Mynd: Heiða Helgadóttir

Íslenskt samfélag togar mig heim, en ekki tónlistarlífið

Bjarni Thor Kristinsson starfar aðallega við óperusöng erlendis en hann hefur þó verið mun lengur í sviðs­listum, alveg síðan hann var barn. Hann ræðir starfs­umhverfi sitt við Thelmu Hrönn Sigurdórs­dóttur. Viðtalið er sprottið upp úr rannsókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í samvinnu við Nýsköpunar­sjóð og Heimildina – um starfs­umhverfi faglærða söngvara á Íslandi.

Hann er djúpi bassinn sem vakti athygli fyrir dagbókar­færslur sínar, Dagbók óperu­söngvara, í sóttkví í miðjum Covid-faraldri. Bjarni Thor Kristinsson starfar þó aðallega við óperusöng erlendis. Hann hélt nýverið upp á 25 ára söng­afmæli á sviði, en hefur þó verið mun lengur í sviðs­listum, alveg síðan hann var barn.

Bjarni kemur úr Garðinum, fékk leikhús­bakteríuna snemma og steig fyrst á svið 10 ára. Hann spilaði á gítar og söng í kór en hugsaði aldrei um að verða söngvari. „Ég var í stjórnmála­fræði, stúdenta­pólitík, kenna í grunn­skóla, eignast börn og söngurinn var svo þarna líka.“ 

Óperusviðið kveikti áhugann á söngnum

Bjarni lærði söng hjá Ragnheiði Guðmunds­dóttur og fylgdi henni síðar í Söng­skólann í Reykjavík. Þar heyrði hann af áheyrnar­prufu fyrir Messías eftir Handel á Lista­hátíð árið 1992 undir stjórn Jóns Stef­ánssonar. Bjarni gekk kokhraustur í áheyrna­prufu sem gekk ekki alveg sem skyldi. „Ég var svo stressaður í prufunni að ég komst ekki í gegnum fyrsta langa frasann, fékk að byrja aftur, klikkaði í þriðja sinn og labbaði út. Ég sat síðan fyrir utan og hlustaði á vini mína og aðra syngja og er á leiðinni út þegar ég hugsa, „ja, ég var ekki alveg það góður – en ég er ekki alveg svona lélegur Þannig að ég fór aftur inn, söng aftur og landaði hlut­verkinu.“

Þetta varð þetta til þess að Bjarni tók þá ákvörðun að reyna að verða atvinnu­söngvari og fór tveimur árum síðar í óperunám í Tónlistar­háskólanum í Vín. Fljótlega eftir að hann byrjaði í skólanum fór hann að vinna sem atvinnu­söngvari og áttaði sig á því að hann hefði eitthvað í þetta. „Þegar ég fann óperu­sviðið kviknaði áhuginn.“ Bjarna var boðin fastráðning hjá Þjóðar­óperunni (Volksoper) í Vín og þar starfaði hann í þrjú ár sem aðalbassi. „Ég var heppinn með tíma­setningu og það sem rak á mínar fjörur.“

Erfitt í harkinu

Bjarni flutti út til Vínar með fjöl­skylduna, en hún flutti fljótlega aftur heim. „Eldri dóttir mín er með downs [heilkenni] og þessi félags­legi pakki er bara ekki nógu góður þarna úti.“ Þegar hann lauk fastráðningu í Þjóðar­óperunni ákvað hann að starfa frekar í lausa­mennsku þrátt fyrir mörg boð um fastráðningar. „Ég valdi þessa braut. Mig langar að búa hérna heima og þá er enginn annar möguleiki en að vera í lausa­mennsku.“ Bjarni segir það erfitt að vera í harkinu. „Íslenskt samfélag togar mig heim, en ekki tónlistar­lífið.“

 Bjarni segir að það geti verið kostnaðar­samt að starfa í lausa­mennsku. Undir­búningur fyrir hlutverk sé algjör­lega á kostnað söngvaranna, hvort heldur þeir geri það sjálfir eða með aðstoð annarra. Fastráðnir söngvarar við óperuhús fá þessa þjónustu frá sjálfu húsinu. Kosturinn sé hins vegar sá að í lausa­mennsku geti maður frekar valið sér hlutverk, en fastráðnir söngvarar séu settir í hlutverk.

25 ár á sviðiBjarni Thor starfar aðal­lega við óperu­söng erlendis. Hann hélt nýverið upp á 25 ára söngafmæli á sviði, en hefur þó verið mun lengur í sviðs­listum, alveg síðan hann var barn.

Barbapabbi á sviði

„Ég er óperu­söngvari, sem er minn miði inn í tónlistar­heiminn, en ég brenn fyrir leik­húshliðinni á söngnum,“ segir Bjarni sem fór að hugsa um sjálfan sig eins og Barba­pabba á sviði. „Hann gat breytt sér í allt. Það gat verið góður eigin­leiki að vera þú sjálfur, en geta lagað þig að aðstæðum á hverju sviði.“ Þessi eigin­leiki hefur nýst Bjarna vel í starfi. Leik­stjórar eru misjafnir og áherslur hverrar sýningar mismun­andi. Sjálfur hefur Bjarni leikstýrt þó nokkrum sýningum hér heima og finnst það ákaflega skemmtileg áskorun. „Það er þetta með leikhús­bakteríuna,“ segir hann kíminn. 

 Það mætti segja að Bjarni sé ansi snar í snúningi og fljótur að laga sig að nýjum aðstæðum. „Ég hef gert töluvert af innstökki og oft sungið í sýningum án þess að fá æfingu. Þá horfir maður á upptöku af sýningunni og lærir hlut­verkið í flugvél á leiðinni, en það er mjög gaman og þá eru allir með þér í liði.“

Fastagestur í Berlín í fimmtán ár

Fyrst stökk Bjarni fyrirvara­laust inn í hlutverk í Berlín árið 1998. „Þá var ég nýbúinn að syngja stórt hlutverk Volksoper í óperunni Zar und Zimmermann, sem inni­heldur mikla tónlist og mikinn texta. Þegar ég kem heim bíða mín svo skilaboð frá Ríkis­óperunni í Berlín um að söngvarinn þeirra verði mögulega veikur daginn eftir og ég segi strax já! Ég var svo eiginlega að vonast daginn eftir að þetta yrði ekki því þetta var allt önnur uppfærsla af Zar und Zimmermann.“ Bjarni var mættur 2–3 tímum fyrir sýningu, sá leik­myndina, hitti hljóm­sveitina, söngvara og aðstoðar­leik­stjórann. „Svo náði ég bara að spinna í þrjá klukku­tíma,“ segir Bjarni. „En þetta gekk ótrúlega vel og ég var fasta­gestur í Berlín næstu fimmtán árin.“

Óperuhús á heimsvísu skiptast í A, B og C flokka eftir stærð hljómsveita. Það er reynsla Bjarna að gæðin séu ekki meiri þótt húsin séu stærri, því oft þegar húsin eru orðin stór og með meiri pening, sé þetta orðið svo mikill business. „Stærra hús, meiri peningur og meiri möguleiki á alls konar dirty business. Þá fer sjálf listin að mjakast niður.“ Bjarni hefur aldrei sungið í minna en A húsi en þó aldrei sungið á Metropolitan Opera, Staatsopera eða Royal Opera House í Covent Garden. „En ég hef stokkið inn í hlutverk í La Scala og hef eiginlega sungið í öllum öðrum húsum sem skipta máli.“ Bjarni hefur sungið víða á Ítalíu. „Ég hélt að Scala væri mun betra en hin húsin á Ítalíu en þar var bara sama skipulags­leysið,“ segir hann hlæjandi.

„Íslenska óperan hefði mögu­lega aldrei átt að flytja í Hörpu, því þar er ekki pláss fyrir hana og þar skortir annan sal með leik­hússviði.“

Óperan orðin eins og skúffufyrirtæki

Bjarni syngur töluvert á Íslandi, m.a. með Íslensku óperunni. „Ég söng með öllum óperu­stjórum Íslensku óperunnar, m.a. í sýningunum Évgení Onegin, Galdra­lofti, Brott­náminu úr kvenna­búrinu, Ástar­drykknum, Töfra­flautunni, Rakaranum í Sevilla og Carmen.“ Þegar Íslenska óperan er borin saman við önnur óperuhús sem Bjarni hefur starfað við segir hann að þeir sem stofnuðu hana hafi gert vel, bæði stjórn­endur og val þeirra á listrænu starfs­fólki. Hins vegar sé hún nú orðin eins og eitthvert skúffu­fyrirtæki. „Íslenska óperan hefði mögulega aldrei átt að flytja í Hörpu, því þar er ekki pláss fyrir hana og þar skortir annan sal með leikhús­sviði. Hér vantar nothæft óperuhús til frambúðar.“

„Það er fárán­legt að halda það að það sé bundið í gen­unum okkar að fíla ekki lengur klass­íska tón­list.“

Hlutverk Ríkisútvarpsins að styrkja klassíska tónlist

Bjarni hefur það á tilfinningunni að það séu fáir sem lifi á því að syngja á Íslandi og þeir sem geri það séu með alla anga úti. Þannig sé varla hægt að tala um starfs­umhverfi söngvara. Bjarni segir að margir velti því fyrir sér af hverju að eyða peningum í listform sem almenningur hefur ekki mikil tengsl við. En hann ítrekar að óperu­söngur sé gamalt listform sem þarf að hugsa ef til vill upp á nýtt, en þar gilda samt önnur lögmál heldur en í því sem er hipp og kúl í dægur­menningunni. Bjarni segir að í mörgum löndum sem við berum okkur saman við er settur peningur í listir þrátt fyrir að hún sé ekki vinsælasta formið þessa stundina. Hlutverk Ríkis­útvarpsins er að styrkja klassíska tónlist en hún er ekki lengur valin í besta útsendingar­tímann, þar sem hún var áður. „Þetta hangir líka saman við það að það er ekki nógu mikið að gerast í íslenska óperu­heiminum eða jafnvel líka klassíska heiminum til þess að fjöl­miðlarnir og sjón­varpið sérstak­lega finnist réttmætt að sýna það.“

 Bjarni telur að það sé dvínandi áhugi á klassískum söngvurum með nýrri kynslóð, en það eigi ekki að vera meitlað í stein að það sé svoleiðis. „Hið opinbera hefur stór tækifæri til að nýta allt þetta fólk sem er að stunda þetta og það er fáránlegt að halda að það sé bundið í genunum okkar að fíla ekki lengur klassíska tónlist.“ Bjarni segir Íslendinga upp til hópa elska leikhús og það séu mörg sóknar­færi fyrir klassíska tónlist, en það sem gerist oft þegar þessi umræða fer í gang er að háværar raddir þröng­sýnna eldri kynslóða vilji óperuna í gamla sama forminu. Að hans mati þurfi Óperan að endur­skoða erindi sitt við almenning í nútímanum.

 Bjarni segir vanta atvinnu­söngkór. Hann bendir á að Sinfónían velji sér reglulega samstarf við áhugamanna­kóra og borgi þá ekki atvinnu­fólki fyrir. „Væri hið sama gert fyrir önnur hljóðfæri?“ spyr Bjarni. „Ég þekki fjórar systur sem kunna á fiðlu. Þær geta komið án þess að fá greitt. Er þetta boðlegt?“ Bjarna finnst að atvinnukór ætti að vera til hér á landi eins og alls staðar annars staðar og söngvarar að eiga möguleika á fastráðningu. „En það þarf að setja skýrar línur, hvað er þessi kór? Atvinnukór hefur marga vettvanga.“

„Ég þekki fjórar systur sem kunna á fiðlu. Þær geta komið án þess að fá greitt. Er þetta boð­legt?“

Styrkir snúast um að skapa gott starfsumhverfi

„Einhverra hluta vegna virðast styrkir og list­sköpun ekki ná saman hjá ákveðinni kynslóð.“ Síðustu ár hefur aðeins verið bætt í styrkja­kerfið og listamenn hafa að auki sameinast í verkefnum, segir Bjarni. Honum finnst meiri sátt um að dreifa þurfi styrkjum hjá söngvurum annað en hjá rithöfundum þar sem menn sitja mjög fastir á sínu. „En það þarf svo sannarlega að blása í seglin í okkar samfélagi ef þetta á yfir höfuð að verða eitthvað og það er pólitísk ákvörðun. Ef Þjóðar­óperan verður stofnuð og allt fer af stað, þá verður grasrótin að eiga aðgang að fé þótt hann verði aldrei áskriftar­peningur, annars er það ekki grasrót.“ Bjarni segir styrki snúast um að skapa gott starfs­umhverfi. Að gefa fólki tíma og séns sem er að sinna listinni fyrir samfélagið. 

 Bjarni Thor og sambýlis­kona hans, Lilja Guðmunds­dóttir söngkona, eignuðust stúlku, Ísafold Heiðu, á síðasta ári og því ætlar hann að minnka við sig ferðalög á næstu misserum og fara í harkið hér heima. Bassinn hljóm­mikli mun þó ferðast til Kína þar sem á að flytja allan Niflunga­hringinn í nokkrum lotum til ársins 2026. Sökum Covid hefur þurft að fresta sýningum þar nokkuð oft en Bjarni er vongóður um að hann verði fasta­gestur í austur­vegi næstu árin.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Starfsumhverfi klassískra söngvara

ViðtalStarfsumhverfi klassískra söngvara

Fáránleg ákvörðun fyrir klassíska söngkonu

Björk Níels­dóttir er söngkona, trompet­leikari, jazzari, poppari, rokkari, klassíker, þjóðlaga­grúskari, tónsmiður og sviðs­leikkona. Hún ræðir hér starfs­umhverfi sitt við Thelmu Hrönn Sigurdórs­dóttur. Viðtalið er sprottið af rannsókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í samvinnu við Nýsköpunar­sjóð og Heimildina – um starfs­umhverfi faglærða söngvara á Íslandi.

Mest lesið undanfarið ár