Birta skilaboð fráfarandi formanns SÁÁ þar sem hann semur um kaup á vændi

Einar Her­manns­son sagði af sér sem for­maður SÁÁ í gær. Hann sagði ástæð­una þá að hann hefði svarað aug­lýs­ingu um vændis­kaup. Skjáskot sem Stundin birtir sýna hann vera að semja um vændis­kaup og þakka fyrir þau eftir á.

Einar Hermannsson sagði af sér sem formaður SÁÁ í gær.
Einar Her­manns­son sagði af sér sem for­maður SÁÁ í gær. Mynd: RÚV/Skjáskot

Einar Her­manns­son, sem sagði af sér for­mennsku í SÁÁ í gær keypti vændi af konu sem glímdi við fíkn á árunum 2016 til 2018. Frá þessu er greint í umfjöllun Stund­ar­innar um málið en þar eru birt skjá­skot af sam­skiptum þeirra í Messen­ger-for­rit­inu.

Á þeim tíma sem Einar keypti vændi af kon­unni sat hann í stjórn SÁÁ, en hún er sjálf á meðal skjól­stæð­inga sam­tak­anna sem hafa hjálpað henni að ná bata við fíkn sinni. Einar var for­maður SÁÁ frá miðju ári 2020 og þangað til að hann sagði af sér í gær.

Í sam­skipt­unum sem Stundin birtir kemur skýrt fram að Einar fal­ast eftir því að hitta kon­una, þar er til­greint að það muni kosta 30 þús­und krónur og til­greint klukkan hvað þau ætli að hitt­ast. Eftir að um semst sendi Einar kon­unni skila­boð og sagð­ist „hlakka til“. Í öðrum skila­boðum seg­ist Einar vera á leið­inni til kon­unnar, að það séu tíu mín­útur í sig. Einum og hálfum tíma síðar sendir hann önnur skila­boð og segir: „Takk fyrir mig. Gaman að kynn­ast þér. Er að fíla þig mjög vel.“

Kaup á vændi eru ólög­leg á Íslandi en sök fyrn­ist á tveimur árum.

[adspot]Einar sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem hann greindi frá afsögn sinni. Þar sagði hann ástæð­una vera þá að hann svar­aði fyrir nokkrum árum aug­lýs­ingu á net­inu „þar sem í boði var kyn­líf gegn greiðslu.“ Einar gengst ekki við því að hafa keypt vændi í yfir­lýs­ing­unni en að hegðun hans hafi verið „ófyr­ir­gef­an­leg en ég taldi mér rang­lega trú um að þau sam­skipti væru grafin og gleymd og þau hafa ekki haft áhrif á störf mín fyrir SÁÁ. Ljóst er hins vegar að umræða um þetta mál er ein­ungis til þess fallin að varpa rýrð á SÁÁ ef ég sit þar áfram sem for­mað­ur.“

Hann sagð­ist iðr­ast að hafa farið þessa leið og um leið valdið fjöl­skyldu sinni sárs­auka með hegðun sinni. „Bið ég alla þá sem málið varðar afsök­unar á fram­ferði mín­u.“

Einar sagð­ist enn fremur ekki ætla að tjá sig frekar um málið.

Vitneskja hjá Embætti landlækni og í stjórn SÁÁ

Skömmu eftir að yfir­lýs­ing Ein­ars var send birti Stundin umfjöllun um málið þar sem greint var frá því að mið­ill­inn hefði unnið að rann­sókn á vændis­kaupum Ein­ars á árunum 2016-2018. Í umfjöll­un­inni sagði meðal ann­ars: „Stundin hefur rætt við kon­una sem nú er á bata­vegi eftir langvar­andi fíkni­efna­neyslu. Hún seg­ist hafa leiðst út í vændi til að fjár­magna eit­ur­lyfja­neyslu sína. Á því tíma­bili hafi Einar keypt af henni kyn­lífs­þjón­ustu. Eftir að hún náði bata ætl­aði hún að leita réttar síns og ræddi við sér­fræð­inga en þegar á hólm­inn var komið varð hún hrædd og kærði ekki. Nú er málið fyrnt.“

Í umfjöllun Stund­ar­innar sagði að Emb­ætti land­læknis hafi verið upp­lýst um málið árið 2020 og að minnsta kosti einn stjórn­ar­maður í fram­kvæmda­stjórn SÁÁ hafi sama ár vitað að því að Einar hefði keypt vændi af veikum fíkni­efna­neyt­anda.

Frekari umfjöllun um málið var svo birt í morgun, meðal ann­ars með skjá­skotum af sam­skiptum kon­unnar við Einar.

Fá 1,2 millj­arð króna á fjár­lögum

SÁÁ, sam­tök áhuga­­fólks um áfeng­is- og vímu­efna­vand­ann, eru félaga­­sam­tök sem sjá þeim sem eiga við áfeng­is- eða vímu­efna­­vanda, og aðstand­endum þeirra, fyrir sjúkra­­með­­­ferð og end­­ur­hæf­ingu. Auk þess vinna sam­tökin að for­vörn­­um. Um er að ræða umfangs­­mesta með­­­ferð­­ar­úr­ræði sem er til staðar vegna áfeng­is- og vímu­efna­­vanda hér­­­lend­­is.

Hið opin­bera fjár­­­magnar meira en tvo þriðju hluta af starf­­sem­inni að jafn­­aði en það sem út af stendur er fjár­­­magnað af sam­tök­unum sjálf­um, meðal ann­­ars með árlegri álfasölu. Sam­tökin fengu 1.203 millj­­ónir króna á fjár­­lögum í fyrra og fjár­­heim­ild til þeirra eru 1.211 millj­­ónir króna á ári út árið 2024 sam­­kvæmt síð­­­ustu sam­­þykktu fjár­­lög­­um.

Sú stofnun sem greiðir út þær fjár­­hæðir er Sjúkra­­trygg­ingar Íslands, á grund­velli þjón­ust­u­­samn­inga sem hið opin­bera hefur gert við SÁÁ.

Krafa um end­ur­greiðslu á 174,5 millj­ónum

Gustað hefur um SÁÁ und­an­farið en harð­vít­ugar deilur hafa geisað um hvort félaga­sam­tök­unum hafi verið heim­ilt að fá greiðslur úr rík­is­sjóði fyrir þjón­ustu á tímum kór­ón­veiru­far­ald­urs sem var með öðru sniði en áður.

­[links]Sjúkra­trygg­ingar Íslands telja enga slíka heim­ild vera í gerðum samn­ingum og hafa krafið sam­tökin um end­ur­greiðslu á 174,5 millj­ónum króna.

Auk þess hefur málið verið sent til hér­aðs­sak­sókn­ara vegna grun­semda um lög­brot. SÁÁ hefur hafnað öllum ásök­unum og for­svars­menn sam­tak­anna sagst slegnir yfir stöð­unni sem upp er kom­in. Í yfir­lýs­ingu fram­kvæmda­stjórnar sam­tak­anna, sem send var út í síð­ustu viku, sagði meðal ann­ars: „„Fram­­kvæmda­­stjórn SÁÁ harmar þann far­­veg sem málið er komið í. Af hálfu SÁÁ hefur verið reynt að skýra hvernig verk­lagi var hátt­að, en í bréfi Ara Matt­h­í­a­s­­son­­ar, deild­­ar­­stjóra eft­ir­lits­­deildar SÍ, sem dag­­sett er 29. des­em­ber 2021 og birt er á visir.is, er ekki tekið til­­lit til þeirra skýr­inga.“

Í Stund­inni í dag kemur fram að sú umfjöllun hafi gert það að verkum að konan sem Einar keypti vændi af hafi ákveðið að hafa sam­band við mið­il­inn. Það geri hún vegna þess að „hún fengi ógleði í hvert sinn sem hún sæi hann í fréttum og gréti innra með sér vegna þess að hann gegndi svo ábyrgða­miklu starfi fyrir sam­tök sem henni þyki mjög vænt um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár