Faraldurinn gæti orðið „illviðráðanlegur“ innan nokkurra daga

Hár­greiðslu­stofum og sund­laugum verður lokað. Veit­inga­hús mega hafa opið til kl. 21 og gæta þarf að loft­gæðum á vinnu­stöðum til að forð­ast úða­smit í loftið. Hertar aðgerðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu taka gildi á morgun.

Velkomnir aftur í tveggja metra regluna, íbúar höfuðborgarsvæðis.
Vel­komnir aftur í tveggja metra regl­una, íbúar höf­uð­borg­ar­svæðis. Mynd: EPA

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur fall­ist á til­lögur sótt­varna­læknis um hertar sam­komu­tak­mark­anir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og taka þær gildi á morgun, mið­viku­dag­inn 7. októ­ber. Með höf­uð­borg­ar­svæð­inu er átt við Reykja­vík, Sel­tjarn­ar­nesbæ, Mos­fellsbæ, Kjós­ar­hrepp, Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­stað, Garðabæ og Kópavog.

Tæpir tveir sól­ar­hringar eru síðan aðgerðir voru síð­ast hertar en þá á lands­vísu. „Útbreiðslan á COVID-19 hefur farið vax­andi und­an­farna daga en í gær greind­ist mest fjöldi ein­stak­linga á einum degi frá því 24. mars sl. eða 99 ein­stak­lingar,“ skrifar Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í minn­is­blaði sínu til ráð­herra. „Níutíu og fjórir þeirra eru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og því ljóst að far­ald­ur­inn er enn sem komið er aðal­lega bund­inn við höf­uð­borg­ar­svæðið.“

[adspot]

Þórólfur segir að sá mikli fjöldi sem greind­ist í gær veki ótta um að far­ald­ur­inn sé að fara í veld­is­vöxt sem gæti leitt til þess að hann yrði „ill­við­ráð­an­legur innan nokk­urra daga/vikna“.

Slíkur vöxtur myndi leiða til mik­ils álags á heil­brigð­is­þjón­ust­una með alvar­legum afleið­ingum fyrir bæði COVID-sýkta ein­stak­linga og aðra sjúk­linga. Í dag eru 15 ein­stak­lingar inniliggj­andi á Land­spít­al­anum vegna COVID-19 og þar af eru fjórir á gjör­gæslu­deild og þrír á önd­un­ar­vél. Auk þess er COVID-göngu­deildin með fjölda sýktra ein­stak­linga í eft­ir­liti sem lík­legt er að muni leggj­ast inn á næstu dögum.

„Ég tel því nauð­syn­legt að ráð­ast sem fyrst í hert­ari aðgerðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, umfram þær aðgerðir sem tóku gildi í gær,“ skrifar Þórólfur.

[links]Í minn­is­blað­inu leggur hann svo til að almenn­ingur verði hvattur til að halda sig sem mest heima og ein­stak­lingar verði hvattir til að ferð­ast ekki að nauð­synja­lausu frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu út á lands­byggð­ina og öfugt. Þá verði fólk hvatt til að vinna heima eins og kostur er. Þar sem ekki er hægt að bjóða fjar­vinnu eða tryggja tveggja metra nánd­ar­tak­mörk fyrir starfs­menn er skylt að and­lits­grímur verði not­aðar. Þá þarf einnig að tryggja góð loft­gæði og stilla hávaða í hóf „því ef fólk þarf að tala hátt getur það leitt til munn­vatns­úða­meng­unar í and­rúms­lofti þar sem loft­ræst­ing er ekki full­nægj­andi“.

Hertar takmarkanir fela í sér eftirfarandi:

Nálægð­ar­mörk 2 metrar: Nálægð­ar­mörk verða 2 metrar. Það á einnig við í öllum skólum, að und­an­skildum börnum fæddum 2005 og síðar.

Þjónusta sem krefst snert­ingar eða mik­illar nándar: Starf­semi og þjón­usta sem krefst snert­ingar eða ef hætta er á snert­ingu milli fólks eða mik­illar nálægðar er óheimil. Þetta á við svo sem um hár­greiðslu­stofur, snyrti­stofur, nudd­stofur, húð­flúr­un­ar­stofur og aðra sam­bæri­lega starf­semi. Fram­an­greint á þó ekki við um starf­semi heil­brigð­is­starfs­fólks við veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu en í þeim til­vikum er skylt að nota and­lits­grímur.

Versl­anir: Við­skipta­vinum versl­ana verður skylt að bera and­lits­grímur ef ekki er hægt að tryggja a.m.k. 2 metra á milli ein­stak­linga sem ekki eru í nánum tengslum.

Sund- og bað­staðir: Sund- og bað­stöðum verður lokað.

Íþróttir og lík­ams­rækt inn­an­dyra óheimil: Lík­ams­rækt, íþrótta­starf og sam­bæri­leg starf­semi sem krefst snert­ingar eða hætta er á snert­ingu á milli fólks eða mik­illi nálægð, eða þar sem notkun á sam­eig­in­legum bún­aði getur haft smit­hættu í för með sér er óheimil inn­an­dyra.

Íþróttir utandyra: Íþróttir utandyra eru heim­ilar en áhorf­endur á íþrótta­við­burðum utandyra skulu ekki vera fleiri en 20 í hverju rými. Áhorf­endur skulu bera grímu og sitja í merktum sætum.

Sviðs­listir: Á við­burðum svo sem í leik­húsum, kvik­mynda­húsum, á tón­leikum o.þ.h. mega gestir ekki vera fleiri en 20 að hámarki. Gestir skulu allir bera grímu og sitja í merktum sætum.

Veit­inga­staðir: Þeir veit­inga­staðir sem mega hafa opið (krár og skemmti­staðir skulu vera lok­aðir) mega ekki hafa opið lengur en til kl. 21.00.

Börn fædd 2005 og síðar:

Skóla­sund: Þrátt fyrir lokun sund­staða er heim­ilt að halda úti skóla­sundi fyrir börn fædd 2005 og síðar.

Íþrótta- og æsku­lýðs­starf­semi og tóm­stundir barna sem eru fædd 2005 og síðar er heimil.

Keppn­is­við­burðir: Keppn­is­við­burðir barna sem fædd eru 2005 og síðar þar sem hætta er á blöndun hópa umfram hefð­bundnar æfingar eru óheim­ilir.

Nálægðar- og fjölda­mörk: Líkt og áður gilda nálægðar- og fjölda­mörk ekki um börn fædd 2005 og síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár