Fimmtán ára og staðráðin í að halda rútínu

Aðgerðir vegna kór­ónu­veirunnar hafa áhrif á okkur öll. Í Mos­fellsbæ býr metn­að­ar­full ung­lings­stúlka sem hefur gert sína eigin aðgerða­á­ætlun. Hún miðar að því að halda rútín­unni sem henni þykir sér­lega mik­il­væg.

Helena Einarsdóttir hefur æft fimleika í mörg ár. Hún ætlar að halda áfram að æfa heima nú þegar íþróttahúsið er lokað.
Helena Ein­ars­dóttir hefur æft fim­leika í mörg ár. Hún ætlar að halda áfram að æfa heima nú þegar íþrótta­húsið er lokað. Mynd: Aðsend

Vakna, læra, taka úr vél­inni, borða, skóli, ryk­suga, læra, æfing, chill, sími, sofa.

Helena Ein­ars­dóttir, nem­andi í 9. bekk í Varm­ár­skóla í Mos­fellsbæ, ætlar ekki að slá slöku við þótt ýmis­legt í hennar umhverfi hafi breyst vegna við­bragða við nýju kór­ónu­veirunni. Hún hefur gert plan fyrir dag­inn þar sem hreyf­ing og lær­dómur – auk heim­il­is­starfa – eru efst á blaði.

Líkt og hjá öllum lands­mönnum hefur dag­legt líf Helenu breyst tölu­vert síð­ustu daga. Hún fer aðeins í skól­ann í tvo tíma á dag og allar fim­leika­æf­ing­arnar hennar falla niður, að minnsta kosti þessa vik­una. Hún æfir og þjálfar fim­leika hjá Aft­ur­eld­ingu en nú hefur verið ákveðið að loka íþrótta­hús­inu tíma­bundið.

Helena gerði dags­skipu­lagið á mánu­dag og í gær­morgun vakn­aði hún klukkan 8, sam­kvæmt plani. Skólinn átti að hefj­ast klukkan 11 og hún gaf sér tíma til að ræða við Kjarnann áður en að því kom.

„Ég er ekk­ert sér­stak­lega mikið að pæla í þess­ari veiru,“ segir Helena sem lætur vera að lesa mikið af fréttum af ástand­inu – hvað þá að googla upp­lýs­ingar um það. „En ég veit að veiran er hættu­leg fyrir gam­alt fólk og veikt fólk.“

Spurð hvaða áhrif veiran hafi haft á hennar dag­lega líf seg­ist hún mun með­vit­aðri en áður um hrein­læti og þvoi sér og spritti hend­urnar oft á dag. Hún lætur ekki þar við sitja heldur sótt­hreinsar einnig sím­ann og önnur tæki sem hún notar.

„Í skipu­lag­inu mínu hef ég æfingu á hverjum degi því það er búið að taka æfing­arnar af okkur,“ segir hún um hvað hún ætli að leggja áherslu á næstu daga. „Svo er miklu minni skóli núna þannig að ég þarf að gera verk­efni heima. Svo setti ég inn heim­il­is­störf og svo­leiðis líka svo maður hangi ekki í sím­anum allan dag­inn.“

Milli klukkan 20-22 á kvöldin ætlar hún þó að leyfa sér að fara í sím­ann og jafn­vel nokkrum sinnum yfir dag­inn ef verk­efnin klár­ast fyrr en áætl­unin gerir ráð fyrir.

En hver er ástæðan fyrir því að Helena setur upp svona nákvæmt skipu­lag?

„Mér líður miklu betur þegar ég er í rútínu. Mér finnst leið­in­legt að vakna og spyrja mig hvað ég eigi að gera í dag. Það er betra að plana eitt­hvað sem maður ætlar að gera yfir dag­inn. Mér líður miklu betur þannig.“

Vegna sam­komu­banns og tak­mark­ana á skóla­haldi verður Helena næstu vikur aðeins í skól­anum í tvo tíma á hverjum degi. Hún á svo von á því að fá send heima­verk­efni. Allir nem­endur í Varm­ár­skóla þurfa líka að fara eftir ákveðnum umgengn­is­reglum í skól­anum. Þar er hrein­læti í fyr­ir­rúmi. „Við þurfum alltaf að þrífa okkur um hend­urnar og spritta þegar við komum inn í hverja stofu. Svo eru kenn­ar­arnir búnir að sótt­hreinsa allar reikni­vélar og annað. Við þurfum líka að fara inn um ákveðna inn­ganga. Þetta eru sterkar aðgerðir.“

Á meðan engar íþrótta­æf­ingar verða ætlar Helena að æfa heima á hverjum degi. Það ætti ekki að vefj­ast fyrir henni þar sem hún er sjálf þjálf­ari.

Ertu alveg stað­ráðin í að láta þetta allt saman ekki hafa áhrif á námið þitt og æfingar?

Hún segir að óhjá­kvæmi­lega muni ein­hver röskun verða á nám­inu en hún ætli sann­ar­lega að reyna sitt besta. „Ég get ekki bara sleppt því að æfa í viku,“ svarar hún ákveðin. „Það hentar mér ekki að minnsta kosti. Per­sónu­lega finnst mér alltaf erf­ið­ara að byrja aftur að æfa eftir frí. Þess vegna finnst mér þægi­legt að halda rútín­unni, hvort sem ég æfi heima eða í íþrótta­hús­inu.“

Fyrir þá sem vilja feta í fót­spor Helenu er hér dag­skipu­lagið hennar:

8.00: Vakna

9.00: Læra

10.15: Taka úr/setja í vél­ina

10.45: Borða

10.55: Skóli

13.45: Komin heim

14.00: Ryksuga

14.30: Borða

15.00: Læra

17.00: Æfing

18.00: Chill

19.00: Borða

20.00: Sími

22.00: Sofa

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár