Fleiri vinna á netmiðlum en prentmiðlum

Þeim sem starfa á prent­miðlum í Banda­ríkj­unum hefur fækkað um 60 pró­sent frá 1990 en störf á net­miðlum eru nú tvö­falt fleiri 2008. Nú vinna fleiri á net­miðlum en á prent­miðlum í Banda­ríkj­unum.

Störfum á prentmiðlum hefur fækkað hratt á undanförnum árum í Bandaríkjunum. Ekki liggja fyrir opinberar hagtölur um þá þróun hérlendis en fyrir liggur að þeim hefur fækkað.
Störfum á prent­miðlum hefur fækkað hratt á und­an­förnum árum í Banda­ríkj­unum. Ekki liggja fyrir opin­berar hag­tölur um þá þróun hér­lendis en fyrir liggur að þeim hefur fækkað. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Það vinna nú fleiri fyrir net­miðla í Banda­ríkj­unum en fyrir prent­miðla. Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum banda­ríska vinnu­mála­ráðu­neyt­is­ins sem birtar voru í byrjun júní. Þar segir að í júní 1990 hafi um 458 þús­und manns starfað við prent­miðla í Banda­ríkj­unum. Í mars 2016 var sú tala komin niður í 183 þús­und, og þar með dreg­ist saman um næstum 60 pró­sent. Á sama tíma hefur starfs­mönnum net­miðla fjölgað úr 30 þús­und í nálægt 198 þús­und. Þeir hafa því næstum sjö­fald­ast á 26 árum.

Raunar eru nokkrir mán­uðir síðan að net­miðl­arnir tóku fram úr prent­miðl­unum í starfs­manna­fjölda. Það gerð­ist fyrst í októ­ber 2015. Í frétt Niem­anlab um þessa þróun segir að það sé óhætt að draga þá ályktun að störfum hjá prent­miðlum í Banda­ríkj­unum haldi áfram að fækka. Flest lítil og með­al­stór dag­blöð þar í landi eiga í miklum vand­ræðum með að finna sér nýja tekju­strauma sam­hliða því að aug­lýs­inga­tekjur þeirra drag­ast hratt saman og upp­lagið sem prentað er minnkar hratt eftir því sem áskrif­endum fækkar. Þessi þróun er einnig að hafa áhrif á stór­blöð eins og The New York Times, sem hefur sett aukin kraft í að reyna að ná fólki í staf­ræna áskrift að útgáfu sinni. Þótt að netá­skrif­end­urnir séu nú yfir einni milljón þá er blaðið enn nokkuð frá því að ná þeim tekju­mark­miðum sem það hefur sett sér. Vanity Fair greindi nýverið frá því að The New York Times ætli að segja upp að minnsta 200 manns sem vinna á rit­stjórn útgáf­unnar í byrjun næsta árs til að aðlaga sig að nýjum veru­leika.

Störfum á net­miðlum fjölgar hins vegar skarpt, sér­stak­lega á allra síð­ustu árum. Þeim hefur t.d. fjölgað um helm­ing í kjöl­far efna­hags­hruns­ins haustið 2008. Vert er að taka fram að hér er ein­ungis verið að tala um störf sem skap­ast hafa hjá miðlum sem gefa ein­ungis út staf­rænt. Störf þeirra sem vinna á net­síðum prent­miðla eða sjón­varps­stöðva eru ekki talin með.

Lesendum prentmiðla á Íslandi fækkar hratt

Á Íslandi hefur lestur prent­miðla dreg­ist skarpt saman og tekjur þeirra líka. En sú þróun hefur gengið hægar en víð­ast hvar ann­ars staðar. Lestur stærsta dag­blaðs lands­ins, Frétta­blaðs­ins, hefur til að mynda hrunið á örfáum árum. Í apríl 2010 lásu 64 pró­sent lands­manna blaðið. Í maí 2016 var það hlut­fall komið niður í 48,3 pró­sent. Einn af hverjum fjórum les­endum blaðs­ins hefur því yfir­gefið það á síð­ustu sex árum.

Morg­un­blaðið, stærsta áskrift­ar­blað lands­ins, hefur aldrei í rúm­lega 100 ára sögu sinni, mælst með lægri lestur en í síð­asta mán­uði. Alls lesa nú 27,5 pró­sent lands­manna blaðið. Árið 2009, þegar nýir eig­endur tóku við blað­inu og núver­andi rit­stjórnar þess voru ráðn­ir, lásu 43 pró­sent lands­manna blað­ið. Um 35 pró­sent les­enda hafa því yfir­gefið Morg­un­blaðið síðan þá.

Fyr­ir­tækin sem reka dag­blöðin tvö, 365 miðlar og Árvakur, hafa enda verið háð því að eig­endur þeirra setji reglu­lega inn fjár­magn í rekst­ur­inn á und­an­förnum árum til að hann beri sig.

Þriðja stóra fjöl­miðla­fyr­ir­tækið sem gefur út prent­miðil – Pressan sem gefur út DV – fjór­fald­aði skuldir sínar á árinu 2014.

Lélegar hagtölur og lítil aðgreining

Þann fyr­ir­vara verður reyndar að setja á allar mæl­ingar á tekjum íslenskra fjöl­miðla að þær eru illa aðgreindar í árs­reikn­ingum stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækja lands­ins. Nær ómögu­legt er að sjá hversu mikið af tekjum þeirra koma frá prent­miðla­út­gáfu, hversu mikið frá sjón­varps­rekstri og hversu mikið frá rekstri net­miðla. Auk þess eru hag­tölur um fjöl­miðla­rekstur á Íslandi afar slakar. Það eru til að mynda ekki til almenni­legar tölur um þróun starfa á prent­miðlum ann­ars vegar og net­miðlum hins vegar.

Fjöl­miðla­nefnd vann þó sam­an­tekt á stöð­unni líkt og hún var á árinu 2014 og birti nið­ur­stöðu hennar í fyrra­haust. Samkvæmt þeim tölum, sem byggðu á upp­lýs­ingum frá stærstu birt­ing­ar­húsum lands­ins, fer 37,4 pró­sent birt­ing­ar­fjár á Íslandi til prent­miðla, 29,7 pró­sent fer til sjón­varps­stöða og 15,4 pró­sent til útvarps­stöðva. Tæp­lega 15 pró­sent fer til birt­ingar á aug­lýs­ingum á vef. Þar af fer 12,3 pró­sent til inn­lendra vefja og 2,6 pró­sent til erlendra, sér­stak­lega Face­book og Google. Um 50-60 pró­sent af allir veltu á aug­lýs­inga­mark­aði fer í gegnum birt­ing­ar­hús.

Þessi þróun er mjög í and­stöðu við það sem er að ger­ast víð­ast hvar ann­ars­staðar í heim­in­um. Sam­kvæmt spá eMar­keter frá því í fyrra var gert ráð fyrir að birt­ingafé myndi dreifast þannig í Bret­landi að meira fé yrði varið í aug­lýs­ingar í snjall­símum og spjald­tölvum en í blaða­aug­lýs­ingar á árinu 2015. Alls gerði spáin ráð fyrir að 20 pró­sent aug­lýs­inga­fjár myndi fara í slíkar birt­ing­ar. Sam­kvæmt henni átti 49,6 pró­sent birt­ing­ar­fjár í Bret­landi fara til staf­rænna miðla á árinu 2015 og gert var ráð fyrir að það hlut­fall myndi vaxa upp í 57,5 pró­sent árið 2019. Á sama tíma gerði spáin ráð fyrir að prent­miðlar myndu fá 16,4 pró­sent af heild­ar­kök­unni árið 2015 og að það hlut­fall lækki niður í í 12,5 pró­sent árið 2019.

Í Banda­ríkj­unum gerði eMar­keter ráð fyrir að um 38 pró­sent af birt­ing­arfé á árinu 2015 hafi farið í sjón­varp, 31 pró­sent í staf­ræna miðla, tæp 16 pró­sent í prent­miðla og átta pró­sent í útvarp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár