„Umhverfismálin eiga að vera alls staðar“

Katrín Jak­obs­dóttir seg­ist horfa á boð­aða stækkun Vatna­jök­uls­þjóð­garðar sem áfanga í átt að þjóð­garði á borð við hálend­is­þjóð­garð­inn, sem bakkað er með í nýja stjórn­ar­sátt­mál­anum. Kjarninn ræddi umhverf­is­mál við Katrínu í gær.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórnin ætlar að setja sér sjálf­stætt mark­mið um að árið 2030 verði búið að draga úr þeirri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem er á ábyrgð Íslands um 55 pró­sent miðað við þá losun sem var árið 2005. Um þetta er fjallað í stjórn­ar­sátt­mál­anum sem kynntur var í gær.

Þetta eru nokkur tíð­indi, en Ísland hefur verið í sam­floti með Noregi og Evr­ópu­sam­band­inu um mark­miða­setn­ingu við sam­drátt los­unar og ekki sett sér sjálf­stæð mark­mið um sam­drátt eins og nú er gert. Þrátt fyrir að í ESB-sam­flot­inu sé nú stefnt að 55 pró­senta sam­drætti los­unar árið 2030 m.v. 2005 hefur hlut­deild Íslands í hinu sam­eig­in­lega mark­miði um sam­drátt los­unar verið öllu lægra, fram til þessa.[links]

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í sam­tali við Kjarnann eftir kynn­ingu stjórn­ar­sátt­mál­ans á Kjar­vals­stöðum í gær að hún teldi þetta bæði „metn­að­ar­fullt og raun­hæft“ mark­mið, en flokkur hennar tal­aði fyrir því í kosn­inga­bar­átt­unni að Ísland ætti að setja sér það mark­mið að draga úr losun um að minnsta kosti 60 pró­sent fyrir árið 2030 miðað við 2005.

„Ég veit að það eru önnur lönd með metn­að­ar­fyllri mark­mið, en þau eru með annan los­un­ar­prófíl en Ísland. Ég held að við eigum tæki­færi á að ná þessu mark­miði og held að þetta skipti veru­lega máli gagn­vart heim­inum, að sýna að við séum ekki að hætt að vinna, við höfum verið dug­leg að upp­færa okkar mark­mið, bæta í okkar aðgerðir og þetta er enn eitt dæmið um það,“ sagði Katrín við Kjarnann.

Olíuleitaryfirlýsing ekki bundin í lög

Í stjórn­ar­sátt­mál­anum er einnig sett fram yfir­lýs­ing um að rík­is­stjórnin muni ekki gefa út nein leyfi til olíu­leitar í efna­hags­lög­sögu Íslands. Spurð um hvort þetta verði bundið í lög svarar Katrín neit­andi.

„Fyrst og fremst er þetta bara okkar yfir­lýs­ing, eins og mjög margar þjóðir hafa verið að gera. Græn­lenska rík­is­stjórnin gerði slíkt hið sama fyrr á þessu ári. Þetta er skýrt, á meðan að þessi rík­is­stjórn er við völd verður þetta ekki gert,“ segir Katrín.

„Augljóslega ekki eins stór þjóðgarður og lagt var upp með“

Athygli vakti við kynn­ingu sátt­mál­ans í gær að fallið er frá áformum um að stofna þjóð­garð á mið­há­lend­inu í þeirri mynd sem lagt var upp með á síð­asta kjör­tíma­bili. Þess í stað segir í sátt­mál­anum að með breyt­ingum á lögum um Vatna­jök­uls­þjóð­garð verði stofn­aður „þjóð­garður á þegar frið­lýstum svæðum og jöklum í þjóð­lendum á hálend­inu“.

„Þetta er aug­ljós­lega ekki eins stór þjóð­garður og lagt var upp með hér á síð­asta kjör­tíma­bili. Sú útfærsla mætti mik­illi and­stöðu víða um land,“ segir Katrín og bætir við að hún líti á þetta eins og verið sé að „taka fyrsta áfang­ann“ að mið­há­lend­is­þjóð­garði.

„Við gerum okkur grein fyrir því að svona þjóð­garður verður ekki stofn­aður í and­stöðu við sveit­ar­fé­lög hring­inn í kringum landið,“ segir Katrín. Hún seg­ist hafa farið á fundi á öllu Suð­ur­land­inu og þar hafi mið­há­lend­is­þjóð­garðs­málið verið „mjög til umræðu“.

„Þá segi ég, það er betra að gera hlut­ina í áföngum og þá í eins góðri sátt og hægt er.“

Mesti talsmaður mikilla breytinga á ráðuneytaskipan

Katrín hljóm­aði ekki mjög skúffuð yfir því í sam­tali við blaða­manna að flokkur hennar haldi ekki lengur á ráðu­neyti umhverf­is­mála. „Umhverf­is­málin eiga að vera alls staðar,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra ein­fald­lega, innt eftir við­brögðum við því að nú væri mála­flokk­ur­inn kom­inn í aðrar hendur en yfir­lýsta „umhverf­is­flokks­ins“ í rík­is­stjórn­inni.

„Ég var sjálf mesti tals­maður þess að við myndum gera miklar breyt­ingar á skipan ráðu­neyta og eins þessar stjórn­kerf­is­breyt­ingar. Við erum með stefnu í öllum mála­flokkum og það er ekk­ert sem segir að maður eigi að sitja alltaf í sömu ráðu­neyt­unum,“ sagði Katrín og bætti við að ýmis stór verk­efni bíði í þeim ráðu­neytum sem Vinstri græn tóku að sér í stað ráðu­neyta umhverfis- og heil­brigð­is­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár