Hreinir tónar í glötuðu starfsumhverfi Um starfsvettvang klassískra söngvara á Íslandi

Guja Sandholt og Thelma Hrönn Sigurdórs­dóttir eru vel kunnugar starfs­umhverfi söngvara. Þær unnu saman viðamikla rannsókn á starfs­umhverfi faglærðra söngvara á Íslandi og var hún gerð í samvinnu við Nýsköpunar­sjóð og Heimildina. Hér er stytt útgáfa af greinar­gerðinni.

Hér ber að líta stytta útgáfu af greinar­gerð Guju Sandholt um starfs­vettvang klassískra söngvara á Íslandi.

Á Íslandi hafa faglærðir klassískir söngvarar tekið þátt í og glætt menningar­lífið áratugum saman en klassísk söng- og kóra­menning hafa löngum verið mikil­vægur partur af íslensku samfélagi. Íslenskir söngvarar hafa gert garðinn frægan víða um lönd, sungið á stærstu sviðum heims og margir hafa sungið sig inn í hjörtu þjóðarinnar, stundum á mikil­vægustu stundum í lífi fólks. Um þessar mundir eru 131 skráður meðlimur í Klassís, fagfélagi klassískra söngvara og starfa sumir hérlendis en aðrar einnig erlendis.

Guja og ThelmaGuja er klass­ísk söng­kona, list­rænn stjórn­andi og meist­ara­nemi í hag­nýtri menn­ing­ar­miðlun en Thelma er söng­kona og meist­ara­nemi í blaða- og frétta­mennsku.

Flestir völdu sér starfið vegna ástríðu á söng, leik og tónlistinni sjálfri og stunduðu lengi nám í tónlistar­háskólum til að geta starfað við fagið. Á Íslandi eru auk þess um 250-300 starfandi kórar með um 8000 meðlimum og um 500 söng­nemendur stunda söngnám í fjölmörgum tónlistar­skólum um land allt. Hlutfall kórsöngvara af þjóðinni er um 4-5%  skv. nýlegri könnun Gallups en í henni kemur einnig fram að alls hafi um 38% lands­manna einhvern tíma sungið í kór á ævinni og um 55% kvenna.

Í hverri viku má sækja ýmsa söng­tónleika um land allt, mikil gróska er í klassísku sjálf­stæðu söng­senunni og auk þess koma íslenskir atvinnu­söngvarar fram í óperu- og tónlistar­húsum víða um heim í hverri viku. Óperu­sýningar eru almennt vel sóttar og framboðið hefur aukist undan­farið samhliða nýliðun í faginu.

Miðað við velgengni ýmissa íslenskra söngvara erlendis og hérlendis, virðast sumir þeirra hafa komist nálægt því að finna hinn hreina tón. Nokkrir hafa náð eins langt og hægt er í faginu og jafnvel unnið til virtra verðlauna eins og Grammy. Aðrir hafa átt góðan starfs­feril og unnið árum saman við fagið í ýmsum löndum. Algeng spurning sem íslenskir söngvarar fá erlendis frá samstarfs­fólki sínu, er hvers vegna það komi svo margir góðir söngvarar frá þessu litla landi. Íslenska þjóðin er jú söngelsk með eindæmum og gott aðgengi að tónlistar­menntun hefur eflaust orðið til þessarar jákvæðu þróunar. En þrátt fyrir sigra og velgengni, virðist starfs­umhverfi þessa hóps lista­manna ekki vera upp á marga fiska hérlendis og ekki hefur verið hlúð að því svo vel sé. Greinar­höfundar þessarar greinar og viðtala sem birtast í kjölfarið fóru á stúfana, lögðu viðhorfs­könnun um starfs­umhverfið fyrir félaga í Klassís, leituðu upplýsinga og kortlögðu starfs­vettvanginn í samstarfi við Nýsköpunar­sjóð námsmanna og Heimildina. Þær starfa báðar sem klassískar söngkonur.

Lýsandi dæmi

Í Áramóta­skaupinu í hittiðfyrra vakti sena úr Bónus mikla athygli. Saga Garðars­dóttir leikkona lék konu sem hafði gleymt að taka með sér poka og á meðan hún laumaðist aftur inn í búðina til að finna plastpoka, söng hljóm­mikill kór reiðisöng yfir henni, svo hún skammaðist sín fyrir umhverfis­sóðaskapinn. Mörgum þótti atriðið vel heppnað og söngurinn flottur. Nokkrum vikum seinna, kom atriðið aftur til tals í samfélaginu þegar í ljós kom að söngvararnir sem höfðu verið fengnir til að syngja í atriðinu, fengu ekki eðlilega greitt fyrir vinnuna sína, eða einungis um 10% af lágmarks­taxta. Mörgum var ofboðið og heit umræða skapaðist en segja má að þetta hafi verið lýsandi dæmi fyrir stöðu og starfs­vettvang klassískra söngvara á Íslandi.

Þrátt fyrir að félagar í Klassís séu eins margir og raun ber vitni, starfa þeir ekki allir við sönginn enda reynist söngvurum nær ómögulegt að starfa við sönginn í fullu starfi á Íslandi. Bestu atvinnu­mögu­leikarnir eru erlendis en þar búa og starfa ýmsir íslenskir söngvarar. Vegna stöðunnar á Íslandi, hafa margir faglærðir söngvarar sem hér vilja búa, horfið til annarra starfa eða sinna söngnum í hluta­starfi eða frístundum.

Nokkrum vikum seinna, kom atriðið aftur til tals í sam­fé­lag­inu þegar í ljós kom að söngv­ar­arnir sem höfðu verið fengnir til að syngja í atrið­inu, fengu ekki eðli­lega greitt fyrir vinn­una sína, eða ein­ungis um 10% af lág­marks­taxta.

Þjálfun, nám og starfsheiti

Í þessari grein notum við starfs­heitið klassískur söngvari í stað óperu­söngvari vegna þess að það hefur breiðari skírskotun og margir innan fagsins notast við það. Klassískt menntuðum söngvurum má bera saman við hljóðfæra­leikara og íþrótta­menn hvað þjálfun varðar, þar sem áratuga­löng ástundun liggur oft að baki. Á Íslandi er klassískur söngur kenndur við ýmsa tónlistar­skóla og einnig á háskóla­stigi við LHÍ. Að útskrift lokinni, halda flestir sem hyggja leggja starfið fyrir sig, í framhaldsnám erlendis.

Sumir ílengjast við nám og störf en aðrir ákveða að halda aftur heim - sú ákvörðun verður oft þess valdandi að viðkomandi skiptir um starfs­vettvang eða starfar í hluta­starfi við sönginn.

Þrátt fyrir þungt starfs­umhverfi, virðist fólk hvorki hika við að stunda söngnám árum saman né taka námslán hjá Mennta­sjóði námsmanna. 91% af aðspurðum söngvurum sögðust hafa tekið námslán til að fjármagna nám sitt, sem nú standa í allt frá 3-25 milljónum króna. Meistara­ritgerð og rannsókn Ásu Fanneyjar Gests­dóttur, söngkonu og menningar­stjórnanda, Þetta er bara bévítans hark frá árinu 2017 fjallar um veruhátt óperu­söngvara og upplifun þeirra af starfs­vettvanginum. Þar kemur fram að viðmælendur gátu ekki ráðlagt öðrum að velja þetta starf. 

Starfsvettvangurinn

Helsti starfs­vettvangur faglærðra klassískra söngvara, almennt séð er, auk óperu­starfa, störf við kóra eða kirkju­athafnir, með hljómsveitum, í tónlistar­leikhúsi og sjálf­stæðum verkefnum. Klassískir söngvarar geta hvergi sótt um fasta stöðu á Íslandi í sínu fagi og því eru nær allir söngvarar á Íslandi sjálfstætt starfandi. Þessu er öfugt farið hjá leikurum, dönsurum og hljóðfæra­leikurum sem hafa möguleika á að sækja um vinnu við leikhúsin, Íslenska dans­flokkinn og Sinfóníu­hljómsveit Íslands. Í Sinfóníu­hljóm­sveitinni eru minnst 65 stöðu­gildi hljóðfæra­leikara en hljóm­sveitin var stofnuð árið 1950 og á sér yfir 70 ára sögu. Gildi hennar fyrir íslenskt samfélag og menningarlíf verður seint fullmetið. 

Söngvarar á Íslandi starfa sumir við jarðarfarar­söng og kirkju­athafnir; Íslenska óperan, sinfóníu­hljóm­sveitir á Íslandi og ýmsar hátíðir og kórar ráða söngvara einnig í verkefni en söngvarar hafa orðið atkvæða­meiri í sjálf­stæðu sviðslista­senunni á undan­förnum árum og staðið fyrir eigin verkefnum í auknum mæli. Vanda­málið við sjálf­stæða geirann er að hann er ótryggur og ófyrirsjáanlegur og innviðirnir að sumu leyti ófaglegir.

Íslenskir listamenn geta sótt um verkefna­styrki og listamanna­laun til framkvæmda á verkefnum en árángurshlutfall þeirra sem sækja um starfs­laun tónflytjenda er lágt. (var t.d. 21% árið 2023). Það ár fengu aðeins sjö klassískir söngvarar laun í samtals 41 mánuð. Upphæð listamanna­launa á mánuði miðast við 66% vinnu og launin eftir því. Fagleg nefnd fer yfir allar umsóknir. Listamanna­launin eru ekki hugsuð sem hefð­bundin laun heldur verkefna­styrkir.

Á hverju ári eru lista­menn því á byrj­un­ar­reit hvað lista­manna­launin varðar og aldrei er mögu­leiki á að gera nokk­urra ára plön fram í tím­ann.

Á hverju ári eru listamenn því á byrjunar­reit hvað listamanna­launin varðar og aldrei er möguleiki á að gera nokkurra ára plön fram í tímann. Einn helsti gallinn við styrkja­kerfið er hversu seint svör berast við umsóknum og hversu stutt fram í tímann er hægt að sækja um styrki. Það setur íslenskt tónlistar­fólk oft í vonda stöðu gagnvart erlendum samstarfs­aðilum. Vonir standa þó til með að styrkja­umhverfið eflist og bætist í kjölfar nýstofnaðrar Tónlistar­miðstöðvar sem hefur almennt séð mætt jákvæðu viðhorfi tónlistar­fólks. Nýlega samþykkt á Alþingi nýtt frumvarp Lilju Daggar Alfreðs­dóttur, menningar- og viðskipta­mála­ráðherra um íslenska tónlistar­stefnu á árunum 2023-2030 en eitt af markmiðum hennar er að tónlist verði fullgild og eftirsóknar­verð atvinnu­grein.  Sömuleiðis er nú unnið að mótun sviðs­listastefnu sem nær utan um styrkja­umhverfi er snýr að óperu­flutningi og tónleik­húsi. Sú stefna kemur til með að hafa bein áhrif á starfs­vettvang söngvara.

Söngvararnir sem tóku þátt í viðhorfs­könnuninni, lýstu meðal annars starfs­umhverfinu á Íslandi á eftir­farandi hátt: óásættanlegt, slæmt, ófaglegt, erfitt, ólíðandi, óstablít, óöruggt, illa borgað, ekkert til að tala um, verulega glatað, ekki mikil samstaða, ekki mjög beisíð, enginn starfs­grundvöllur, hörmulegt, lítið hvetjandi, þungt, óþroskað, bágborið, hark, handahófs­kennt, skelfilegt, mjög klíku­miðað, enga fasta vinnu að fá, mjög fá tækifæri; engin vernd innan umhverfisins eða samfélagsins fyrir söngvara.

Einn af þeim 50 söngvurum sem tóku þátt, svaraði að sér fyndist starfs­umhverfið ágætt.

Íslenska óperan og þjóðarópera

Íslenska óperan (ÍÓ) var formlega stofnuð árið 1980 af ástríðu­fullu óperu­fólki með Garðar Cortes í broddi fylkingar. Hún hefur verið eina stofnunin á landinu um árabil sem hefur notið fastra opinberra fjár­framlaga til að standa fyrir óperu­flutningi. Á hverju ári hefur ÍÓ sett upp 1-2 óperu­uppfærslur sem og nokkra minni viðburði.Stofnunin hefur ráðið tónlistar­fólk í tilfall­andi verkefni en afar sjaldan í fastar stöður. Föstu starfs­mennirnir hafa hingað til verið stjórn­endur, starfs­fólk á skrif­stofu, yfirmaður búninga­deildar og sýningar-/framleiðslu­stjóri, eftir því sem best verður komist.

Á tímabilum hefur verið tónlistar­stjóri og rétt eftir aldamót voru söngvarar þó fastráðnir til 1 árs í senn. Almennt séð þykir íslenskum söngvurum afar vænt um ÍÓ enda eiga margir dýrmætar minningar þaðan. Saga hennar er merkileg og hefur hún verið mikil­vægasti starfs­vettvangur söngvara á Íslandi frá stofnun. Á undan­förnum árum hefur þó styr staðið um hana eins og fjallað hefur verið um víða. Meðal þess sem gagnrýnt hefur verið eru kjaramál og launa­stefna, skortur á samningum og faglegu samtali, dýrt skrifstofu­húsnæði í Hörpu, ógagnsæi í rekstri, lítil fram­leiðsla, vöntun á viðburðum fyrir börn, framkoma stjórn­enda við listafólk og í vor sem leið, óviðeigandi leikgervi í óperu­uppfærslu. Sunna Valgerðar­dóttir, frétta­maður á RÚV rifjaði síðastliðið sumar upp stöðu ÍÓ í Þetta helst í kjölfar umræðunnar.

Í þættinum fjallaði hún einnig um dómsmál Þóru Einars­dóttur gegn ÍÓ sem söngkonan vann fyrir Lands­rétti; vantrausts­yfirlýsingu Félags klassískra söngvara á stjórn og óperu­stjóra sem og viðbrögð formanns stjórnar Íslensku óperunnar við yfir­lýsingunni. Þrátt fyrir gagn­rýnina, hefur þó margt verið vel gert síðustu ár; listamenn hafa brillerað í sýningunum sem flestum hefur verið vel tekið og verið mjög vel sóttar.

Síðastliðin ár hafa æ háværari raddir heyrst meðal lista­manna um að að breyta þurfi rekstrar­formi óperunnar og bæta vettvanginn. Stofnunin hefur til þessa verið rekin sem sjálfs­eignar­stofnun og hefur því ekki þurft að fara eftir stjórnsýslu­lögum. Það hefur mörgum þótt gagnrýni­vert.

Síð­ast­liðin ár hafa æ hávær­ari raddir heyrst meðal lista­manna um að að breyta þurfi rekstr­ar­formi óper­unnar og bæta vett­vang­inn.

Aðdragandi þjóðaróperu

Aðdragandi hugmynd­anna um þjóðar­óperu hófst fyrir alvöru þegar ný lög um sviðs­listir tóku gildi í júlí 2020 en lengi hafði verið unnið að þeim. Þar með fékk óperu­formið sömu stöðu og leikhús, dans- og brúðu­leikhús og var lagalega skilgreint með sviðs­listunum. Við undir­búning sviðslista­laganna kom í ljós að lagaramma vantaði um óperu­listina þannig að hún hefði lagalegan grundvöll og tryggingu fyrir tilvist sinni eins og aðrar sviðs­listir.

Í ráðuneytinu var hafist handa og árið 2020 mynduð nefnd til að kanna kosti og galla og grundvöll þjóðar­óperu. Meirihluti nefndarinnar lagði til í skýrslunni Þjóðar­ópera, uppspretta nýsköpunar úr jarðvegi hefðar „að mennta- og menningarmálaráðherra bæri fram frumvarp til breytinga á lögum um sviðs­listir og lögfesti stofnun þjóðaróperu (...) í þeim tilgangi að gera að veruleika nýjan starfs­vettvang fyrir söngvara, hljómlistarmenn, tónskáld, texta­smiði og annað listafólk sem sinna kann óperu­listinni og alltof lengi hefur verið hornreka í íslensku menningarlífi.“. Yfir­gnæfandi meirihluti þess fagfólks sem nefndin ráðfærði sig við, studdi einnig stofnun þjóðar­óperu. Tveir nefndar­meðlimir skiluðu séráliti.

Í lok maí sl. birtust fréttir um að öllu föstu starfs­fólki ÍÓ hefði verið sagt upp, nema óperu­stjóra og í viðtali tók óperu­stjóri fram að breytingar væru í farvatninu. Í viðtalinu kom fram jákvætt viðhorf til breytinganna. Annan tón var seinna að heyra í yfir­lýsingu frá stjórn ÍÓ þar sem skorað var á stjórn­völd að skrúfa ekki fyrir fjármagn til stofnunarinnar. Stjórnir BÍL og Klassís sendu í kjölfarið frá sér ályktanir þar sem lögð var áhersla á að stjórnirnar styddu áform ráðuneytisins.

Eins og málin standa núna, er vinna við stofnun nýrrar þjóðar­óperu í fullum gangi í ráðuneytinu í samstarfi við nýráðinn verkefna­stjóra og nefnd um stofnun þjóðar­óperu. Stefnt er á að hún taki til starfa í byrjun árs 2025, nái áætlanir fram að ganga. Fyrir þær sakir mun ÍÓ ekki njóta sömu fjár­framlaga og áður og nú í febrúar gefst sjálf­stæðu senunni auk þess tækifæri á að sækja um fjármagn í nýjan óperusjóð. Breytingar eru því á næsta leiti. Ljóst er að um mikið tilfinningamál er að ræða en heitar umræður áttu sér stað meðal fagfólks á nýliðnu ári þar sem sumir lýstu yfir hræðslu og tortryggni yfir áformunum þó svo meirihluti hafi lýst yfir jákvæðu viðhorfi sbr. niður­stöður viðhorfs­könnunarinnar. Nokkrir töldu sig ekki hafa kynnt sér málið nægilega vel til að mynda sér skoðun. Hér að neðan má sjá nokkur dæmi:

Hvaða skoðun hefur þú á stofnun nýrrar Þjóðar­óperu?

  • Ég vil sjá Þjóðar­óperu, það þarf að gerast eins fljótt og hægt er.
  • Væri mjög jákvæð þróun.
  • Ég held að það sé farsælast fyrir alla starfs­stéttina. Það myndi líklegast auka gagnsæi á starfsemi óperunnar. Ég held að þjóðar­ópera myndi hafa mjög jákvæð áhrif á starfs­stéttina og styrkja stöðu íslenskra söngvara.
  • Bráð­nauðsynlegt og löngu tímabært. Nauðsynlegt að hafa fagráð, fagaðila til ráðgjafar og í stjórn.
  • Ég er á þeirri skoðun að byggja ætti nýja þjóðar­óperu á grunni Íslensku óperunnar, sumsé breyta rekstri ÍÓ. Þykir vænt um ÍÓ og hún hefur verið að byggja upp frábært starf og setja upp mjög flottar sýningar og finnst galin hugmynd að leggja hana niður og stöðva fjár­framlög til hennar.
  • Èg vona að sú hugmynd fái fram að ganga svo að íslensk sönglist fái notið sín enn frekar; Þjóðar­ópera væri mikið framfarar­kref. Við verðum að sjá breytingar, óperan þarf verðugri sess hjá þjóðinni og nýjan óperu­stjóra.
  • Það þarf að grund­valla óperu­starfsemi hér eins og aðra sviðs­lista­starfsemi, með skilgreindri aðkomu ríkisins og stjórn sem er skipuð fulltrúum ákv. aðila. Núverandi ástand er óboðlegt.

Sjálfstæða senan og listahátíðir

Á undan­förnum árum hefur sjálf­stæða óperu- og söngsenan sprungið út en sjálfstætt starfandi söngvarar og þeirra samstarfs­fólk hafa staðið fyrir fjölmörgum verkefnum.Ný kynslóð spreng­lærðra söngvara er mætt til leiks með framkvæmda­gleði og listrænan metnað að vopni og hefur vakið athygli fyrir vel heppnaðar uppfærslur og lausna­miðað hugarfari. Á Grímu­verð­laununum í júní sl. hlaut grasrótar­starf óperu­listamanna Grímu­verðlaun í flokknum Sproti ársins.

Nokkrar tónlistar­hátíðir á Íslandi einbeita sér að klassískri sönglist og hjá þeim er lögð áhersla á fjöl­breytta viðburði fyrir alla aldurs­hópa; faglegt samtal og fræðslu; alþjóðlegt og innlent samstarf og metnaðar­fulla dagskrá. Víða á lands­byggðinni er öflugt söngstarf atvinnu­fólks. Stærsta áskorun þessara hópa og hátíða er að tryggja fjármagn til að standa fyrir starfinu. Flestir þurfa að byrja fjár­mögnun frá grunni ár hvert þar sem nær ómögulegt er að tryggja styrki til lengri tíma. Á undan­förnum árum hafa langflestar óperu­sýningarnar verið í boði sjálf­stæðu senunnar og því svíður mörgum hversu litlu fjármagni hefur verið veitt í hana.

Kórastarf og atvinnumennska

Atvinnu­söngvarar hafa á undan­förnum árum talað fyrir stofnun atvinnu­manna­kórs með föstum stöðu­gildum hér á landi. Slíkur kór gæti sinnt mismun­andi skyldum og starfað þvert á stofnanir; til dæmis í samstarfi við þjóðar­óperu, RÚV, Sinfóníu­hljómsveit Íslands, leikhúsin og á lands­byggðinni; sinnt upptökum á nýjum og eldri verkum; haft hlutverk innan Þjóð­kirkjunnar, við tónlistar­flutning á lands­byggðinni og sinnt fræðslu­starfi. Slíkur kór myndi, auk nýrrar þjóðar­óperu, breyta starfs­umhverfinu mikið. Hingað til hefur Sinfóníu­hljómsveit Íslands aðeins ráðið áhugamanna­kóra í sín verkefni og þannig að vissu leyti grafið undan starfs­vettvangi faglærðra söngvara.

Um margra ára skeið hafa söngvarar hvíslað um það sín á milli en eru nú farnir að segja það upphátt og óska eftir því að breyting verði þar á. Þeir tala um nauðsyn þess að standa vörð um listræn gæði, vernda fagið og búa til raun­veruleg störf á fagvettvangi. Að ráða eingöngu áhugamanna­kóra, mætti líkja við að góðu áhuga­fólki væri boðið að spila alla íþrótta­landsleiki meðan atvinnu­fólkið sæti heima. Stjórn­endum hljóm­sveitarinnar er kunnugt um stöðuna og viðhorf margra söngvara en hafa enn ekki svarað kallinu eða kallað eftir nauðsyn­legu fjármagni til að breyta þessu. Margir áhugamanna­kórarnir eru góðir og því í raun mjög jákvætt og hvetjandi að bjóða þeim að syngja með Sinfóníunni til að auka þátttöku og áhuga. Þegar atvinnu­fólkið er hins vegar algjör­lega útilokað frá vettvangi sem ætti að vera þeirra fagvettvangur, þarf að skoða málin betur. Kannski væri hægt að finna einhvern góðan meðalveg.

Í könnun okkar stóð ekki á svörum við eftir­farandi spurningu: Hvaða skoðun hefur þú á stofnun atvinnu­kórs með föstum stöðu­gildum sambærilegum við hljóðfæra­leikara í Sinfóníu­hljómsveit Íslands?

  • Ég tel að það eigi að vera kór við Þjóðaróperu og að SÍ eigi að greiðan kórsöngvurum full laun fyrir sína vinnu með hljóm­sveitinni hvaða kór sem þau kjósa að ráða í verkefnin.
  • Ég held að það væri klárlega eitthvað sem á að gera. Þetta hefur verið talað um lengi og nú nokkuð í kóra­heiminum og innan raða Klassís. Ég teldi hinsvegar að ef það yrði gert yrði það að vera samansett af atvinnu­söngvurum sem geta sungið fleiri stíl­brigði en bara hefð­bundin klassískan söng. Þetta er pólitískt mál innan raða söngvara.
  • Það væri mjög jákvætt og er starfs­vettvangur sem ég hefði áhuga á að starfa við.
  • Það myndi bæta starfs­umhverfi söngvara til muna. 

Í öllum löndum Evrópu sem við miðum okkur við, eru starf­ræktir atvinnu­manna­kórar (útvarps­kórar, kammer­kórar, óperu­kórar) sem eru margir reknir á svipaðan hátt og sinfóníu­hljóm­sveitir eða sem hluti af leik-/óperuhúsi. Erlendis er gífurleg samkeppni um slíkar stöður en vinna í slíkum kórum stuðlar að sterku listrænu starfi og dýrmætu starfs­öryggi.

Í öllum löndum Evrópu sem við miðum okkur við, eru starf­ræktir atvinnu­manna­kórar (útvarps­kórar, kam­merkórar, óperukórar)

Þjóðkirkjan

Söngur við við jarðar­farir og aðrar kirkju­athafnir er einn helsti starfs­vettvangur klassískra söngvara á Íslandi. Erfitt getur reynst að komast að í söng-/jarðarfarar­hópum eða sem einsöngvari en áhugafólk tekur auk þess nokkuð pláss í þeim verkefnum. Sumir prestar mæla með eigin kirkju­kórum og hafa þeir áhrif á val aðstand­enda á flytjendum og tónlistinni. Tónlistar­fólkið er sjálfstætt starfandi og fær greitt af aðstand­endum hinna látnu en ekki þjóð­kirkjunni. Eftir Hrunið árið 2008 dró Þjóð­kirkjan saman seglin í tónlistar­flutningi og nær algjört hrun varð í tónlistar­flutningi í kirkju­athöfnum þar sem sums staðar var alveg skrúfað fyrir fjármagn til tónlistar­flutnings. Í sögulegu samhengi hefur kirkjan spilað ómetanlegan þátt í tónlistar- og menningar­uppeldi í samfélaginu, bæði hér og erlendis. Sá mikilvægi vinkill vill oft verða útundan í umræðunni um stöðu kirkjunnar í samfélaginu og dæmi um ómetanlegt tónlistar­starf í kirkjunni má finna víða.

Leikhúsin

Leikhúsið skipar mikil­vægan sess í lífi fjölmargra Íslendinga. Hið sama gæti gilt um óperu­formið og alls kyns tónlistar­leikhús þar sem klassískir söngvarar koma fram. Sumir telja óperu­formið óaðgengilegt en þeir sem fylgjast með senunni heima og erlendis, vita að svo er sjaldnast raunin og að þróun á sér stað víða. Lítil samvinna hefur verið milli leik­hússins og óperu­fólks almennt séð í íslensku senunni. Af einhverjum ástæðum hafa fáir reynslu­miklir, klassískir söngvarar fengið tækifæri til að koma fram í leik­húsunum á Íslandi. Þó hefur örlítið rofað til á síðustu 1-2 árum þegar leikhúsin hafa stutt við óperu­sýningar sem eru fram­leiddar af sjálf­stæðum hópum.

Í hópi klassískra söngvara leynast margir með mikla sviðs- og leik­reynslu úr atvinnu­húsum erlendis og þeir gætu átt fullt erindi á íslensk leiksvið. Að líta í ríkari mæli til Þýska­lands og þeirra samlegðar­áhrifa sem verða þegar leikhús, ópera og dans­flokkar starfa í návígi, gæti einnig verið góð hugmynd.

RÚV og fjölmiðlarnir

RÚV er ein mikil­vægasta menningar­stofnunin í samfélaginu og á sér hlið­stæður í BBC á Englandi og ríkis­miðlunum á Norður­löndunum. RÚV hefur ríku menningar­hlutverki að gegna. Rás 1 er eina útvarps­stöðin sem sinnir klassískri tónlist þó svo umfjöllun um hana hafi minnkað á undan­förnum árum. Árið 2013 stóðu yfirvöld fyrir miklum niður­skurði hjá RÚV þar sem framlag til stofnunarinnar var minnkað um 1 milljarð á ársgrundvelli (rúmur 1,5 milljarður á verðlagi dagsins í dag). Um 60 manns misstu vinnuna og tónlistar­deildin var svo gott sem lögð niður. Áhrif þessa sársauka­fulla niður­skurðar verða seint fullmetin en á þeim áratugi sem liðinn er síðan þá, hefur umfjöllun um menningu átt undir högg að sækja. Sýnileiki klassískra tónlistar­manna hefur á sama tíma minnkað í þáttagerð.

Oft reynist erfitt að fá umfjöllun um klassíska tónlistar­viðburði og gagnrýni á tónleikum og uppfærslum í öðrum fjöl­miðlum enda eru fáir gagn­rýnendur starfandi. Það dagskrár­gerðar­fólk sem sinnir menningunni á fjöl­miðlunum vinnur undir miklu álagi og hefur ekki tök á að fjalla um nema brot af menningar­tengdum viðburðum.

Um mikinn meirihluta þeirra tónleika sem haldnir eru, eru því ekki til umfjallanir. Í menningar­umfjöllun Kast­ljóssins um árið sem var að líða og sviðslista­umfjöllun á RÚV, var til að mynda ekki einu orði minnst á klassíska tónlist. Vissulega er að sá skortur á menningar­umfjöllun sem um ræðir, hluti af stærra vandamáli fjölmiðla á Íslandi og rekstrar­umhverfi þeirra. Nýlega lauk einnig dómsmáli FÍH gegn RÚV vegna kjara­samninga með sigri FÍH en sú niður­staða kallar auk þess á nýjar nálganir og samtöl.

Í menn­ing­ar­um­fjöllun Kast­ljóss­ins um árið sem var að líða og sviðs­listaum­fjöllun á RÚV, var til að mynda ekki einu orði minnst á klass­íska tón­list.

Mikilvægi nýrra áhorfendahópa

Áhyggjur fagfólks vegna stöðu mála felast ekki síst í óvissu um fram­tíðina og skorts á  þróun og uppbyggingu á áhorfenda­hópum og samfellu í starfi. Án samfellu á sýningum og tónleikum er erfitt að byggja upp nýja áhorfenda­hópa og þá verður eftir­spurnin smám saman minni, list­formið hættir að vera mikilvægt eða hluti af lífi fólks. Að sama skapi hefur verkefna­valið mikið að segja. Tvær sýningar á síðastliðnu leikári í Þjóð­leikhúsinu og Íslensku óperunni kveiktu á heitum samfélags­umræðum um birtingar­myndir neikvæðra staðlímynda í sviðs­listum sem og inngildingu fagfólks og áhorfenda hjá íslenskum sviðs­lista­stofnunum. Ljóst er að ríkari krafa er gerð á verkefnaval, inngildingu og áherslur hjá listrænum stjórn­endum en áður. Íslenskt samfélag og og viðhorf breytist í sífellu sem og áhorfenda­hóparnir sjálfir. Það þurfa listirnar að endur­spegla.

Tónlistarnám, lýðheilsa, nýsköpun og framtíðin

Ógrynni rannsókna hafa sýnt fram á gildi tónlistar, kóra­starfs og söngs fyrir fólk, börn, lýðheilsu og samfélög. Tónlistar- og listnám eykur hæfni á mörgum sviðum en samt hefur tónlistar- og list­kennsla minnkað í grunn­skólum á Íslandi á undan­förnum árum. Barnakóra­starf er á undan­haldi og tónlistar­skólar berjast margir í bökkum fjárhags­lega. Mörg börn fá aldrei tækifæri til að stunda tónlistarnám vegna hversu dýrt það er og sums staðar er ekki hægt að komast að vegna langra biðlista. Íslendingar eru þekktir fyrir sköpunar­gáfu en nýlega birtist grein í Guardian um hvernig Ísland hefur þróast í „orkuver“ fyrir klassíska tónlist. Þegar litið er til mann­fjölda, hafa Íslendingar náð ótrúlegum árangri á sviði klassískrar tónlistar.

Vandi söngvara á Íslandi - samantekt

Að sumu leyti snýst vandi söngvara á Íslandi um valda­leysi í eigin fagi sem og kerfis­bundið og almennt skilnings­leysi á starfinu og mikilvægi þess, víða þar sem síst skyldi. Þannig barðist Íslenska óperan á móti grunn­kjara­réttindum söngvara í dómsmáli sínu gegn Þóru Einars­dóttur og hefur á undan­förnum árum staðið fyrir fáum verkefnum í stórri yfir­byggingu. RÚV hefur ekki greitt söngvurum og öðru tónlistar­fólki fyrir upptökur samkvæmt taxta árum saman og nýlegur dómur kallar eftir nýju samtali.

Klassísk tón­list og söng­list hafa átt undir högg að sækja þar á und­an­förnum árum með minni spilun og umfjöllun en áður tíðk­að­ist

Klassísk tónlist og sönglist hafa átt undir högg að sækja þar á undan­förnum árum með minni spilun og umfjöllun en áður tíðkaðist; Sinfóníu­hljómsveit Íslands ræður nær ávallt áhugamanna­kóra í stað atvinnu­fólks við flutning á kórverkum og eins og ÍÓ, býður söngvurum nær aldrei í prufur og ræður oft erlenda söngvara til að syngja bita­stæðustu einsöngs­parta. Þjóð­kirkjan hefur dregið saman tónlistar­seglin allt frá hruni og innan hennar er einnig talað fyrir enn meiri niður­skurði í tónlistar­starfi.

Ýmsir kirkju­kórar, mannaðir áhugamanna­fólki, taka nokkuð pláss í jarðarfarar­söng og keppast þar við atvinnu­fólkið um greidd verkefni. Þar að auki ráða leikhúsin frekar leikara til að fara með söng­hlutverk en söngvara og bjóða ekki faglærðum klassískum söngvurum í opnar prufur til sín. Styrkja­kerfi ríkisins er, eins og fyrr segir, mein­gallað en vonir standa til að það fari batnandi. Auk þess hallar mikið á klassíska söngvara í úthlutunum ÚTÓNs í samkeppni við dægur­tónlist.

Að halda sér í söngformi og leita að vinnu í þessu starfs­umhverfi reynist oft þrautin þyngri. Aðstöðu­leysi gerir söngvurum sem og öðru sviðs­listafólki erfitt fyrir sem og há húsaleiga hjá tónlistar­húsi allra lands­manna og tónleika­stöðum. Að reyna að starfa við fagið á Íslandi er ákveðinn ómöguleiki og því í raun athyglis­vert hversu virkir klassískir söngvarar eru þó í menningar­lífinu. Ljóst er þó að það er fáum auðvelt. Söngvararnir sjálfir lýstu þessu vel þegar þeir svöruðu eftir­farandi spurningu í könnuninni:

Hver er helsta áskorunin við að vera söngvari í dag? Geturðu nefnt dæmi um eigin reynslu?

  • Að laun séu í einhverju samræmi við vinnuna sem að baki liggur. Að fá vinnu.
  • Ófaglegt starfs­umhverfi og starfs­menning. Lítil sem engin fagvitund meðal söngvara.
  • Ekki hægt að lifa af því að starfa sem söngvari. Vantar stöður. Laun lág.
  • Helsta áskorunin er trúlega starfs­umhverfið og það hvað maður er háður styrkja­kerfinu. Það er t.d áskorun að vita ekki fyrr en í janúar hvort verkefni sem var sótt fyrir 4 mánuðum fyrr verði að veruleika … það er líka áskorun skapa allt sjálfur og vera í senn; framkvæmda­stjóri, listrænn stjórn­andi, mark­aðstjóri, grafískur hönnuður, texta­gerðarkona og svo já söngkonan.
  • Tilvistar­réttur
  • Óöryggi og enginn möguleiki á fastri vinnu 

Horft til framtíðar

Það býr gífur­legur mannauður í klassískum söngvurum og þeirra samstarfs­fólki á Íslandi og erlendis. Undan­farið hefur greinar­höfundur oft velt þeirri spurningu fyrir sér, hvort landsmenn þekki yfir höfuð söngvarana „sína“ af yngri kynslóðinni eins og þeir þekkja íþrótta­fólkið, leikarana og áhrifavaldana? Hringja nöfn eins og Arnheiður Eiríks­dóttir, Björk Níels­dóttir, Benedikt Kristjánsson, Eyrún Unnars­dóttir, Bryndís Guðjóns­dóttir, Jóhann Kristinsson, Kristján Jóhannesson, Agnes Thorsteins, Elísabet Einars­dóttir, Álfheiður Erla Guðmunds­dóttir og Andri Björn Róbertsson bjöllum hjá almenningi? Öll eru þetta söngvarar undir fertugu sem eru á blússandi ferð í sínum söng­ferlum úti um hvippinn og hvappinn.

Þegar gert er grein fyrir starfs­umhverfi hópsins og viðhorf hans kannað, liggur við að mani fallist hendur. En ýmislegt vekur líka von; gróskan í gras­rótinni, krafturinn í fagfólkinu og sigrar þess hérlendis og erlendis, samstaða margra sem og nýtilkominn, dýrmætur pólitískur vilji til að efla starfs­vettvanginn. Fyrir tæpum 70 árum, árið 1957, sagði Ragnhildur Helga­dóttir alþingis­kona meðal annars þessi orð í þrumuræðu um sýn sína á íslenska óperu og fastráðningu óperu­söngvara:

Þeim, sem hafa búið sig undir að gerast söngvarar að atvinnu, hefur fjölgað að mun á síðari árum. Hafa sumir þeirra setzt hér að að námi loknu, en það þótti þeim, sem á undan fóru, ekki fýsilegur kostur. Þessir góðu listamenn hafa eflt tónlistar­lífið, en vinnu­skilyrði þeirra hafa þó verið slík, að starf þeirra hefur hvorki orðið þeim sjálfum né almenningi jafn­notadrjúgt og skyldi.

Margt bendir til að þau eigi enn við árið 2024. Vonandi mun ráðherra ná markmiði sínu um að gera tónlist að full­gildri og eftirsóknar­verðri atvinnu­grein sem allra fyrst og beisla um leið sprengi­kraftinn sem býr í klassískum söngvurum. Staðreyndin er nefnilega sú að það er ekki einungis hálendið sem hægt er að virkja. Söngvarar vilja vinna við sitt fag og taka þátt í að efla samfélagið og menningar­lífið hér á landi. Kannski er einfald­lega mál til komið - það væri spennandi framsókn.

Greinar­gerðina má nálgast í heild sinni á þessari slóð.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Starfsumhverfi klassískra söngvara

ViðtalStarfsumhverfi klassískra söngvara

Fáránleg ákvörðun fyrir klassíska söngkonu

Björk Níels­dóttir er söngkona, trompet­leikari, jazzari, poppari, rokkari, klassíker, þjóðlaga­grúskari, tónsmiður og sviðs­leikkona. Hún ræðir hér starfs­umhverfi sitt við Thelmu Hrönn Sigurdórs­dóttur. Viðtalið er sprottið af rannsókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í samvinnu við Nýsköpunar­sjóð og Heimildina – um starfs­umhverfi faglærða söngvara á Íslandi.
ViðtalStarfsumhverfi klassískra söngvara

Íslenskt samfélag togar mig heim, en ekki tónlistar­lífið

Bjarni Thor Kristinsson starfar aðallega við óperusöng erlendis en hann hefur þó verið mun lengur í sviðs­listum, alveg síðan hann var barn. Hann ræðir starfs­umhverfi sitt við Thelmu Hrönn Sigurdórs­dóttur. Viðtalið er sprottið upp úr rannsókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í samvinnu við Nýsköpunar­sjóð og Heimildina – um starfs­umhverfi faglærða söngvara á Íslandi.

Mest lesið undanfarið ár