Bein útsending: Skattaundanskot með Torsten Fensby

Upp­lýs­inga­skrif­stofan Norð­ur­lönd í fókus á Íslandi, Alþjóða­mála­stofnun Háskóla Íslans og Kjarninn standa saman að opnum fundi um aðgerðir gegn skattaund­anskotum í Norræna hús­inu í dag, þriðju­dag, klukkan 10. Fundinum verður varpað beint hér í spil­ar­anum að ofan.

Aðal­gestur fund­ar­ins er Torstein Fensby. Hann hefur háð ára­langa bar­áttu gegn skattaund­anskotum og leiddi sam­eig­in­legt verk­efni nor­rænu rík­is­stjórn­anna um gerð upp­lýs­inga­skipta­samn­inga á sviði skatta­mála við aflands­svæði.

Dagskrá fund­ar­ins hefst á því að Fensby ræðir við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, um bar­áttu sína. Meðal þess sem rætt verður eru nýlegar afhjúp­anir á Panama­skjöl­unum svoköll­uðu sem ultu meðal ann­ars Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni úr stóli for­sæt­is­ráð­herra.

Eftir spjall Fensby og Þórðar Snæs verða pall­borðsum­ræður þar sem fram koma Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri, Brynjar Níelsson, fyrsti vara­for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, og Indriði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri. Fund­ar­stjóri verður Þórður Snær Júl­í­us­son.

Fund­ur­inn fer fram á ensku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár