Stríðið um SÁÁ og það sem samtökin mega rukka ríkissjóð fyrir

Harð­vít­ugar deilur eru um hvort SÁÁ hafi verið heim­ilt að fá greiðslur úr rík­is­sjóði fyrir þjón­ustu á tímum kór­ón­veiru­far­ald­urs sem var með öðru sniði en áður.

Þann 21. júní í fyrra fór fram aðal­fundur SÁÁ. Á honum greindi Einar Her­manns­son, for­maður sam­tak­anna, frá því að þeim hefði borist bréf frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands rúmum tveimur vikum áður, nánar til­tekið 4. júní, þar sem þau voru krafin á end­ur­greiðslu á 134 millj­ónum króna.

Ástæðan: nýleg eft­ir­lits­deild Sjúkra­trygg­inga hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að SÁÁ hefði rukkað fyrir þjón­ustu sem var ekki í sam­ræmi við samn­inga.

Um nokkra aðskilda fleti var að ræða. Í fyrsta lagi hafði SÁÁ rukkað Sjúkra­trygg­ingar um rúm­lega 36 millj­ónir króna vegna svo­kall­aðra fjar­við­tala, sem Sjúkra­trygg­ingar segja að engin samn­ingur sé til um að SÁÁ eigi að veita. Í öðru lagi hafi göngu­deildir SÁÁ verið lok­aðar frá 5. októ­ber 2020 og út það ár, en Sjúkra­trygg­ingar samt greitt fasta­gjald upp á næstum 30 millj­ónir króna.

Í þriðja lagi sé í gildi samn­ingur milli aðila um að SÁÁ eigi að taka við að minnsta kosti 205 inn­lögðum sjúk­lingum sem eru yngri en 20 ára á ári, og var rukkað í sam­ræmi við það. Á árinu 2020 hafi inn­lagnir þeirra sem voru undir þeim aldri hins vegar verið brota­brot af þeirri upp­hæð, eða 68. Sjúkra­trygg­ingar end­ur­kröfðu SÁÁ um tæp­lega 68 millj­ónir króna vegna þessa.

Endurkrafan hækkuð og málinu vísað til héraðssaksóknara

Einar fór í við­tal við RÚV eftir aðal­fund­inn, sagði að sér væri brugðið og hafn­aði þeim kröfum sem settar höfðu verið fram. „Ég ber fullt traust til Maríu Heim­is­dóttur for­stjóra SÍ og Sjúkra­trygg­inga Íslands og þegar þetta verður skoðað aðeins betur þá býst ég við að þetta verði fellt niður.“

Nú, hálfu ári síðar, hafa Sjúkra­trygg­ingar farið yfir athuga­semdir SÁÁ við úttekt­ina, hafnað þeim öllum og hækkað end­ur­kröfu sína á sam­tökin vegna meintra til­hæfu­lausra reikn­inga, van­efnda á þjón­ustu og þjón­ustu­magni upp í 174,5 millj­ónir króna. Ástæða hækk­un­ar­innar er sú að end­ur­krafa vegna ung­linga­deildar SÁÁ var hækkuð um 40,5 millj­ónir króna þar sem legu­dagar sem rukkað var fyrir sam­kvæmt samn­ingi voru 2050 en í raun var fjöldi legu­daga sjúk­linga undir 20 ára aldri 144.

Þess utan er búið að senda málið til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara vegna þess að það er grunur um að lög­brot hafi átt sér stað, til Per­sónu­verndar og emb­ættis Land­læknis vegna með­ferðar á sjúkra­skrám.

Fá 1,2 milljarða króna á fjárlögum

SÁÁ, sam­tök áhuga­fólks um áfengis- og vímu­efna­vand­ann, eru félaga­sam­tök sem sjá þeim sem eiga við áfengis- eða vímu­efna­vanda, og aðstand­endum þeirra, fyrir sjúkra­með­ferð og end­ur­hæf­ingu. Auk þess vinna sam­tökin að for­vörnum. Um er að ræða umfangs­mesta með­ferð­ar­úr­ræði sem er til staðar vegna áfengis- og vímu­efna­vanda hér­lendis.

Hið opin­bera fjár­magnar meira en tvo þriðju hluta af starf­sem­inni að jafn­aði en það sem út af stendur er fjár­magnað af sam­tök­unum sjálfum, meðal ann­ars með árlegri álfasölu. Samtökin fengu 1.203 millj­ónir króna á fjár­lögum í fyrra og fjár­heim­ild til þeirra eru 1.211 millj­ónir króna á ári út árið 2024 sam­kvæmt síð­ustu sam­þykktu fjár­lögum. Sú stofnun sem greiðir út þær fjár­hæðir er Sjúkra­trygg­ingar Íslands, á grund­velli þjón­ustu­samn­inga sem hið opin­bera hefur gert við SÁÁ.

Sér­stök eft­ir­lits­deild var sett á fót innan Sjúkra­trygg­inga fyrir ári síðan. Deild­ar­stjóri hennar er Ari Matth­í­as­son, sem er einnig fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri SÁÁ og sat um tíma í stjórn sam­tak­anna en hætti trún­að­ar­störfum fyrir sam­tökin 2016.

Kjarninn greindi frá því fyrr í þessum mán­uði að eft­ir­lits­deildin hafi þegar skilað af sér úttekt á Heilsu­stofn­un­inni í Hvera­gerði vegna máls sem hafði verið lengi til skoð­unar innan Sjúkra­trygg­inga. Nið­ur­staðan þar var að 600 millj­ónir króna hefðu verið teknar með ólög­mætum hætti út úr Heilsu­stofn­un­inni en Sjúkra­trygg­ingar gerðu ekki end­ur­kröfu um þá fjár­hæð þar sem eft­ir­lits­deildin telur að sjúk­lingar hafi verið látnir borga hana úr eigin vasa, ekki rík­is­sjóður.

Segja engan samning í gildi um fjarþjónustuviðtöl

SÁÁ-málið er af öðrum toga. Sjúkra­trygg­ingar ákváðu snemma árs í fyrra að hefja athugun á starf­semi á göngu­deildum og ráð­stöfun fjár­muna sem veitt voru til SÁÁ úr rík­is­sjóði. Vegna þessa var kallað eftir gögnum.

Í samn­ingi milli Sjúkra­trygg­inga og SÁÁ um áfengis- og vímu­efna­með­ferð á göngu­deildum, frá 27. mars 2019, segir um ráð­gjafa­við­tal að miðað sé við að ráð­gjafa­við­tal standi yfir í 60 mín­útur og að jafn­aði sé eitt við­tal tekið í hverri með­ferð­ar­lotu.

Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á hafði það marg­háttuð áhrif á starf­semi SÁÁ. Meðal var breytt­ist hluti stað­þjón­ustu í fjar­heil­brigð­is­þjón­ustu. Það þýðir á manna­máli að í stað þess að ráð­gjafa­við­töl ættu sér stað í eigin per­sónu áttu þau sér stað sem fjar­þjón­ustu­við­töl. Sjúkra­trygg­ingar líta hins vegar svo á að eng­inn samn­ingur sé í gildi um veit­ingu fjar­þjón­ustu­við­tala og vegna þess sé engin heim­ild til staðar til að greiða fjár­muni úr rík­is­sjóði vegna þeirra.

„Yfirgnæfandi hluti þeirra voru stutt símtöl“

Þá kemur skýrt fram í þeim bréfum sem gengið hafa á milli aðila máls, og Kjarninn hefur fengið afhend, að starfs­fólk Sjúkra­trygg­inga hafi grunað að gæði þeirrar þjón­ustu sem veitt hafi verið með þessum hætti hafi ekki verið í sam­ræmi við það sem um hafi verið samið.

Í bréfi sem Sjúkra­trygg­ingar sendu stjórn­ar­for­manni SÁÁ, og er dag­sett 29. des­em­ber 2021, segir að til þess að „sann­reyna til­urð ráð­gjafa­við­tala þeirra sem sögð voru vera fjar­við­töl var tekið 10 manna úrtak úr hópi þeirra sem flest við­töl höfðu fengið 2020 og annað 10 manna úrtak úr hópi þeirra sem fengu eitt ráð­gjafa­við­tal og áttu engin önnur sam­skipti við SÁÁ tvo mán­uði fyrir við­tal og tvo mán­uði eftir við­tal. Heil­brigð­is­starfs­maður í eft­ir­lits­deild SÍ hringdi í við­kom­andi ein­stak­linga 2. og 3. júní. Þau svör sem bár­ust gefa til kynna að hér hafi sann­ar­lega fyrst og fremst verið um að ræða stutt, óum­beðin sím­töl sem ekki voru tíma­sett fyrir fram. Þá könn­uð­ust sumir af þeim sem hringt var í og sagðir voru hafa fengið mik­inn fjölda við­tala ekki við það magn og í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum greiddu sjúk­lingar fyrir þjón­ust­una.“

Að mati Sjúkra­trygg­inga sé það „upp­lýst að 3.801 við­tal var skv. yfir­liti SÁÁ fjar­við­tal og yfir­gnæf­andi hluti þeirra voru stutt sím­töl. SÁÁ gat ekki lagt fram stað­fest­ingu á því að við­tölin hafi farið fram. Sam­skipta­bún­aður sem not­aður var upp­fyllti ekki skil­yrði EL [emb­ættis Land­læknis] um veit­ingu fjar­þjón­ustu og ekki er vitað hvort þessi raf­rænu sam­skipti og fjar­lækn­ingar hafi ávallt verið að beiðni sjúk­lings.“

Á grund­velli þessa ætla Sjúkra­trygg­ingar að krefj­ast end­ur­greiðslu fyrir þessi 3.801 við­töl sem stofn­unin telur SÁÁ hafa rukkað fyrir án heim­ildar, upp á alls 36 millj­ónir króna.

Telja að rukkað hafi verið fyrir þjónustu sem hafi ekki verið veitt

Sjúkra­trygg­ingar líta svo á, eftir að hafa kallað eftir gögnum og svörum, að stað­þjón­usta sem veita átti á tíma­bil­inu 5. októ­ber 2020 og út des­em­ber sama ár hafi ekki verið veitt þrátt fyrir að rukkað hafi verið fyrir hana. SÁÁ hafn­aði því og sagði að ein­ungis hafi verið dregið úr þjón­ustu. Sjúkra­trygg­ingar hafna þessu og telja lokun á stað­þjón­ustu á tíma­bil­inu hafa verið til­hæfu­lausa. Því fer stofn­unin fram á end­ur­greiðslu á föstu mán­að­ar­gjaldi sem greitt var fyrir þessa þrjá mán­uði upp á tæp­lega 30 millj­ónir króna.

Fjár­veit­ing úr rík­is­sjóði vegna rekst­urs ung­linga­deildar SÁÁ var 146 millj­ónir króna á árinu 2020. Sjúkra­trygg­ingar telja að sú þjón­usta sem samið hafi verið um hafi verið fyrir þá sem eru undir 20 ára aldri en SÁÁ hefur hins vegar skil­greint ung­menna­með­ferð sína fyrir 25 ára og yngri.

á sjúkrahúsinu Vogi fá sjúklingar sem eru í meðferð hjá SÁÁ afeitrun og greiningu.
á sjúkra­hús­inu Vogi fá sjúk­lingar sem eru í með­ferð hjá SÁÁ afeitrun og grein­ingu.

Líkt og áður var rakið átti lág­marks­fjöldi legu­daga að vera 2050 sam­kvæmt gild­andi samn­ingi en fjöldi þeirra hjá þeim sem voru undir 20 ára var hins vegar 144. Þar skeikar 1.906 legu­dögum en fjár­veit­ing fyrir hvern legu­dag var 71.200 krónur. Því er gerð end­ur­krafa upp á 108,5 millj­ónir króna vegna þessa.

Samtals er end­ur­krafa Sjúkra­trygg­inga á hendur SÁÁ vegna til­hæfu­lausra reikn­inga og van­efnda á þjón­ustu og þjón­ustu­magni því alls 174,5 millj­ónir króna.

„Gildishlaðnar ásakanir sem ekki sæma stjórnvaldi“

Kjarninn, og fleiri fjöl­miðlar, fóru fram á að fá upp­lýs­ingar um stöðu úttektar Sjúkra­trygg­inga á SÁÁ í byrjun þessa árs. Fyr­ir­spurn Kjarnans var send 10. jan­úar. Degi síðar barst svar um að það væri mat per­sónu­vernd­ar­full­trúa Sjúkra­trygg­inga að afhenda ætti umrædd gögn á grund­velli upp­lýs­inga­laga. Þar var þó einnig upp­lýst að degi áður hefði SÁÁ verið beðið um afstöðu um hvort sam­tökin teldu að upp­lýs­ingar eft­ir­lits­máls­ins ættu að fara leynt. SÁÁ var gef­inn frestur til 17. jan­úar að svara því erindi.

Þann 13. jan­úar, fjórum dögum áður en frest­ur­inn rann út, sendi SÁÁ til­kynn­ingu á fjöl­miðla, þar sem afstöðu eft­ir­lits­deild­ar­innar vegna reikn­ings­gerðar á tímum kór­ónu­veiru­far­ald­urs var hafnað og sagt að hún hefði ekki tekið til­lit til heims­far­ald­urs. Í til­kynn­ing­unni, sem Einar Her­manns­son, for­maður SÁA, og Val­gerður Rún­ars­dóttir, for­stjóri Sjúkra­húss­ins Vogs, skrifa undir segir að „í bréfi deild­ar­stjóra eft­ir­lits­deildar SÍ eru rang­færslur, gild­is­hlaðnar ásak­anir sem ekki sæma stjórn­valdi og rang­túlkun á gild­andi samn­ingum, og gerir SÁÁ alvar­legar athuga­semdir við vinnu­brögð og sam­skipti vegna þessa máls.“

Æðstu stjórnendur komu að málinu vegna alvarleika þess

Í gær­morgun, eftir að fjöl­miðlar fengu afhent gögn um eft­ir­lits­málið frá Sjúkra­trygg­ingum, sendi fram­kvæmda­stjórn SÁÁ svo yfir­lýs­ingu vegna máls­ins á fjöl­miðla þar sem hún sagð­ist slegin yfir þeirri stöðu sem upp væri komin. „Fram­kvæmda­stjórn SÁÁ harmar þann far­veg sem málið er komið í. Af hálfu SÁÁ hefur verið reynt að skýra hvernig verk­lagi var háttað, en í bréfi Ara Matth­í­as­sonar, deild­ar­stjóra eft­ir­lits­deildar SÍ, sem dag­sett er 29. des­em­ber 2021 og birt er á visir.is, er ekki tekið til­lit til þeirra skýr­inga.“

Enn ein yfir­lýs­ingin barst síð­degis í gær, nú frá starfs­fólki SÁÁ. Þar sagði að þeir mót­mæli „harka­lega þeim ásök­unum sem nú ber­ast frá SÍ varð­andi þjón­ustu sem áfengis-og vímu­efna­ráð­gjafar inntu af hendi á tíma­bilum þar sem ítr­ustu sótt­varna var kraf­ist af yfir­völdum vegna heims­far­ald­urs. [...] Er með þeirri máls­með­ferð SÍ gróf­lega vegið að starfs­heiðri, trú­verð­ug­leika og trausti starfs­manna og starf­semi SÁÁ.“

Í svari Sjúkra­trygg­inga Íslands við beiðni Kjarnans um gögn máls­ins, sem barst á mánu­dag, segir að þess hafi sér­stak­lega verið gætt að vinna málið vel í ljósi umfangs þess og alvar­leika að fjöl­margt starfs­fólk Sjúkra­trygg­inga hafi komið að því á ólíkum stigum, þar á meðal æðstu stjórn­endur stofn­un­ar­innar auk eft­ir­lits­deild­ar­innar. Rík­is­end­ur­skoðun var auk þess eft­ir­lits­deild Sjúkra­trygg­inga til ráð­gjafar meðan málið var til skoð­unar hjá deild­inni. „Eins og áður hefur komið fram hafa við­eig­andi eft­ir­lits­stofn­anir verið upp­lýstar um málið. Það er í þeirra höndum að taka ákvörðun um hvort þær telji til­efni til hefja sjálf­stæða skoðun á þeim þáttum máls­ins sem að þeim kann að snúa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár