Sjálfstæðisflokkurinn nánast kominn í kjörfylgi og VG eru jafn stór og Samfylking

Allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír bæta við sig fylgi milli mán­aða en allir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar nema Píratar, sem standa nán­ast í stað, tapa fylgi.

Bjarni Benediktsson getur brosað yfir fylgisaukningu síns flokks undanfarið.
Bjarni Bene­dikts­son getur brosað yfir fylg­is­aukn­ingu síns flokks und­an­farið. Mynd: Bára Huld Beck

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 25,1 pró­sent fylgi í nýjasta þjóð­ar­púlsi Gallup. Hann hefur ekki mælst með meira fylgi í skoð­ana­könn­unum Gallup frá því í októ­ber 2018 og fylgið nú er nán­ast það sem flokk­ur­inn fékk upp úr kjör­köss­unum í síð­ustu kosn­ingum, þegar 25,3 pró­sent atkvæða féllu honum í skaut.

Sam­fylk­ingin tapar fylgi milli mán­aða og mælist nú með 13,8 pró­sent stuðn­ing. Sama hlut­fall aðspurðra myndi kjósa Vinstri græn ef kosið yrði í dag og sá flokkur bætir við sig fylgi aðra könn­un­ina í röð.

Píratar mæl­ast með 10,4 pró­sent fylgi og Viðreisn með tíu pró­sent, sem er mjög svipað og fyrir rúmum mán­uði. Mið­flokk­ur­inn fer niður fyrir tveggja stafa tölu í fylgi í fyrsta sinn frá því í apríl í fyrra, en fylgi hans mælist 9,9 pró­sent.

[adspot]Eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem virð­ist ekki vera að græða umtals­vert fylgi á þeim aðstæðum sem eru uppi er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem mælist með 8,4 pró­sent stuðn­ing.

Hvorki Flokkur fólks­ins, sem mælist með 4,4 pró­sent fylgi, né Sós­í­alista­flokk­ur­inn, með fjögur pró­sent fylgi, eru lík­legir til að ná inn manni á þing eins og staðan er í dag.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist 61 pró­sent og hefur ekki mælst meiri síðan í febr­úar 2018.

Frá þjóð­ar­púls­inum er greint á vef RÚV.

Sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna er 47,3 pró­sent sem er tölu­vert undir kjör­fylgi þeirra, enda mæl­ast þeir allir þrír með minna fylgi en þeir fengu haustið 2017.

Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn mæl­ast sam­an­lagt með 34,2 pró­sent fylgi sem er 6,2 pró­sentu­stigum meira fylgi en flokk­arnir þrír fengu í síð­ustu kosn­ingum.

Bæði Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins mæl­ast með minna fylgi í dag en þeir fengu í kosn­ing­unum 2017.

Í frétt RÚV um könn­un­ina segir að tæp­lega ell­efu pró­sent aðspurðra hafi sagst ætla að skila auðu eða ekki kjósa og rúm­lega tólf pró­sent tóku ekki afstöðu eða neit­uðu að gefa hana upp.

Þjóð­ar­púls Gallup var gerður dag­ana 30. mars til 3. maí 2020. Heild­ar­úr­taks­stærð var 11.028 manns og 55,7 pró­sent tóku þátt. Vikmörk við fylgi flokka eru 0,1-1,2 pró­sentu­stig. Ein­stak­lingar í úrtak­inu voru handa­hófs­valdir úr við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár