Ég hef sóst eftir því að fá virðingu en ekki endilega athygli

Hafsteinn Þórólfsson er bæði söngvari og tónskáld. Hann ræðir starfs­umhverfi sitt við Thelmu Hrönn Sigurdórs­dóttur. Viðtalið er afleiða af rannsókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í samvinnu við Nýsköpunar­sjóð og Heimildina – um starfs­umhverfi faglærðra söngvara á Íslandi.

Þú tryllir mig vakti mikla lukku í forkeppni Eurovision árið 2007 undir seiðandi rödd Hafsteins Þórólfs­sonar. Hann er ekki allur þar sem hann er séður. Múltí­talent, söngvari, tónskáld og leið­sögumaður. Hann sækir tónlistar­genin í báða ættliði. Móðurafi Hafsteins er Oddgeir Kristjánsson, tónskáld frá Vestmanna­eyjum, og faðir hans Þórólfur Guðnason, fyrr­verandi sóttvarna­læknir, sýndi hvað í hann er spunnið þegar þeir feðgar sungu saman einkennislag Hinsegin daga, Ég er eins og ég er, í sjón­varpinu í miðjum Covid-faraldri.

Hleypti hommanum út en faldi sig inni í skáp

Hafsteinn söng í kórum frá 8 ára aldri og í Mennta­skólanum að Laugar­vatni var hann dreginn inn í kórinn hjá Hilmari Erni Agnars­syni. ,,Hilmar var svo ofboðs­lega inspirerandi. Þetta var alveg geggjað. Fókusinn var ekki á því að gera okkur góð. Fókusinn var í minningunni að fá okkur til að upplifa hvað tónlist gæti gefið manni og hvað við gætum gert saman.“

Þegar skólinn setti upp leikritið Kabarett, landaði Hafsteinn hlutverki skemmtana­stjórans. „Þarna neyddist ég til að hleypa hommanum út en á sama tíma þá fóru allir að fatta. Það var mér pínu ofviða og ég féll í þunglyndi.“ Hafsteinn endaði á að falla á mætingu og var vikið úr skólanum. „Ég faldi mig í skápnum þegar skólinn byrjaði á morgnana,“ bætir hann við hlæjandi. Þessi ár höfðu þó mikil áhrif á Hafstein og áttu eftir að móta hann sem tónlistar­mann og samkyn­hneigðan einstakling.

Hér syngur Haf­steinn á Hinsegin dögum.

Þú tryllir mig

Hafsteinn nam klassískt söngnám við Söng­skólann í Reykjavík undir leiðsögn Ólafar Kolbrúnar Harðar­dóttur. Seinna hóf hann meistaranám í Guildhall School of Music and Drama í London. Þarna vaknaði áhugi Hafsteins á tónsmíðum, sem hann átti eftir að leggja fyrir sig seinna meir. „Eftir á að hyggja var þetta kannski ekki alveg það sem ég hefði átt að fara í, mitt náttúru­lega söngeðli liggur ekki í háklassík eða óperu.“ Hann flutti aftur heim til Íslands og skráði sig á kvöld­námskeið hjá Þorvaldi Bjarna í elektró­nískri tónlist.

Lagið Þú tryllir mig var sent í gríni í Eurovision, en var svo valið í forkeppnina og endaði í þriðja sæti. Þetta varð til þess að Hafsteinn fór að leggja drög að bakkalár­námi í tónsmíðum í Lista­háskólanum. „Ég get sagt hispurs­laust að það er uppáhalds­tímabil ævi minnar. Ég lærði ógeðslega mikið og kennslan var ofboðs­lega góð og uppbyggileg.“ Í tónsmíða­náminu fór áhugi Hafsteins að hallast meira að nútíma­tónlist þar sem eru engar fyrir fram gefnar og hamlandi kríteríur. Hann endaði á að fara í meistaranám í rythmísku deildinni í tónsmíðum í Det Jyske Musikkonservatorium í Árósum með fókus á að semja fyrir raddir. Hann sótti einnig tíma í London hjá breska prófessornum Paul Barker sem er einn sá reyndasti á því sviði.  

Syngjandi leiðsögumaður

Hafsteinn er dæmi um faglærðan söngvara sem tekur að sér fjöl­breytt verkefni. Hann söng með klassísku söng­hópunum Cantoque og Schola Cantorum en einnig bakraddir í Eurovision hjá Gretu Salóme. Auk þess hefur hann lokið meira­prófi og haslað sér völl í túrista­bransanum. Þar notar hann reynslu sína úr tónlistar­heiminum óspart. „Ég get í raun stjórnað tímanum mínum betur sem tónlistar­maður og tónsmiður og að auki fléttað saman tónlist í fram­setningu leið­sagnarinnar.“ Hafsteinn vinnur mest með fólki sem kemur til Íslands til að gifta sig. „Ég hef til dæmis samið víkinga­sögu út frá Egilssögu þar sem ég set inn nöfn brúðhjónanna ásamt gestum sem karakterum úr sögunni. Allir fá einnig skrítin viðurnefni úr Íslendinga­sögum eins og John Seal-testical Simcox og Harry Heavy-Breather Smith. Sagan inni­heldur íslensk orða­tiltæki eins og Took him to the Bakary [Taka hann í bakaríið] og heitir John and Stacy’s Viking Wedding þar sem allt endar í rugli; morð, svik og örlög. Allt endar auðvitað vel, þannig séð.

„Íslenskur almenningur veit í raun lítið af mér sem tónlistar­manni, ég hef haft tækifæri á því og það hafa opnast þannig dyr. Ég hef sóst eftir því að fá virðingu en ekki endilega athygli.“ Þótt hann sé menntaður í klassískum söng tekur Hafsteinn fyrir það að vera kynntur sem slíkur. „Ég er bara söngvari. Á Íslandi þarftu að geta gert fleiri stíla. Annars er búið að njörva þig niður í ákveðin box.“

LiðlegurAð vera söngv­ari á Íslandi krefst lið­leika í alla staði, af við­tal­inu við Hafstein að dæma.

Hvernig viltu nota röddina?

 Klassískt söngnám að mati Hafsteins þýðir að þú hefur lært þá tækni að syngja án míkrafóns. „Í söngnámi skortir að mynda tengsl við þá sem eru að skapa tónlist í dag og þar af leiðandi að læra að nota röddina á fjöl­breyttari hátt eftir listrænni sýn skaparans.“ Honum finnst að tónlistarnám ætti að kenna öll stíl­brigði. „Þú þarft og ættir að skoða hvað þú getur gert með röddinni. Hvernig viltu nota röddina? Loftkennd, falsetta, syngja dýpra eða hvaðeina.“ Hafsteinn hefur mikla ástríðu fyrir þekkingu og virkni raddar og segir það lykilinn að góðum fjölhæfum söngvara.

„Ef þú vilt fá regluleg verkefni hérlendis í tónlist þá snýst þetta um fjölhæfni. Það eru örfáir sem geta verið stjörnur á sínu sviði en þeir og við hin erum yfirleitt tauga­veikluð um fram­tíðina, það þarf svo lítið til að detta út úr hringiðunni.“ Að mati Hafsteins er fjölhæfni grund­völlur þess að hann starfar í tónlist. „Mín innkoma í tónlist hefur miðast við einsöng og sönghópa í jarðar­förum og upptökum; Disney, teiknimyndir, kvik­myndir og tölvu­leiki og ýmsan bakradda­söng. Ástæðan fyrir að ég fæ þessi verkefni er hvað ég er góður að lesa nótur og á auðvelt með að skipta um söngtækni eftir verkefnum.“

Starfsumhverfið á Íslandi er erfitt

„Söngvara­samfélagið er öflugt. Flestir styðja hver annan en allir eru þó óöruggir varðandi hvort þeir fái verkefni því það eru svo margir góðir söngvarar og raddhópar að berjast um þau fáu launuðu verkefni sem standa til boða.“

Hafsteini finnst tónskálda­samfélagið líka tiltölu­lega einangrað og fókusinn þar vera mikið til að semja fyrir aðra lærða tónlistar­menn. Hann segir þar vera lítill áhugi á að vinna með eða semja fyrir söngvara eða kóra og það endur­speglist í námskrá stærstu tónlistar­skóla Evrópu. Söng­nemendur læra lítið að flytja nútíma­tónlist og tónskáldin læra lítið að vinna með söngvurum.

„Ef þú sækir um listamanna­laun og styrk á Íslandi fyrir verk eingöngu fyrir raddir færðu ekki styrk. Verk einungis fyrir raddir hefur aldrei verið tilnefnt til íslensku tónlistar­verð­launanna, svo ég viti til.“

„Þú verður í öllum til­fellum að vera byrj­aður á verk­efn­inu í algjörri óvissu um hvort þú fáir fjár­magn“

Óöruggt styrktarumhverfi

Hafsteinn hefur sótt um töluvert af styrkjum, og telur styrktar­umhverfið brotið. „Umsóknar­frestur verk­efnanna í tengingu við hvenær eigi að framkvæma verkefnið er algjör­lega klikkað. Þú færð svar um umsóknina á sama tíma og þú átt að vera að framkvæma verkefni. Þú verður í öllum tilfellum að vera byrjaður á verk­efninu í algjörri óvissu um hvort þú fáir fjármagn.“ Hann tekur dæmi um listamanna­laun sem umsækjandi þarf að sækja um í september fyrir næsta ár og fær að vita í desember hvort hann fái styrk eða ekki. „Þá ertu búinn að plana allt árið í von og óvon um hvort þú fáir eitthvað.“

Hafsteinn talar um að mögulega þurfi að fá utan­aðkomandi erlent fólk til að meta umsóknir. „Maður setur stórt spurningar­merki við það að fá aldrei svör við því af hverju maður fékk ekki styrkinn.“ Hann segir upphæðir sem íslenskir sjóðir veita vera í mun lægra hlutfalli við kostnað en gerist á Norður­löndum. „Ég er ekki að segja að styrkir eigi að full­fjármagna verkefni en það næst aldrei jafnvægi milli innkomu á tónleikum, sölu á upptökum og styrkja hérlendis.“ Verkefnin verða að veruleika í smækkaðri mynd eða með sjálfboða­vinnu. „Þar spilar inn í þessi kærleikur innan greinarinnar, þar sem margir hjálpa félögum sínum til að láta listræna drauma þeirra verða að veruleika.“

Stofnanir þurfa að standa við sitt

Fókusinn í íslenskum tónlistar­stofnunum mætti vera betri segir Hafsteinn og bendir á að Óperuna mætti stokka upp frá grunni út frá því hvernig tenging hennar á að vera við samfélagið og list­formið á Íslandi. Það sé skiljanlegt að það þurfi að setja upp erlend stórvirki til að selja miða en hæfileika­ríkir söngvarar og tónskáld á Íslandi hafi fengið lítið brautar­gengi.

Hafsteinn bendir einnig á að Sinfóníu­hljómsveit Íslands gangi framhjá atvinnu­sönghópum. Hún ræður áhugafólk í stórum kórum til að syngja á tónleikum og býður fyrir greiðslu í kórsjóð. Með þessu er Sinfónían að vinna gegn umhverfinu. Atvinnu­söngvarar eru aðeins kallaðir til í verkum eins og Eddu eftir Jón Leifs þar sem ekki er hægt að flytja verkið án atvinnu­fólks.

Hafsteinn telur að á Íslandi mætti stofna atvinnukór sem þjónar samfélaginu. Hann þarf að vera skipaður af fólki sem er vel læst á nótur og getur sungið mismun­andi stíl­brigði. Það væri ekki langlífur kór ef hann væri einungis skipaður af klassískt lærðum einsöngvurum. Í Danmörku er til slíkt fyrir­komulag varðandi Útvarps­kórinn og hefur reynst vel.

Þá hefur það gerst síðustu árin að sumar kirkjur hafa stofnað sína eigin kóra til að syngja í jarðar­förum og rukka sama taxta og þraut­þjálfaðir atvinnu­kórar. Hafsteinn segir þá kalla stundum í einstaka atvinnu­menn til að hjálpa en það sé ekki jafngóður flutningur og grafi undan starfs­greininni. En málið er að það þorir enginn að segja neitt af hræðslu við að detta út úr greininni.

„Helsta áskorun söngv­ara í dag er að vita aldrei hvort eða hvað maður er að fara að fá í laun og hvernig maður geti und­irbúið sig fyrir áföll“

Starfsumhverfið mikil áskorun

Að mati Hafsteins er helsta áskorun söngvara í dag að vita aldrei hvort eða hvað maður er að fara að fá í laun og hvernig maður geti undirbúið sig fyrir áföll. Hvernig maður getur staðið með sjálfum sér og réttindum sínum án hræðslu við að vera útilokaður frá verkefnum. Sjálft starfs­umhverfið sé mikil áskorun og það sé varla hægt að koma út í plús þrátt fyrir að það sé uppselt. „Það er ógerningur að koma út í plús hvað þá núlli!“

„Þegar ég nam og starfaði í Danmörku upplifði ég heil­steypt jafnvægi innan samfélagsins og tónlistar­greinarinnar. Jafnvægi á mögu­leikum til starfa og verkefna og jafnvægi í launum út frá töxtum og kostnaði við tónleika­hald.“ Hafsteinn telur Íslendinga geta lært mikið af öðrum Norður­landaþjóðum. Þó hefur íslenskt starfs­umhverfi ekki bugað Hafstein enn þá, sem heldur ótrauður áfram að skapa og flytja tónlist fyrir sig og aðra. „Tónlist er besta leiðin sem ég veit til að tengjast öðru fólki og gera eitthvað saman í gleði.“ Fram undan er útgáfa á nýju tónlistar­ævintýri eftir Hafstein, ásamt öðrum tónlistar­ævintýrum og ferðum með ástföngnum túristum sem karakterinn Hafsteinn Seal-Testical Þórólfsson.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Starfsumhverfi klassískra söngvara

ViðtalStarfsumhverfi klassískra söngvara

Fáránleg ákvörðun fyrir klassíska söngkonu

Björk Níels­dóttir er söngkona, trompet­leikari, jazzari, poppari, rokkari, klassíker, þjóðlaga­grúskari, tónsmiður og sviðs­leikkona. Hún ræðir hér starfs­umhverfi sitt við Thelmu Hrönn Sigurdórs­dóttur. Viðtalið er sprottið af rannsókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í samvinnu við Nýsköpunar­sjóð og Heimildina – um starfs­umhverfi faglærða söngvara á Íslandi.
ViðtalStarfsumhverfi klassískra söngvara

Íslenskt samfélag togar mig heim, en ekki tónlistar­lífið

Bjarni Thor Kristinsson starfar aðallega við óperusöng erlendis en hann hefur þó verið mun lengur í sviðs­listum, alveg síðan hann var barn. Hann ræðir starfs­umhverfi sitt við Thelmu Hrönn Sigurdórs­dóttur. Viðtalið er sprottið upp úr rannsókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í samvinnu við Nýsköpunar­sjóð og Heimildina – um starfs­umhverfi faglærða söngvara á Íslandi.

Mest lesið undanfarið ár