Allt starfsfólk Landspítalans fær umbun vegna COVID

For­stjóri Land­spít­al­ans segir að allt starfs­fólk spít­al­ans fái umbun vegna COVID-19 nú um mán­aða­mótin. Upphæðin er þó mis­jöfn en þeir sem unnu við hvað mest álag fá allt að 250 þús­und krónur.

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans.
Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans. Mynd: Lögreglan

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, segir að ákveðið hafi verið að allt starfs­fólk Land­spít­al­ans fái greidda sér­staka umbun vegna álags í kjöl­far COVID-19 nú um mán­aða­mótin. Sjálfur er hann þó und­an­skil­inn greiðsl­unni.

Páll skrifar í for­stjórapistli sínum í dag að í byrjun apríl hafi hann óskað eftir því við heil­brigð­is­ráð­herra að Land­spít­al­anum yrði gert kleift að umb­una með beinum hætti starfs­fólki vegna far­sótt­ar­innar. „Við því var snöf­ur­mann­lega brugð­ist og lagði heil­brigð­is­ráð­herra fram til­lögu þessa efnis sem Alþingi sam­þykkti,“ skrifar Páll.

Und­an­farnar vikur hafi verið unnið að útfærslu greiðslna til starfs­manna í sam­starfi við aðrar heil­brigð­is­stofn­anir. Í nýlegri örkönnun mannauðs­deildar kom fram að nær allir starfs­menn Land­spít­al­ans töldu sig hafa orðið fyrir áhrifum í starfi sínu vegna COVID-19. „Það rímar ágæt­lega við þá ákvörðun að allir starfs­menn, að sjálfum mér og aðstoð­ar­manni mínum, fram­kvæmda­stjórum og for­stöðu­mönnum und­an­skildum, munu fá umbun greidda nú um næstu mán­aða­mót.“

Páll skrifar að auð­vitað hafi álagið verið mis­jafn­lega mikið og hefur starfs­fólki því verið skipt í tvo hópa. Í hópi A eru þeir starfs­menn sem starfa á ein­ingum sem mest komu að þjón­ustu við COVID-smit­aða og í hópi B eru aðrir starfs­menn spít­al­ans.

Upphæð umb­un­ar­innar fer eftir við­veru starfs­manns í mars og apríl og getur numið allt að 250 þús­und fyrir þá sem skipa A-hóp og 105 þús­und fyrir aðra. „Þetta hefur reynst flókið í útfærslu en við höfum átt mikið sam­ráð hér á spít­al­anum vegna þessa og teljum að þetta sé sú leið sem rétt er að fara. [...] Umbunin er þakk­læt­is­vottur frá stjórn­völdum, sem að mínu mati sýnir skiln­ing á þessu flókna verk­efni, sem þó er hvergi nærri lokið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár