C (9,8%): Karlar, með góða menntun, háar tekjur, búa í höfuðborginni og hlusta á Spotify

Kjarninn hefur fengið aðgang að miklu magni gagna úr síð­ustu könn­unum MMR sem sýna hver lík­leg­asta áferð með­al­kjós­anda hvers flokks er. Hér að neðan er umfjöllun um kjós­endur Við­reisnar.

Í síð­ustu tveimur könn­unum MMR mælist fylgi Við­reisnar sam­tals 9,8 pró­sent. Það er meira en flokk­ur­inn fékk 2017 en minna en hann fékk árið 2016.

Fáir flokkar tala með jafn afger­andi hætti til ákveð­inna hópa í sam­fé­lag­inu en ná nán­ast ekk­ert til ann­arra, og Viðreisn. Þannig eru karlar til að mynda mun lík­legri til að kjósa Viðreisn en konur. Stuðn­ingur við flokk­inn er mestur hjá yngstu kjós­end­unum en minnkar svo jafnt og þétt upp ald­urs­stig­ann og hjá elsta kjós­enda­hópnum mæalst ein­ungis Píratar með minna fylgi á meðal þeirra flokka sem eiga full­trúa á þingi í dag.

Stuðn­ingur við Viðreisn er nán­ast ein­vörð­ungu bund­inn við höf­uð­borg­ar­svæðið. Um 87 pró­sent aðspurðra sem segj­ast ætla að kjósa flokk­inn búa þar, en vert er að taka fram að svæðið er líka það lang­fjöl­menn­asta á land­inu. Mjög erfitt er að sjá að Viðreisn myndi ná inn kjör­dæma­kjörnum þing­manni í öðrum kjör­dæmum en þeim þremur sem þar er að finna ef kosið yrði í dag. Viðreisn mælist með minnst fylgi utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins af öllum flokkum sem mæl­ast inni eins og stendur. Það væri helst á Suð­ur­landi sem mögu­leiki er að ná inn manni með smá við­bót.

Kjós­enda­hópur Við­reisnar heldur áfram að vera nokkuð eins­leitur þegar aðrar breytur eru skoð­aðar. Flokk­ur­inn talar mjög vel til háskóla­mennt­aðra en nán­ast ekk­ert til þeirra sem eru ein­ungis með grunn­skóla­próf. Sömu sögu er að segja þegar tekju­hópar eru skoð­aðir. Áhugi tekju­lægsta hóps­ins á Viðreisn er sá næst minnsti á meðal þeirra flokka sem eiga full­trúa á þingi, á eftir Framsókn. Stuðn­ing­ur­inn eykst síðan sam­hliða tekjum og mælist mestur (15,9 pró­sent) á meðal þeirra sem eru með yfir 1,2 millj­ónir króna í heim­il­is­tekjur á mán­uði. Einungis Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með meira fylgi hjá þeim tekju­hópi.

Kjós­endur Við­reisnar eru allra kjós­enda lík­leg­astir til að vera not­endur af tón­list­ar­veit­unni Spotify (69 pró­sent) og að hámhorfa á Netflix (84 pró­sent með áskrift). Þeir voru líka ánægð­astir allra með und­ir­skrift síð­ustu kjara­samn­inga.

Við­reisn­ar­fólk hefur hins vegar mestar áhyggjur allra af stöðu heil­brigð­is­þjón­ustu í land­inu, það hefur einna mestan áhuga allra á hús­næð­is­málum og þungar áhyggjur af loft­lags­breyt­ingum.

Líklega kemur það lítið á óvart að kjós­endur Við­reisnar eru mest fylgj­andi inn­flutn­ingi á fersku kjöti til lands­ins (68 pró­sent þeirra hafa þá skoðun) enda flokkur sem leggur áherslu á frelsi í alþjóða­við­skiptum og aukið sam­starf við Evrópu.

Grein­ingin er hluti af stærri umfjöllun þar sem kjós­endur allra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi eru teknir fyrir. Hún byggir á ítar­legum gögnum frá MMR úr könn­unum sem fyr­ir­tækið hefur fram­kvæmt á fylgi flokka í ágúst og sept­em­ber 2019 auk fjölda ann­arra sér­tækra kann­ana um ýmis álita­mál sem MMR hefur fram­kvæmt á þessu ári. Hægt er að lesa heild­ar­um­fjöll­un­ina hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár