Þóra Kristín býður sig fram til formennsku í SÁÁ

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­mennsku í SÁÁ. Hún segir að þegar upp koma erfið mál innan sam­tak­anna eða á sjúkra­stofn­unum þeirra verði alltaf að taka stöðu með þolendum ofbeldis.

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Kára Stef­áns­sonar for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­mennsku í SÁÁ eftir áskorun frá fjöl­mörgum innan sam­tak­anna.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu Þóru Krist­ínar í dag.

„Það geri ég í trausti þess að ég fái stuðn­ing til að hrinda í fram­kvæmd tíma­bærum breyt­ingum á starf­sem­inni sem ekki er hægt að skor­ast undan lengur í ljósi síð­ustu atburða. Okkar sam­eig­in­legu hags­munir, bæði þeirra sem hafa glímt við fíkni­vanda og/eða eiga ást­vini í þeim sporum, og sam­fé­lags­ins alls, eru að við gerum allt sem við getum til að að styðja veika alkó­hólista til betra lífs, með með­ferð, end­ur­hæf­ingu, sál­rænum stuðn­ingi og eft­ir­fylgd,“ skrifar hún.

Alltaf verði að taka stöðu með þolendum

Einar Her­manns­son hætti sem sem for­maður SÁÁ í síð­ustu viku. Ástæðan sem hann gaf var að hann hefði svarað aug­lýs­ingu fyrir nokkrum árum þar sem „í boði var kyn­líf gegn greiðslu“. Stundin birti í fram­hald­inu skjá­skot sem sýna hann semja um vændis­kaup og þakka fyrir þau eftir á.

Þóra Kristín segir í færslu sinni á Facebook að SÁÁ sé sam­an­safn ólíkra ein­stak­linga með mjög fjöl­breyttan far­angur mann­legra breysk­leika. Samtökin vilji taka utan um alla, hjálpa öllum. Það megi aldrei breyt­ast.

„Þegar það koma upp erfið mál innan sam­tak­anna eða á sjúkra­stofn­unum þeirra verðum við alltaf að taka stöðu með þolendum ofbeldis. Þetta getur verið flókið en það þýðir ekki að það megi gefa afslátt af öryggi fólks eða mann­legri reisn. Þetta er flókið við­fangs­efni vegna þess að við erum öll saman í þessu, karlar, konur og ung­menni, bæði ger­endur og þolendur ofbeld­is­brota. Eitruð karl­mennska og harka er fylgi­fiskur harðrar neyslu og þótt fólk komi úr alls­konar aðstæðum höfum við flest verið föst inni í víta­hring og útsett fyrir margs­konar ofbeldi og sár­indum. Konur hafa oft veik­ari félags­lega stöðu og minni lík­ams­burði til að verja sig.

En það er til mik­ils að vinna. Ofneysla áfengis, lyfja og ann­arra vímu­efna er algeng­asta dán­ar­or­sök ungs fólks í dag. Bakvið slys, afbrot, ofbeldi, ótíma­bæra örorku, geð­sjúk­dóma, og hræði­leg barna­vernd­ar­mál, felur þessi sjúk­dómur sig oft í bak­grunn­inum sem orsök eða með­virk­andi þáttur,“ skrifar hún.

Vill setja saman sannleiksnefnd

Þóra Kristín segir enn fremur að brýnt sé að setja saman sann­leiks­nefnd til að taka á ofbeldis- og áreitn­is­málum innan vébanda sam­tak­anna í for­tíð og fram­tíð. Nýkjörin stjórn þurfi að setja sér siða­reglur til að tryggja að það hafi sjálf­krafa í för með sér brott­vísun úr öllum trún­að­ar­stöðum ef fólk innan sam­tak­anna verði upp­víst að því að brjóta á veiku fólki eða mis­nota aðstöðu sína.

„SÁÁ eru gras­rót­ar­sam­tök ólíkra ein­stak­linga sem hafa borið uppi með­ferð alkó­hólista og vímu­efna­sjúk­linga ára­tugum saman. Karlar og konur, fólk úr öllum stéttum sam­fé­lags­ins, hafa tekið höndum saman í bar­átt­unni og sú sam­kennd ásamt vel­vild þjóð­ar­innar er dýr­mætasta eign sam­tak­anna.

Samtökin hafa haft ótrú­legan með­byr í sam­fé­lag­inu vegna þess ótví­ræða árang­urs sem hefur náðst. Þar hafa margir ein­stak­lingar lyft grettistaki og ég ber ómælda virð­ingu fyrir þeim öllum. Ég bið um ykkar stuðn­ing til að leiða umbóta­starfið framundan,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár