Víðir: Haldið ykkur heima um páskana

Úr heil­ræða­horni Víðis Reyn­is­sonar: Haldið ykkur heima um pásk­ana – hugið tím­an­lega að inn­kaupum, farið sjaldan í búð og kaupið meira inn í einu.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Mynd: Lögreglan

„Við erum öll að læra og ég vona að þetta sé á réttri leið hjá okkur,“ sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Hann segir að ekki hafi enn þurft að beita sektum vegna brota á sam­komu­banni og reglum um sótt­kví.

Víðir ítrek­aði þó enn og aftur að lög­reglan myndi ekki hika við að beita sektum ef á þyrfti að halda.

[adspot]

Sam­komu­bann verður við lýði um pásk­ana. Óvíst er enn hvenær aðgerð­unum verður aflétt en sótt­varna­læknir segir að það verði að gera hægt og var­lega svo að annar far­aldur blossi ekki upp.

„Varðandi pásk­ana,“ sagði Víðir í lok fund­ar­ins í dag, „við höfum sagt að fólk hugi að því að ferð­ast inn­an­húss, eins og ein­hver sagði. En við hvetjum fólk að minnsta kosti til að fara ekki í löng ferða­lög eða mikið um landið, halda sig heima um pásk­ana.“

[links]Víðir var með annað heil­ræði í tengslum við pásk­ana til lands­manna. Hann benti á að versl­anir yrðu opnar suma dag­ana en þó með þeim tak­mörk­unum sem væru í gildi. „Við viljum hvetja fólk til að vera tím­an­lega í páskainn­kaup­unum svo ekki mynd­ist örtröð við versl­an­irnar. Og líka að þeir sem fara í búð yfir höfuð kaupi inn fyrir nokka daga í einu.“

Hér getur þú lesið þig til eða rifjað upp reglur sem gilda í sam­komu­banni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár