Kynna úrræði fyrir nýja kaupendur á húsnæðismarkaði í dag

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hafa boðað til frétta­manna­fundar í Hörpu klukkan 13 í dag. Þar verða kynnt úrræði fyrir nýja kaup­endur á hús­næð­is­mark­aði, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

Búist er við því að rík­is­stjórnin muni leggja fram frum­varp sem tak­marki veit­ingu verð­tryggðra hús­næð­is­lána í þess­ari viku. Sigurður Ingi sagði í þætt­inum Þjóð­braut um helg­ina að 40 ára jafn­greiðslu­lán til hús­næð­is­kaupa muni heyra sög­unni til verði frum­varpið sam­þykkt. Þau lán eru vin­sæl­ustu lán sem Íslend­ingar taka. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur reiknað út að um 40 pró­sent þeirra sem taka slík lán stand­ist ekki greiðslu­mat fyrir ann­ars konar lánum. Aðgerð­irnar sem kynntar verða í dag snú­ast því að öllum lík­indum um hvernig komið verði til móts við þann hóp þegar hann getur ekki tekið 40 ára jafn­greiðslu­lánin lengur.

Sigurður Ingi sagði á Þjóð­braut að hvatar verði settir fram til þess að bjóða upp á óverð­tryggð lán og það verði á ein­hvern hátt sam­tvinnað við sér­eigna­sparnað fólks. Þá verði komið „mynd­ar­lega til móts við kaup­endur á fyrstu fast­eign.“ Spurður hvort um verði að ræða fram­lag úr rík­is­sjóði sagði Sig­urður Ingi svo ekki vera. Þó verði um að ræða að stórar breyt­ingar á lána­formi sem bjóð­ast við íbúð­ar­kaup, en breyt­ing­arnar eigi þó ekki við um lán sem fyrir eru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár