Danskur eftirlíkingarmiðbær í Kína

Er nokkuð 1. apríl sagði Anne Mette Knattrup fram­kvæmda­stjóri ferða­mála í Randers á Jótlandi þegar hún frétti að í Kína stæði til að reisa nákvæma eft­ir­lík­ingu mið­bæj­ar­ins í Randers. En þetta var ekki 1. apr­íl­frétt og Kín­verjum er full alvara.

Gamla ráðhúsið í Randers
Gamla ráð­húsið í Randers Mynd: Wiki Commons

Kín­verjum sem leggja land undir fót fjölgar hratt þessi miss­erin. Ástæð­urnar eru bættur efna­hagur almenn­ings þessa stóra ríkis í austri. Fyrir örfáum árum áttu fáir Kín­verjar þess kost að ferð­ast til ann­arra landa en nú er öldin önnur, Kín­verjar flykkj­ast til ann­arra landa þar sem þeir eru, að minnsta kosti víð­ast hvar, auð­fúsu­gestir. Danmörk er eitt þeirra landa sem Kín­verjar leggja leið sína til og hafa mik­inn áhuga á að kynn­ast. Ein helsta ástæða þessa áhuga er sú að sögur og ævin­týri H.C. Andersen hafa lengi verið vin­sæl í Kína og farið vax­andi á síð­ustu árum.

Danir lán­uðu Litlu haf­meyj­una á heims­sýn­ing­una í Sjanghaí árið 2010, þetta var í fyrsta, og eina, sinn sem hún hefur yfir­gefið stein­inn sinn á Löngu­línu þar sem hún hefur setið frá 1913. Kín­verjar kunnu vel að meta þetta vin­ar­bragð (eins og kín­verskir ráða­menn orð­uðu það) og Lars Lökke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur hefur margoft sagt að sú ákvörðun að lána Litlu haf­meyj­una á heims­sýn­ing­una sé albesta aug­lýs­ing sem Danmörk hafi nokkru sinni fengið.

Vilja sjá fæðingarbæ skáldsins

Í Óðins­véum þar sem H.C. Andersen fædd­ist og ólst upp er safn við hann kennt. Kín­verjum sem þangað koma hefur fjölgað mjög að und­an­förnu, það þýðir auknar tekjur og atvinnu fyrir bæj­ar­búa. Flestir kín­verskir ferða­menn, sem leggja leið sína til Dan­merkur koma með skipum eða flugi til Kaup­manna­hafnar og margir þeirra fara svo í dags­ferð til Óðinsvéa.

Fleiri renna hýru auga til þess­ara ferða­manna og það á ekki síst við um ferða­mála­yf­ir­völd á Jótlandi. Fyrir nokkru var til­kynnt að á næsta ári hefj­ist beint flug milli Beijing og Billund á Jótlandi og Jótarnir búa sig nú undir að taka árlega á móti tug­þús­undum Kínverja. Bæj­ar­yf­ir­völd í Vejle hafa komið á sér­stökum kína­nám­skeiðum „Gør dig Kina Klar“, fyrir starfs­fólk versl­ana og veit­inga­staða. Til­gang­ur­inn er að starfs­fólkið læri ýmsa siði og venjur sem, um sumt, eru ólíkar því sem Danir eiga að venj­ast. Kín­verjar eru, margir hverjir, móðg­un­ar­gjarnir og því mik­il­vægt að kunna að umgang­ast þá. Ef komið er fram við þá af kurt­eisi og á þann hátt sem þeir eiga að venj­ast hafa þeir áhuga á að kynn­ast því sem Danmörk hefur uppá að bjóða. Eigandi veit­inga­staðar í Vejle segir kín­verska gesti hafa mik­inn áhuga á að prófa danskan mat, og bjór, ef þeir fái fræðslu og útskýr­ingar þjón­ustu­fólks­ins. Það komi þeim líka á óvart að Danmörk sé ekki bara Kaup­manna­höfn.

Randers í Kína

Eins og minnst var á í upp­hafi þessa pistils stendur til að reisa í Kína nákvæma eft­ir­lík­ingu mið­bæj­ar­ins í Randers. Verið er að ganga frá samn­ingum bæj­ar­yf­ir­valda í Randers og kín­versks fyr­ir­tækis, sem starfar í umboði þar­lendra stjórn­valda. Verk­efnið gengur undir nafn­inu „Randers Town“. Endanleg stað­setn­ing „mið­bæj­ar­ins“ í Kína hefur ekki verið ákveðin en þrír staðir, allir í nágrenni Sjanghaí, koma til greina. Fyr­ir­tækið sem hyggst reisa ,,Randers Town“ heitir Andersen Paradise og opn­aði í fyrra skemmti­garð í Sjanghaí, kenndan við H.C. Andersen. Und­ir­bún­ingur H.C. Andersen garðs­ins hófst árið 2009 en ýmsar ástæður urðu til þess að tefja verkið. Kostn­að­ur­inn við að koma skemmti­garð­inum á lagg­irnar nam um hálfum millj­arði danskra króna (tæpa 26 millj­arða íslenska) og fyrstu áætl­anir gera ráð fyrir að kostn­að­ur­inn við að reisa „Randers Town“ verði allt að þrisvar sinnum meiri.

Af hverju Randers?

Randers á Austur-Jótlandi er ekki bein­línis nein heims­borg. Íbúarnir eru rúm­lega 60 þús­und. Iðnaður af ýmsu tagi hefur lengi verið helsti burða­rás atvinnu­lífs­ins þótt fyr­ir­tækjum á þessu svæði hafi fækkað nokkuð á síð­ustu árum. Í bænum er þekkt safn, Randers Regnskov, eins­konar hita­belt­is­garður. Inn­an­dyra ríkir hita­belt­is­lofts­lag og þar má finna hita­belt­is­gróður og dýr sem að jafn­aði lifa ekki á svo norð­lægum slóðum. Safnið dregur að sér fjölda gesta á ári hverju. Í Randers er enn­fremur að finna safnið Memphis Mansion, safn um Elvis Presley. Stofn­and­inn, Henrik Knudsen hafði um langt skeið safnað öllu sem tengd­ist ævi og starfi rokkkóngs­ins og opn­aði safnið árið 2011. Safnið er í húsi sem Henrik Knudsen lét byggja og er nákvæm eft­ir­lík­ing íbúð­ar­húss kóngs­ins, Graceland, að öðru leyti en því að húsið í Randers er helm­ingi stærra en Graceland í Memphis. Á lóð­inni er enn­fremur nákvæm eft­ir­lík­ing húss­ins í Tupelo Miss­issippi þar sem kóng­ur­inn fædd­ist. Á síð­asta ári heim­sóttu rúm­lega 180 þús­und manns Memphis Mansion.

Þetta sem hér hefur verið nefnt er ekki ástæða þess að Kín­verjar hafa ákveðið að byggja nákvæma eft­ir­lík­ingu mið­bæjar Randers. Ástæðuna segja Kín­verjar þá að mið­bær Randers sé einn sá heil­leg­asti sem fyr­ir­finnst í Danmörku, frá tíma H.C. Andersen. Þar að auki sé mið­bær­inn ein­stak­lega skemmti­legur. „Randers Town“ verður blanda íbúð­ar­hús­næðis og versl­ana. Eins og áður var nefnt er ekki end­an­lega búið að ákveða stað­setn­ingu „Randers Town“ í Kína en ákvörðun verður tekin á næst­unni.

Þótt íbúar Randers séu undr­andi yfir því að til skuli standa að reisa eft­ir­lík­ingu mið­bæj­ar­ins í Kína eru þeir jafn­framt bæði stoltir og glaðir. Í við­tali við Randers Amtsavis sögð­ust bæj­ar­búar sem rætt var við von­ast til að mun fleiri Kín­verjar muni leggja leið sína til ,,ekta Randers“ og það muni líka koma öðrum stöðum á Jótlandi til góða. Þar sé nefni­lega margt að sjá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár