Fáránleg ákvörðun fyrir klassíska söngkonu

Björk Níels­dóttir er söngkona, trompet­leikari, jazzari, poppari, rokkari, klassíker, þjóðlaga­grúskari, tónsmiður og sviðs­leikkona. Hún ræðir hér starfs­umhverfi sitt við Thelmu Hrönn Sigurdórs­dóttur. Viðtalið er sprottið af rannsókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í samvinnu við Nýsköpunar­sjóð og Heimildina – um starfs­umhverfi faglærða söngvara á Íslandi.

Björk Níels­dóttir er söngkona, trompet­leikari, jazzari, poppari, rokkari, klassíker, þjóðlaga­grúskari, tónsmiður og sviðs­leikkona. Hún var valin bjartasta vonin í flokknum sígild og samtíma­tónlist á Íslensku tónlistar­verð­laununum árið 2019. Samt segist hún oft þurfa að sanna að hún sé dugleg og góð í öllu því sem hún gerir í stað þess að vera „bara söngkona“.

Björk lærði á trompet til tvítugs, en móðir hennar skráði hana í söngnám á unglings­árunum og fljótt tók söngurinn yfir. Hún söng í kórum en var mestmegnis í lúðra­hljómsveitum og hljómsveitum með vinum sínum. Björk tók mörg sumur þátt í skapandi sumar­störfum í Hafnar­firði og flutti tónlist um víðan völl, skipulagði tónlistar­hátíðir og annað slíkt. „Okkur var treyst fyrir ýmsu í tónlistar­miðlun, vorum ung og skapandi einstaklingar.“

Björk var aðeins tvítug þegar hún fór á tveggja ára tónleika­ferðalag með Björk Guðmunds­dóttur sem trompet­leikari í íslenska kvenna­brass­bandinu Wonderbrass. Eftir það langaði hana að reyna á sönginn og lá leiðin beint í klassískt söngnám í Tónlistar­háskólanum í Amsterdam. 

Ég var algjör unglingur að fríka út

Björk féll fyrsta árið sitt í bakkalár­náminu og var sett í skammar­krókinn. „Ég upplifði svo mikið frelsi, átti mikinn pening eftir túrinn og var algjör unglingur að fríka út. Ég hafði alltaf verið svo stillt, en það er samt ekki afsökun fyrir að láta eins og bjáni.“ Eftir þessa reynslu tók hún námið mjög alvarlega og setti stefnuna á að útskrifast með hæstu einkunn. Kennarar voru mjög strangir og vildu stýra því hvernig hún hagaði sér, hverja hún umgekkst og hvernig hún átti að klæða sig. „Það var rosalega mikið verið að segja manni hvernig manneskja maður átti að vera,“ segir Björk. Eftir strangt bakka­lárnám hélt Björk áfram í skólanum í meistaranám í klassískum söng. „Meistara­námið  var mun opnara. Þá opnuðust fleiri dyr og námið varð loksins mun skemmtilegra.“ 

Styrk­leiki Bjarkar sem tónlistar­maður er fjöl­breytni og hún einsetti sér að kynnast ólíkum stílum í náminu þrátt fyrir að vera í klassísku tónlistar­námi. „Ég átti vini í öllum deildum og ég söng með þeim öllum, því ég var að prófa mig áfram. Jazz, blús, barokk, allt þótti mér skemmtilegt.“ Björk segir þó að að viðmótið í skólanum hafi verið að maður ætti að einblína á einn stíl. Henni fannst hún fá lítinn stuðning frá söng­kennara sínum sem kunni ekki að meta áherslur hennar á nútíma­tónlist. „Persónuleg skoðun kennarans á ekki að skipta máli þegar kemur að verkefna­vali. Snobbið getur stundum flækst fyrir.“

„Per­sónu­leg skoðun kenn­ar­ans á ekki að skipta máli þegar kemur að verk­efna­vali. Snobbið getur stundum flækst fyrir.“

Björk útskrifaðist með láði, fékk sérstaka viðurkenningu fyrir list­sköpun og söng­kennarinn bað hana afsökunar. „Kennarinn endaði á að segja, fyrir­gefðu Björk, þú ert eins og þú ert. Ég reyndi að breyta þér en það er ekki hægt.“ Björk reyndi að taka þessi orð ekki nærri sér. „Ég hugsaði, whatever, en maður verður samt svo ástfanginn af kennaranum sínum þannig að í manni blundar eðlilega smá samviskubit.“ Söng­kennarar eiga það til að reyna að setja nemendur sína í kassa. Í staðinn fyrir að sýna pallettu af öllu sem hægt er að gera. Fókusinn virðist ekki alltaf vera á því að kenna manni að syngja. „Það tók mig langan tíma að fyrirgefa sjálfri mér fyrir að vera eins og ég er,“ viðurkennir Björk.

Ever/ReveHér er Björk í sýn­ing­unni Ever/Reve.

Strategísk ákvörðun að lifa á tónlistinni

Fyrsta verkefni Bjarkar eftir útskrift var tónleika­ferð með hljóm­sveitinni Florence and the Machine, sem bakrödd og trompet­leikari. „Þetta var algjör­lega fáránleg ákvörðun fyrir klassíska söngkonu, en samt bara ofboðs­lega fínt því þá átti ég pening og það varð þá strategísk ákvörðun að lifa á tónlistinni.“ Síðastliðin sjö ár hefur hún túrað um alla Evrópu með spuna- og jazzhljómsveitinni Kaja Draksler Octet. Hún syngur einnig með samsuðu­leikhúsinu Silbersee og  jazzrokkbandinu Spinifex. „Við túruðum sl. sumar í Portúgal, hressandi að vera á svona rokk og ról túr. Þetta var svo sveitt!“ segir Björk hlæjandi. „Við vorum ca 10 manns í bíl með enga loft­kælingu, í hita­bylgju að keyra upp og niður Portúgal og enduðum síðan sveitt á að taka upp plötu.“

Björk er nýflutt heim og segist þessa stundina vera að athuga hvort það sé hægt að búa á Íslandi og ferðast út í verkefni. Hún er öflug í íslenskri tónlistar­senu og brennur fyrir að skapa og flytja íslenska tónlist. Björk er meðlimur í tónlistar­hópnum Stirnir Ensemble og garfar í þjóðlaga­tónlist með hljóm­sveitinni Gadus Morhua. Einnig hafa hún og Þóra Margrét Sveins­dóttir víólu­leikari skapað saman tónlist undir nafninu Dúplum Dúó. Björk segir að hún elski að koma heim en starfs­umhverfið sé erfitt. „Það er enginn atvinnukór, enginn söngvari með fasta stöðu. Íslenska óperan er eitt stórt spurningar­merki fyrir okkur öll. Enginn fyrir­söngur [VJ5], engin stefna og ekkert menningar­prógramm fyrir börn til að kynnast klassískri tónlist. Ef börn læra ekki að kynnast sönglist og óperu frá unga aldri þá eru þau ekki að fara að mæta á tónleika þegar þau eru eldri. Það eru glötuð tækifæri þar.“

Söngvarar þurfa að berjast við margra ára fordóma

Björk finnst viðmótið á Íslandi gagnvart söngvurum undarlegt, meira að segja frá hljóðfæra­leikurum. „Ég þarf svo oft að sanna að ég sé klár. Sýna að ég geti talið eða lesið tónlist. Hljóðfæra­leikarar bera oft ekki virðingu fyrir söngvurunum. Það er einhver óskiljanleg kergja í gangi.“ Söngvarar eigi líka undir högg að sækja í leikhúsum. „Af hverju eru söngvarar ekki ráðnir í leikhúsin? Við kunnum alveg að leika. Kannski ættu söngvarar ekki að flytja Shakespeare, en það eru oft flókin söng­hlutverk sem leikarar ættu að sleppa.“ Henni finnst almennt mikil tregða hjá menningar­stofnunum að ráða fólk í vinnu. „Þú getur tekið lán fyrir söngnámi á Íslandi en getur ekki fengið vinnu við það. Við erum að berjast við margra ára fordóma gagnvart söngvurum allt frá mennta­stofnunum, tónlistar­skólum og lista­háskólum. Bara ef það væri menningar­stofnun sem myndi virka fyrir söngvara og ráða íslenska söngvara til að sinna íslenskum verkefnum.“

Björk segir erfitt að lifa á tónlistinni á Íslandi nema maður sé á listamanna­launum ásamt því að starfa erlendis og við athafnir. ,,Þú þarft að vera með alla anga úti, tengdur í öllum geirum og svakalega kreatífur á hverju ári, en það er ekki hægt til lengdar.“ Björk segir það afleitt að Sinfóníu­hljómsveit Íslands notist við áhugamanna­kóra og greiði þar af leiðandi ekki laun, heldur litla summu í kórsjóð. „Í Sinfóníunni geturðu vaxið í starfi, en fyrir söngvara er ekkert. Þú þarft bara að gera allt sjálfur og á endanum dregur það úr þér og mögulega endarðu annars staðar.“ Erlendis eru mörg dæmi um að atvinnu­kórar starfi í samstarfi við aðrar menningar­stofnanir. Björk segir Íslendinga þurfa að líta í þá átt. „Ég væri til í að sjá magnaðan Kór Íslands, atvinnukór þar sem fólk má vaxa í starfi. Við erum að missa af svo miklu sem tengist sönglist.“

Myndband af Vor­nótt­inni úr óper­unni Þögnin eftir Árna Krist­jáns­son og Helga R. Ingv­ars­son.
„Gísli Marteinn fær enga klass­íska tón­list­ar­menn eða jazzara til að flytja tón­list. Það vantar meiri breidd, þver­skurð af tón­list­inni.“

RÚV ekki að sinna hlutverki sínu sem menningarstofnun

Að mati Bjarkar er RÚV ekki að sinna hlutverki sínu sem menningar­stofnun. Þar er enginn vettvangur nema fyrir popp­tónlistar­menn. „Gísli Marteinn fær enga klassíska tónlistar­menn eða jazzara til að flytja tónlist. Það vantar meiri breidd, þverskurð af tónlistinni. Sinfó fær stundum að vera í sjón­varpinu og Klassíkin okkar er æðislegt fyrirbæri, en það þarf að vera dægur­umfjöllun um alls konar tónlist og vandaðri umfjöllun.“ Íslendingar eru þekktir fyrir að vera bókmennta­þjóð en það gleymist stundum að tala um hvað við erum mikil söngþjóð. „Við ræðum töluvert um bókmenntir en af hverju erum við ekki að tala um plötur?“ Björk segir RÚV hafa verið öflugt að taka upp tónleika en vandamál sé varðandi réttmætar greiðslur. „FÍH er þessa dagana að taka þetta mál fyrir og vinna að kjara­málum tónlistar­manna,“ segir hún spennt.

DúplumÞóra Margrét Sveins­dóttir og Björk Níels­dóttir.

Það er ýmislegt á döfinni hjá Björk sem er nýbúin að ljúka fjölda verkefna á Myrkum músík­dögum, m.a. Gleðilega geðrofs­leikinn eftir Guðmund Stein Gunnarsson og frum­flutning á verkum Kolbeins Bjarna­sonar með Stirni Ensemble. Fram undan eru fleiri verkefni með Dúplum dúó, Cauda Collective og nýtt leikverk Þórunnar Guðmunds­dóttur, Skoffín og skringilmenni með leik­hópnum Hnoðri í norðri.

Það vantar ekki framtakssemina hjá þessum fjölhæfa lista­manni sem er einnig að huga að hljóð­upptökum með Gadus morhua og Stirni Ensemble sem verða gefnar út á árinu. „Það er ekki dvínandi áhugi á klassískri tónlist en það vantar pláss fyrir okkur innan ríkis­batterísins,“ segir Björk með bros á vör og slær hressilega í borðið.

„Ég vil sjá starfs­grundvöll fyrir söngvara.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Starfsumhverfi klassískra söngvara

ViðtalStarfsumhverfi klassískra söngvara

Íslenskt samfélag togar mig heim, en ekki tónlistar­lífið

Bjarni Thor Kristinsson starfar aðallega við óperusöng erlendis en hann hefur þó verið mun lengur í sviðs­listum, alveg síðan hann var barn. Hann ræðir starfs­umhverfi sitt við Thelmu Hrönn Sigurdórs­dóttur. Viðtalið er sprottið upp úr rannsókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í samvinnu við Nýsköpunar­sjóð og Heimildina – um starfs­umhverfi faglærða söngvara á Íslandi.

Mest lesið undanfarið ár