3,4 milljörðum minna í bankaskatt á fyrri hluta árs miðað við sama tíma í fyrra

Stóru við­skipta­bank­arnir þrír skil­uðu allir árs­hluta­upp­gjörum sínum í vik­unni. Vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs var lækkun banka­skatts flýtt og er hann nú 0,145 pró­sent. Breyt­ing­una má glöggt sjá í árs­hluta­reikn­ingum bank­anna.

Bankarnir skiluðu misgóðum uppgjörum í vikunni.
Bank­arnir skil­uðu mis­góðum upp­gjörum í vik­unni. Mynd: Samsett

Í árs­hluta­reikn­ingum stóru við­skipta­bank­anna þriggja; Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ans kemur fram að banka­skattur á fyrri hluta þessa árs nemi alls 2,3 millj­örðum króna, sam­an­borið við rúma 5,7 millj­arða króna á sama tíma­bili í fyrra. Greiðslur bank­anna vegna banka­skatts lækka því um 3,4 millj­arða króna milli tíma­bila eða um 60 pró­sent. Bank­arnir þrír birtu allir árs­hluta­upp­gjör sín í vik­unni.

Banka­skattur er sér­stakur skattur sem lagður er á heild­ar­skuldir fjár­mála­fyr­ir­tækja. Í fyrra var frum­varp um lækkun banka­skatts sam­þykkt. Skatt­ur­inn var þá 0,376 pró­sent og átti að lækka niður í 0,145 pró­sent í þremur áföngum á árunum 2021 til 2024. Í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins var lækk­un­inni flýtt og gjald­hlut­fallið er því komið niður í 0,145 pró­sent vegna skulda í árs­lok 2020. Breyt­ing­una má glöggt sjá í árs­hluta­reikn­ingum bank­anna.

Hlutfall bankaskatts af rekstrarkostnaði lægst hjá Arion

Arion banki var sá eini af stóru við­skipta­bönk­unum þremur sem skil­aði hagn­aði á fyrri helm­ingi árs­ins en upp­gjör bank­ans var birt síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. Hagnaður bank­ans á fyrri hluta árs­ins nam rúm­lega 2,7 millj­örðum króna sam­an­borið við rúm­lega 3,1 millj­arð á sama tíma­bili í fyrra. Á fyrri hluta þessa árs leggj­ast 655 millj­ónir á bank­ann í formi banka­skatts sam­an­borið við rúm­lega 1,8 millj­arð í fyrra.

Í árs­hluta­reikn­ingi bank­ans er banka­skatt­ur­inn ekki flokk­aður sér­stak­lega með rekstr­ar­kostn­aði líkt og gert er hjá hinum bönk­unum. Inni í þeim flokki er launa­kostn­aður og annar rekstr­ar­kostn­aður, sem er til að mynda hús­næð­is­kostn­aður, afskriftir, kostn­aður vegna tölvu­kerfa, kostn­aður vegna aðkeyptrar þjón­ustu og fram­lag í trygg­inga­sjóð inni­stæðu­eig­enda og fjár­festa.

Rekstr­ar­kostn­aður á fyrri helm­ingi árs­ins nam 12,6 millj­örðum króna sam­an­borið við tæpa 13,5 millj­arða í fyrra og hefur hann því lækkað um tæpan millj­arð. Ef banka­skatt­ur­inn er lagður saman við rekstr­ar­kostn­að­inn og hlut­fall banka­skatts­ins af heild­inni skoðað, þá sést að hlut­fall banka­skatts­ins af kostn­aði á fyrri helm­ingi árs­ins var 4,9 pró­sent. Í fyrra nam þetta sama hlut­fall tæpum 11,9 pró­sentum.

Helmingur af lækkun rekstrarkostnaðar tilkominn vegna lækkunar bankaskatts

Íslands­banki birti upp­gjör sitt líka á mið­viku­dag. Afkoma bank­ans var nei­kvæð um sem nemur 131 milljón króna á fyrri helm­ingi árs­ins, sam­an­borið við 4,7 millj­arða hagn­aði á sama tíma­bili í fyrra. Á fyrri helm­ingi árs­ins nemur reikn­aður banka­skattur 758 millj­ónum króna sam­an­borið rúman 1,8 millj­arð á sama tíma í fyrra.

Í árs­hluta­reikn­ingi er banka­skatt­ur­inn flokk­aður undir rekstr­ar­gjöld ásamt launa­kostn­aði, fram­lagi í trygg­inga­sjóð inni­stæðu­eig­enda og fjár­festa og öðrum rekstr­ar­kostn­aði. Heild­ar­rekstr­ar­kostn­aður á fyrri hluta árs­ins nam rétt tæpum 12,8 millj­örðum í ár sam­an­borið við tæpa 14,8 millj­arða á sama tíma í fyrra. Rekstr­ar­kostn­aður bank­ans lækkar um tæpa tvo millj­arða, inni í þeim tölum er banka­skatts­lækk­unin sem nemur tæp­lega 1,1 millj­arði. Hlutfall banka­skatts­ins í heild­ar­rekstr­ar­kostn­aði bank­ans fer úr 12,3 pró­sentum í fyrra niður í 5,9 pró­sent í ár.

Lækkun rekstrarkostnaðar öll vegna lækkunar bankaskatts hjá Landsbanka

Lands­bank­inn birti upp­gjör sitt á fimmtu­dag. Bankinn tap­aði 3,3 millj­örðum á fyrri hluta þessa árs sam­an­borið við 11,1 millj­arðs hagnað á sama tíma í fyrra. Banka­skattur fyrir fyrri helm­ing árs­ins nemur 875 millj­ónum sam­an­borið við tæpan 2,1 millj­arð í fyrra.

Í til­kynn­ingu frá bank­anum til kaup­hallar vegna upp­gjörs­ins er sér­stak­lega tekið fram að rekstr­ar­kostn­aður bank­ans hafi lækkað. Í til­kynn­ing­unni segir: „Rekstr­ar­kostn­aður bank­ans lækk­aði um 1,1 millj­arð króna á milli tíma­bila og nam 13,2 millj­örðum króna á fyrri helm­ingi árs­ins 2020, sam­an­borið við 14,3 millj­arða króna á sama tíma­bili árið áður, sem er lækkun um 8%. Þar af var launa­kostn­aður 7,6 millj­arðar króna sam­an­borið við 7,4 millj­arða króna árið áður. Annar rekstr­ar­kostn­aður var 4,6 millj­arðar króna sam­an­borið við 4,9 millj­arða króna á sama tíma­bili árið áður.“

Lækkun rekstr­ar­kostn­aðar bank­ans á tíma­bil­inu er því öll til­komin vegna lækk­unar banka­skatts­ins. Laun og launa­tengd gjöld hækk­uðu milli ára um 277 millj­ónir en annar rekstr­ar­kostn­aður lækk­aði um 226 millj­ónir milli ára. Þannig rekstr­ar­kostn­aður, annar en banka­skattur hækk­aði um 51 milljón milli ára. Banka­skatt­ur­inn lækk­aði um 1,2 millj­arða en rekstr­ar­kostn­aður í heild lækk­aði um rúman 1,1 millj­arð. Hlutfall banka­skatts­ins af heild­ar­rekstr­ar­kostn­aði bank­ans á fyrri hluta árs­ins var 6,6 pró­sent en á sama tíma­bili í fyrra var hlut­fall hans af heild­ar­rekstr­ar­kostn­aði 15 pró­sent.

Lækkun bankaskatts hefur leitt til vaxtalækkana

[links]

Hús­næð­is­vextir hafa lækkað mikið upp á síðkastið, sér­stak­lega vegna stýri­vaxta­lækk­unar Seðla­bank­ans. En banka­skattur hefur einnig haft áhrif til lækk­unar vaxta. Í lok mars reið Arion banki á vaðið og til­kynnti um vaxta­lækkun í kjöl­far lækk­unar banka­skatts. Í til­kynn­ingu frá bank­anum kom fram að áform stjórn­valda um að lækka banka­skatt hafi skapað svig­rúm til breyt­inga á vöxtum. Lands­bank­inn til­kynnti svo um vaxta­lækkun vegna lækk­unar banka­skatts í fyrri hluta apríl.

Vegna stýri­vaxta­lækk­unar hafa vextir allra bank­anna þriggja lækkað síðan þá. Vaxta­kjör bank­anna urðu nýlega hag­stæð­ari heldur en vaxta­kjör líf­eyr­is­sjóða í fyrsta sinn í mörg ár. Mest er ásóknin í óverð­tryggð lán með breyti­legum vöxtum þessa dag­ana og bjóða bank­arnir þrír upp á mjög svipuð vaxta­kjör á þeim lánum. Hjá Íslands­banka og Lands­banka eru vextir á slíkum lánum 3,50 pró­sent en hjá Arion Banka eru vext­irnir 3,54 pró­sent. Hægt er að bera saman láns­kjör bank­anna hjá Aur­björgu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár