Stjörnuhrap

Stundum er það kallað stjörnu­hrap þegar ein­stak­lingur sem hlotið hefur skjótan frama fellur af stall­inum.

Stundum er það kallað stjörnu­hrap þegar ein­stak­lingur sem hlotið hefur skjótan frama fellur af stall­inum. Þetta á sann­ar­lega við um Milenu Penkowu, sem misst hefur bæði dokt­ors­nafn­bót og lækn­inga­leyfi.

Milena Penkowa hefur iðu­lega verið kölluð undra­barnið frá Óðins­véum þar sem hún fædd­ist 15. apríl 1973. Móðirin af búl­görskum ættum en fað­ir­inn danskur.

Milena vakti ung athygli fyrir náms­hæfi­leika og keppn­is­skap. Frá barns­aldri var hún á kafi í hesta­mennsku og var um tíma að hugsa um að leggja þjálfun og keppni í hesta­í­þróttum fyrir sig. Það varð þó ekki og Milena lauk emb­ætt­is­prófi í lækn­is­fræði frá Hafn­ar­há­skóla árið 1998, varð aðjúnkt við sama skóla í kjöl­farið og skipuð lektor árið 2002. Allt slétt og fellt.

Doktorsritgerðin

Árið 2003 lagði Milena Penkowa fram dokt­ors­rit­gerð við Lækna­deild Hafn­ar­há­skóla. Rit­gerðin fjall­aði um áhrif próteins­efn­is­ins metallot­hionein (metal oþjonen) á starf­semi heil­ans, einkum í tengslum við Alzheimer sjúk­dóm­inn. Dómnefnd fann margt athuga­vert við rit­gerð­ina og vildi ekki sam­þykkja hana, Milena var mjög ósátt við nið­ur­stöð­una en dóm­nefnd­inni varð ekki haggað. Forseti lækna­deildar Hafn­ar­há­skóla var á þessum tíma Ralf Hemm­ing­sen, sem átti eftir að koma mjög við sögu í sam­skiptum Milenu og háskól­ans. Eftir að Milena hafði skilað dokt­ors­rit­gerð­inni og dóm­nefndin hafði hana til umfjöll­unar skrif­aði Milena Ralf Hemm­ing­sen og greindi honum frá því að móðir sín, ásamt systur sinni, hefðu lát­ist í bílslysi í Belgíu. Þetta hefði fengið mjög á sig og ekki síður allt umstangið í kjöl­farið. Nokkrir pró­fess­orar og vís­inda­menn lýstu efa­semdum um rann­sókn­irnar sem dokt­ors­verk­efnið byggði á, og lögðu til að vinnu­brögð Milenu yrðu rann­sökuð. Vegna þessa hót­aði Ralf Hemm­ing­sen, sem þegar þetta gerð­ist var orð­inn rektor háskól­ans, einum pró­fess­or­anna brott­rekstri.

Vegna kvart­ana og óánægju Milenu varð­andi matið á dokt­ors­rit­gerð­inni, sem sögð var byggð á rann­sóknum á rottum, fékk Ralf Hemm­ing­sen tvo erlenda sér­fræð­inga til að yfir­fara rit­gerð­ina. Sér­fræð­ing­arnir dæmdu rit­gerð­ina full­nægj­andi og Milena Penkowa hlaut dokt­ors­nafn­bót­ina árið 2006, við hátíð­lega athöfn.

Mikla athygli vakti að meðal við­staddra voru móðir Milenu og systir, þær sem Milena hafði áður sagt að lát­ist hefðu í bílslysi árið 2003, um það leyti sem hún var að skila dokt­ors­rit­gerð­inni. Þær voru semsé þarna sprell­lif­andi og hefðu getað tekið undir fræg ummæli Mark Twain ,,fréttir af and­láti mínu eru stór­lega ýktar“.

Prófessor og stóri vísindastyrkurinn

Árið 2009 var Milena Penkowa skipuð pró­fessor við Hafn­ar­há­skóla og sama ár hlaut hún svo­nefndan Elite­Forsk styrk. Þessi styrkur (var þá 1,1 milljón danskra króna) er veittur fram­úr­skar­andi vís­inda­mönnum í yngri kant­inum, þykir mikil upp­hefð og ryður iðu­lega braut­ina fyrir aðra og stærri styrki. Síðar kom í ljós að Milena Penkowa hafði sjálf til­nefnt sig til að hljóta Elite­Forsk styrk­inn en slíkt er ólög­legt. Danskir blaða­menn komust enn­fremur að því að Milena hafði hlotið dóm fyrir fjár­drátt og skjala­fals. Ralf Hemm­ing­sen þrætti fyrir að hafa vitað um þessi mál, en blaða­menn vissu betur og lögðu fram sönn­un­ar­gögn þar að lút­andi.

Skikkuð í leyfi og sagði upp prófessorsstöðunni

Vorið 2010 var Milena Penkowa skikkuð í leyfi frá háskól­anum og sagði síðar á árinu upp pró­fess­ors­stöð­unni. Þá hafði einn af virt­ustu pró­fess­orum háskól­ans skilað langri athuga­semda­skýrslu um rann­sóknir hennar. Helge Sander, þáver­andi vís­inda­ráð­herra lagði hart að Ralf Hemm­ing­sen rektor að ráða Milenu aftur til starfa. Danskir fjöl­miðlar full­yrtu á þessum tíma að Milena og Helge Sander hefðu átt í nánu sam­bandi og nokkur dag­blöð létu að því að liggja að hún hafi tekið Ralf Hemm­ing­sen rektor á löpp.

Skjalafals og einkaneysla

Í des­em­ber 2010, nokkrum dögum áður en Milena sagði upp pró­fess­ors­stöð­unni, var hún í und­ir­rétti í Kaup­manna­höfn dæmd fyrir skjala­fals, stjórn sjóðs sem félag áhuga- og vís­inda­manna á og rekur hafði kært hana. Milena hafði fengið úthlutað fé úr sjóðnum til ákveð­ins verk­efnis í tengslum við rann­sóknir en í ljós kom að pen­ing­arnir höfðu farið í einka­neyslu. Dómurinn hljóð­aði uppá þriggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi. Þessi dómur mark­aði í raun upp­haf alls­herjar rann­sóknar á störfum Milenu Penkowu. Sú rann­sókn, eða rétt­ara sagt rann­sóknir, leiddu í ljós að víða var maðkur í mys­unni varð­andi þennan fyrrum efni­lega vís­inda­mann. Það gilti bæði um pen­inga­mál og ekki síður vís­inda­rann­sókn­irnar. Engin leið er að gera grein fyrir öllum þeim málum í pistli sem þessum en lang alvar­leg­asta málið sneri að Hafn­ar­há­skóla og dokt­ors­verk­efn­inu áður­nefnda.

Weekendavisen og kæra Hafnarháskóla

Í nóv­em­ber 2010 birti viku­blaðið Weekendavisen langa grein (og síðar fleiri) um Milenu Penkowu. Umfjöllun blaðs­ins vakti mikla athygli. Í kjöl­farið leystu margir fyrr­ver­andi sam­starfs­menn Milenu við Hafn­ar­há­skóla frá skjóð­unni en það höfðu þeir ekki áður þorað af ótta við að hljóta bágt fyrir. Ralf Hemm­ing­sen háskóla­rektor, sem margir sök­uðu um að halda ætíð hlífi­skildi yfir Milenu, var bein­línis neyddur til að kæra hana, fyrir hönd háskól­ans. Sú kæra var lögð fram 3. febr­úar 2011 í kjöl­far greina­flokks Weekendavisen. Í umfjöllun blaðs­ins kom fram að spænskt fyr­ir­tæki sem að sögn Milenu hefðu fram­kvæmt rann­sókn­irnar (á rottum) sem dokt­ors­rit­gerðin byggði á hafði aldrei verið til, og nið­ur­stöð­urnar bein­línis fals­aðar.

Dómar

Mála­ferlin voru bæði löng og flókin og það var ekki fyrr en í lok sept­em­ber 2015 að Bæj­ar­réttur Kaup­manna­hafnar (neðsta dóm­stig af þremur) dæmdi í mál­inu, dóm­ur­inn hljóð­aði uppá níu mán­aða skil­orð­bundið fang­elsi fyrir gróft skjala­fals. Milena áfrýj­aði dómnum til Eystri- Lands­réttar sem kvað upp sinn dóm 8. sept­em­ber 2016.

Eystri- Lands­réttur breytti dómi Bæj­ar­rétt­ar­ins úr grófu skjala­falsi í skjala­fals. Sökum þess að þrír dóm­arar af sex í Eystri- Lands­rétti töldu að Milena hefði ekki gerst sek um gróft skjala­fals taldi rík­is­lög­maður ekki for­sendur fyrir að kæra nið­ur­stöð­una til Hæsta­réttar, ástæðan lög um fyrn­inga­frest. Hægt hefði verið að sækja um sér­stakt leyfi til að fá málið tekið fyrir hjá Hæsta­rétti en rík­is­lög­maður ákvað að gera það ekki.

Svipt doktorsnafnbótinni og lækningaleyfinu

Fyrir rúmum mán­uði var Milena Penkowa svipt lækn­inga­leyf­inu. Þá ákvörðun tók sér­stök nefnd sem um slík mál fjallar. Leyf­is­svipt­ingin gildir í tvo mán­uði en að þeim tíma liðnum verður málið metið á ný. Hinn 5. sept­em­ber ákvað Vís­inda­ráð Hafn­ar­há­skóla að svipta Milenu Penkowu dokt­ors­nafn­bót­inni. Þetta er fyrsta skipti frá stofnun háskól­ans árið 1479 sem slíkt ger­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár