Skora á Almenna innheimtu ehf. að hætta innheimtu á ólöglegum lánum

Fyrir liggur að vextir á smá­lánum eru marg­falt hærri en heim­ilt er sam­kvæmt lögum, en þrátt fyrir það eru lán­tak­endur enn krafðir um end­ur­greiðslu á ólög­legum vöxtum af inn­heimtu­fyr­ir­tæk­inu Almenn inn­heimta ehf..

Neyt­enda­sam­tökin hafa skorað á Almenna inn­heimtu ehf. að stöðva taf­ar­laust inn­heimtu á smá­lána­skuldum sem byggja á ólög­mætum lánum. Í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum segir að fyrir liggi að vextir á smá­lánum séu marg­falt hærri en heim­ilt er sam­kvæmt lögum. Þrátt fyrir það virð­ist ekk­ert fá stöðvað Almenna inn­heimtu við að inn­heimta þessi ólög­legu lán.

Hóta skráningum á vanskilaskrá Creditinfo

Á Íslandi má kostn­aður vegna neyt­enda­lána, smá­lán falla undir þá skil­grein­ingu, ein­ungis vera 50 pró­sent ofan á stýri­vexti Seðla­banka Íslands á árs­grund­velli. Neyt­enda­sam­tökin hafa hins vegar undir höndum gögn sem sýna að heild­ar­end­ur­greiðslur lán­tak­enda eru mun hærri en lög leyfa, jafn­vel þó miðað sé við hæstu lög­legu vexti. Þrátt fyrir það heldur Almenn inn­heimta áfram inn­heimtu sinni á ólög­legum vöxtum og hót­unum um skrán­ingu á van­skila­skrá Creditinfo, sam­kvæmt til­kynn­ingu Neyt­endu­sam­tak­anna.

Creditinfo hefur stað­fest að ekki verði skráð frek­ari van­skil á fólk vegna smá­lána­skulda nema höf­uð­stóll kröf­unnar sé í van­skilum. Því hvetja Neyt­enda­sam­tökin þá ein­stak­linga sem eru á van­skila­skrá vegna smá­lána­skuldar að sendu póst á Creditinfo og fara fram á að vera tekin af skrá.

Líkur á að bótaábyrgð hafi skapast

Neyt­enda­sam­tökin hafa jafn­framt beint þeim til­mælum til lán­tak­enda, sem greitt hafa hærri upp­hæð til baka en sem nemur láns­upp­hæð, að fara fram á skýra sund­ur­liðun frá Almennri inn­heimtu ehf. Fyr­ir­tækið hefur hins vegar gefið sér allt að þrjá mán­uði til að veita þessar upp­lýs­ingar sem neyt­enda­sam­tökin segja að lán­tak­endur eiga rétt á.

„Það vekur furðu að fyr­ir­tækið hafi ekki til­tæka sund­ur­liðun á kröfum sem það telur sér þó fært að inn­heimta. Þá telja Neyt­enda­sam­tökin í hæsta máta óeðli­legt að inn­heimta van­skila­kostnað á kröfur sem byggja á ólög­mætum lán­veit­ingum. Slíkt geti ekki verið lög­legt,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Enn fremur segir í til­kynn­ing­unni að Neyt­enda­sam­tök hafi ítrekað komið þessu á fram­færi við Almenna inn­heimtu en engin við­brögð fengið. Samtökin telja að þar sem eig­endum, stjórn og starfs­mönnum Almennrar inn­heimtu megi vera ljóst að kröfutil­bún­ing­ur­inn stand­ist ekki lög, séu jafn­vel líkur á að bóta­á­byrgð hafi skap­ast, ekki síst í þeim til­fellum þar sem lán­tak­endur hafa verið settir á van­skila­skrá að ósekju.

Leita að lántaka fyrir dómsmál

Hákon Stef­áns­son, stjórn­ar­for­maður Creditinfo, sagði í við­tali í Rík­is­út­varpið í maí síð­ast­liðnum að auð­veldasta leiðin til að stöðva smá­lána­fyr­ir­tæki væri að láta van­skilin enda fyrir dóm­stólum. Hann sagði að hvorki þeir sem taka smá­lán né smá­lána­fyr­ir­tæki hafi látið inn­heimtu­mál fara fyrir íslenska dóm­stóla.

Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, hefur hins vegar bent á að sá hópur sem tekur þessi lán sé oft ekki í góðri stöðu og lán­takan oft neyð­ar­úr­ræði. Hann segir að því séu lán­tak­endur ekki stakk búnir til að fara í hart og gef­ast upp undan harðri inn­heimtu.

„Við höfum reynt að aðstoða fólk við að ganga frá þeim málum. Þetta er mjög erfitt mál á alla kanta sér í lagi með til­liti til stöðu margra lán­taka. Þeir eru oft ekki alveg í stakk búnir til að fara í hart og gef­ast upp undan gíf­ur­lega harðri inn­heimtu þess­ara fyr­ir­tækja. Það eru hót­un­ar­bréf, sím­töl og alls kyns dag­sektir sem fyr­ir­tæki telja sig geta sett á fólk. Á end­anum gef­ast margir upp og greiða þetta,“ segir Breki í við­tali við RÚV.

Hann sagði aftur á móti að Neyt­enda­sam­tökin væri að leita að ein­stak­lingum sem væru til­búin til að fara alla leið með málið í dóms­sal. „En við erum að leita að ein­stak­lingum sem væru til í að fara alla leið. Neyt­enda­sam­tökin myndu styðja þá eins og við getum með ráðum og dáð,“ segir Breki.

Þriðjungi fleiri í greiðsluaðlögun

[links]Það sem af er ári hafa borist 258 umsóknir um greiðslu­að­lögun hjá Umboðs­manni skuld­ara. Greiðslu­að­lögun er úrræði fyrir ein­stak­linga sem eiga í veru­legum greiðslu- og skulda­vanda. Mikil fjölgun hefur orðið í umsóknum um greiðslu­að­lögun hjá yngsta ald­urs­hópnum, 18 til 29 ára, en umsækj­endur úr þeim hópi voru 27 pró­sent allra umsækj­enda í fyrra.

Í yngsta ald­urs­hópnum 79 pró­sent umsækj­enda með skyndilán og voru 22 pró­sent af heild­ar­skuldum umsækj­anda til­komin vegna smá­lána á þessu ald­urs­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár