Íþróttafélög fá launakostnað starfsmanna sem ekki mega vinna greiddan úr ríkissjóði

Ráðgert er að um hálfur millj­arður króna renni til íþrótta­fé­lag­anna í land­inu vegna launa­greiðslna til þjálf­ara og leik­manna á þeim tíma­bilum þar sem íþrótta­starf liggur niðri vegna sótt­varna­ráð­staf­anna. Greiðslur munu einnig ná til verk­taka.

Íþróttamannvirki í Laugardalnum. Ríkissjóður mun bæta félögum hluta launakostnaðar á tímabilum þar sem bannað hefur verið að stunda íþróttir vegna sóttvarnaráðstafana.
Íþrótta­mann­virki í Laug­ar­dalnum. Rík­is­sjóður mun bæta félögum hluta launa­kostn­aðar á tíma­bilum þar sem bannað hefur verið að stunda íþróttir vegna sótt­varna­ráð­staf­ana. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íþrótta­fé­lögin í land­inu munu fá sér­stakan fjár­stuðn­ing til að standa straum af launa­greiðslum bæði verk­taka og hefð­bund­inna launa­manna sem ekki geta stundað störf sín vegna opin­berra sótt­varna­ráð­staf­ana, sam­kvæmt breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta vel­ferð­ar­nefndar við frum­varp félags- og barna­mála­ráð­herra um greiðslur til íþrótta­fé­laga vegna launa­kostn­aðar á tímum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Aðal­breyt­ingin frá upp­runa­legu frum­varpi er sú að íþrótta­fé­lögin í land­inu fái fé úr rík­is­sjóði til að greiða allt 70 pró­sent af reikn­ingum hvers verk­taka sem starfar fyrir félagið, til dæmis við þjálfun eða keppni í íþróttum, á því tíma­bili sem starf­semi íþrótta­fé­laga liggur niðri vegna opin­berra sótt­varna­ráð­staf­ana, frá 1. októ­ber 2020 til 30. júní 2021.

Í upp­haf­legu frum­varpi ráð­herra var ekki gert ráð fyrir því að félög fengju greiðslur fyrir launa­kostnað starfs­manna sem vinna í verk­töku, heldur ein­ungis hefð­bundna launa­menn.

Í starfi vel­ferð­ar­nefndar kom hins vegar fram að í um 20-30 pró­sent til­fella væru þjálf­arar og aðrir sem sinna íþrótta­starfi hluta­starfs­menn sem fái verk­taka­greiðslur. Þótti nefnd­inni mik­il­vægt að frum­varpið næði til allra starfs­manna íþrótta­fé­laga.

Meiri­hluti nefnd­ar­innar áréttar sér­stak­lega í nefnd­ar­á­liti sínu að þessu frum­varpi er ekki ætlað að ná til þeirra launa­manna íþrótta­fé­laga sem starfað hafa í ótíma­bundnum störfum, sem reglu­gerðir heil­brigð­is­ráð­herra sem tak­mörk­uðu íþrótta­starf höfðu ekki áhrif á, svo sem skrif­stofu­fólks.

Gert ráð fyrir 470 milljóna kostnaði

Í upp­haf­legu mati á áhrifum frum­varps­ins var gert ráð fyrir að greiðslur til íþrótta­fé­laga vegna launa­kostn­aðar myndu nema um 500 millj­ónum króna vegna tíma­bils­ins 1. októ­ber 2020 til 30. júní 2021. Í því mati var gengið út frá þvi að íþrótta­starf myndi ekki þurfa að sæta eins miklum tak­mörk­unum eftir ára­mót og það hefur gert í haust.

Í breyt­inga­til­lögum meiri­hluta fjár­laga­nefndar við fjár­lög árs­ins 2021 var gert ráð fyrir 470 milljón króna útgjöldum „til stuðn­ings íþrótta­fé­lögum vegna rekstr­ar­út­gjalda á því tíma­bili sem sam­komu­tak­mark­anir koma í veg fyrir eðli­lega starf­semi félag­anna.“

Allt skipu­lagt íþrótta­starf lá niðri um hríð eftir að hertar sótt­varna­ráð­staf­anir yfir­valda tóku gildi, einnig hjá börnum. Síðan hefur börnum 15 ára og yngri verið leyft að æfa á ný, en þeir sem eldri eru sátu eftir í þeim til­slök­unum sem kynntar voru í síð­ustu viku.

Nú er staðan sú að ein­ungis íþróttalið sem keppa í efstu deildum hafa heim­ild til þess að æfa, auk þess sem afrek­s­í­þrótta­fólk í ein­stak­lings­í­þróttum má stunda sitt sport. Öll íþrótta­keppni full­orð­inna í land­inu er enn óheimil.

Vill sjá ríkið taka meira undir með félögunum

Í breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta nefnd­ar­innar kemur fram að lagt sé að ríkið greiði 70 pró­sent af launum verk­taka til þess að ekki gæti mis­ræmis milli þeirrar upp­hæðar sem ríkið greiði íþrótta­fé­lagi fyrir launa­mann í starfi og fyrir verk­taka í starfi.

Þar sem launa­greið­anda sé skylt að greiða launa­tengd gjöld launa­manns, eins og iðgjöld líf­eyr­is­sjóðs, trygg­inga­gjald og sjúkra­sjóð, á meðan að verk­taki greiðir slík gjöld sjálfur, þótti meiri­hlut­anum rétt að miða við 70 pró­sent greiðslur til launa­manna.

Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar vill ganga lengra í greiðslum til íþrótta­fé­lag­anna. Hún leggur til í eigin breyt­ing­ar­til­lögu að ríkið taki á sig greiðslur bæði launa og launa­tengdra gjalda launa­manna og að 90 pró­sent af greiðslum íþrótta­fé­laga til verk­taka á meðan íþrótta­starf er bannað komi úr rík­is­sjóði.

Sumir foreldrar hugsi

Kjarninn hefur að und­an­förnu fengið nokkrar ábend­ingar frá for­eldrum barna sem eru í skipu­lögðu íþrótta­starfi þess efnis að íþrótta­fé­lög sem hafa ekki getað boðið upp á æfingar sem búið var að greiða fyrir í haust hygg­ist ekki end­ur­greiða æfinga­gjöld, þrátt fyrir að sú þjón­usta sem greitt hafi verið fyrir hafi ekki verið veitt.

Blaða­maður beindi fyr­ir­spurn til mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins 18. nóv­em­ber sl. og spurði hvort ein­hverrar stefnu­mörk­unar væri að vænta um hvernig skyldi fara með slík mál, en svör hafa ekki borist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár