­stjórn í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi Suður telur að fyr­ir­komu­lag kjör­klefa fyrir fatl­aða ein­stak­linga í alþing­is­kosn­ing­unum í sept­em­ber hafi í hví­vetna stað­ist þær kröfur sem gerðar eru í lögum, en sé þó ekki hafið yfir gagn­rýni. Vinna er þegar hafin til að bregð­ast við ábend­ingum sem fram komu um aðbúnað fyrir fatl­aða á kjör­stöðum.

Þetta kemur fram í svar­bréfi yfir­kjör­stjórn­ar­innar við kosn­inga­kæru frá Rúnari Birni Herrera Þor­kels­syni, sem kærði fram­kvæmd kosn­ing­anna á þeim grund­velli að hann hefði ekki talið sig geta kosið leyni­lega, en ekki var hægt að draga tjald fyrir kjör­klefa sem útbúnir voru fyrir ein­stak­linga með fötlun.[links]

Rúnar Björn greiddi atkvæði á Borg­ar­bóka­safn­inu í Kringl­unni á kjör­dag og lýsti aðstæðum svo, í kæru sinni:

„Á bóka­safn­inu höfðu kjör­klefar verið reistir úr léttum bráða­birgða veggj­um. Þeir voru stað­settir í miðju rým­is­ins og mynd­uðu þannig nokk­urs konar eyju sem virð­ist hafa verið hægt að ganga í kring­um. Kjör­klef­inn fyrir fatlað fólk var á hlið­inni á þess­ari eyju og mynd­að­ist þannig þröngur gangur aftan við klef­ann.

Sá kjör­klefi sem ætl­aður var fólki sem notar hjóla­stól var hins vegar ekki með tjaldi svo kær­andi gat ekki dregið fyrir þegar hann kaus. Á sama tíma og hann greiddi atkvæði gekk ókunn mann­eskja fram hjá kjör­klef­anum og hefur við­kom­andi sem kær­andi kann engin deili á aug­ljós­lega getað séð hvernig kær­andi kaus. Þess ber að geta að gang­ur­inn sem við­kom­andi mann­eskja gekk á var svo þröngur að umræddur ein­stak­lingur hefur verið í um það bil eins til tveggja metra fjar­lægð frá kær­anda þegar hann merkti við kjör­seð­il­inn. Engar hindr­anir virð­ast hafa verið settar upp á þennan gang til að minnka líkur á því að slík umferð ætti sér stað á meðan fólk kaus.“

Fram kom í kærunni að Rúnar hefði upp­lifað tals­verð óþæg­indi í tengslum fyr­ir­komu­lag­ið. Meðal ann­ars á grund­velli þess að á meðan hann kaus hafi hann séð þá kjós­endur sem stóðu í bið­röð við kjör­deild­ina. Hann upp­lifði fyrir vikið alls ekki að hann væri að taka þátt í leyni­legum kosn­ing­um.

Tjöld gætu flækst í hjólastólum

Í svar­bréfi yfir­kjör­stjórnar segir að í kosn­inga­lögum sé kveðið á um að kjör­klefar skuli þannig útbúnir að þar megi greiða atkvæði án þess að aðrir geti séð hvernig kjós­andi kýs.

[adspot]

„Laga­á­kvæðið mæli ekki fyrir um að tjald skuli vera fyrir kjör­klefa og mál­efna­legar ástæður voru fyrir því að not­ast ekki við slíkt tjald í kjör­klefa sem ætl­aður er ein­stak­lingum sem þurfa á hjóla­stól að halda til að kom­ast leiðar sinnar,“ segir í svar­bréf­inu, en þar er einnig rakið að klefar fyrir kjós­endur hafi alls staðar verið með sama hætti, snúið 90° á hina kjör­klef­ana og verið opnir.

Þetta hafi verið gert til að hægt væri að keyra hjóla­stól inn í klef­ana án þess að tjald væri fyrir, sem gæti flækst í stólum, og án þess að borðið í kjör­klef­anum væri í sjón­línu út fyrir kjör­klef­ann.

„Borðin í þessum kjör­klefum eru á ská í horni klef­ans en ekki gegnt inn­gangi eins og í öðrum klefum.í hjóla­stól af stærri gerð er mögu­leiki að kjós­andi sé þannig stað­settur við atkvæða­greiðsl­una að hann sjái út úr kjör­klef­anum en þó án þess að aðrir sjái inn og án þess að atkvæða­greiðslan sé sýni­leg,“ segir í bréfi yfir­kjör­stjórnar.

Ekki kerfisbundin mismunun né tilefni til ógildingar kosninga

Þar kemur einnig fram að yfir­kjör­stjórn telji sig ekki hafa for­sendur til að taka afstöðu til full­yrð­ingar kær­anda um að ónefndur ein­stak­lingur hafi gengið fram hjá kjör­klef­anum né hvort það sé rétt að sá ein­stak­lingur hafi getað séð hvernig kær­andi kaus.

„Yfir­kjör­stjórn telur hins vegar ekki að með fyr­ir­komu­lagi kjör­klefa hafi fötl­uðum ein­stak­lingum á Íslandi verið kerf­is­bundið mis­munað sem þjóð­fé­lags­hópi eins og það er orðað í kæru né að fyr­ir­komu­lagið gefi til­efni til þess að ógilda í heild sinni nið­ur­stöður Alþing­is­kosn­ing­anna þann 25. sept­em­ber sl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár