Tæplega 90 ný smit og átján á sjúkrahúsi

Í gær greindust 87 manns til við­bótar með kór­ónu­veiruna hér á landi. 795 manns eru í ein­angrun vegna COVID-19 og yfir 4.000 í sótt­kví. Yfir 2.650 sýni voru tekin á land­inu í gær.

Tæplega sjö hund­ruð manns af þeim tæp­lega 800 sem eru í ein­angrun vegna COVID-19 búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hertar aðgerðir tóku gildi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag þar sem lang­flest smitin eru að grein­ast. Í fyrra­dag, svo dæmi sé tekið, voru 94 smit af 99 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í gær greindust 87 ný smit á land­inu öllu og áfram er stór hluti þeirra hjá fólki sem búsett er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 41 sem greind­ist með COVID-19 í gær var ekki í sótt­kví við grein­ingu.

Fjórtán daga nýgengi á hverja 100 þús­und íbúa er 181,6. Samtals hafa 3.172 ein­stak­lingar greinst með COVID-19 hér á landi frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Meira en 4.000 manns eru nú í sótt­kví. Í gær voru tekin 2.650 sýni.

[links]Lang­flestir þeirra sem eru nú með COVID-19 eru á aldr­inum 18-29 ára eða 231 ein­stak­lingur. Næst­flestir eru í ald­urs­hópnum 30-39 ára. Í yngstu ald­urs­hóp­unum, frá því innan við eins árs og upp í tólf ára eru 44 nú í ein­angrun vegna sjúk­dóms­ins og 34 yfir sjö­tugt.

Far­ald­ur­inn er nú að mörgu leyti á svip­uðum slóðum og hann var í enda mars í vetur. Þá voru um 750 manns í ein­angrun vegna COVID-19 og smit­fjöldi í kringum 100 dag­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár