35 Sýrlendingar koma til landsins á morgun - þrjár fjölskyldur hættu við

35 sýr­lenskir flótta­menn munu koma til Íslands seinni part­inn á morgun til að setj­ast hér að. Fólkið eru kvótaflótta­menn sem hafa dvalið í flótta­manna­búðum í Líbanon und­an­farin ár. Þau koma með flugi frá Beirút, en milli­lenda í París. Eygló Harð­ar­dóttir félags­mála­ráð­herra mun taka á móti hópnum í Leifs­stöð klukkan 16.30 á morgun ásamt þeim aðilum sem helst tengj­ast mál­efnum flótta­fólks hér á landi.

Hópurinn sam­anstendur af sex fjöl­skyldum, 13 full­orðnum og 22 börnum. Fjórar fjöl­skyldur koma til með að setj­ast að á Akureyri og tvær í Kópavogi. Ein fjöl­skylda til við­bótar er vænt­an­leg til lands­ins síðar, en barns­haf­andi kona í þeirri fjöl­skyldu reynd­ist ekki fær um að ferð­ast til lands­ins nú.

Upp­haf­lega var gert ráð fyrir því að 55 flótta­menn kæmu og sett­ust að á Akureyri, í Kópavogi og í Hafn­ar­firði. Þrjár fjöl­skyldur, sem höfðu áður lýst yfir áhuga á að setj­ast að á Íslandi, sáu sér ekki fært að koma. Nú vinna íslensk stjórn­völd að því að sam­starfi við Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna að und­ir­búa komu ann­arra flótta­manna í þeirra stað. Vel­ferð­ar­ráðu­neytið segir að stefnt sé að því að sá hópur komi til lands­ins innan nokk­urra vikna.

Sautján Sýrlendingum veitt hæli

Útlend­inga­stofnun greindi frá því í dag að í fyrra sótti met­fjöldi um hæli eða aðra vernd á Íslandi. 82 ein­stak­lingum var veitt slík vernd, og Sýr­lend­ingar voru þar fjöl­menn­astir, en 17 Sýr­lend­ingum var veitt vernd hér á landi í fyrra. Átta Rússar fengu vernd, sex Íranir, sex Níger­íu­menn og sex Úkra­ínu­menn. Allt í allt fékk fólk af 26 þjóð­ernum vernd á Íslandi í fyrra.

Alls sóttu 354 ein­stak­lingar um vernd hér á landi, þar af 29 Sýr­lend­ingar. Nið­ur­staða fékkst í 323 málum sem Útlend­inga­stofnun hafði á sínu borði. Eins og fyrr segir fengu 17 Sýr­lend­ingar vernd.

82 umsóknir af þessum 354 voru ekki teknar til efn­is­legrar með­ferðar vegna Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar, það er að umsækj­endur höfðu ýmist fengið dval­ar­leyfi í öðru landi eða mál þeirra voru til með­ferðar í öðru ríki.

Fjölgun umsókna um vernd er í takt við það sem gerð­ist í nágranna­löndum okkar, þar sem fjölgun umsókna hefur víða marg­fald­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár