Túristafóbía í evrópskum borgum

Ferða­mennskan skapar mörg störf og miklar tekjur, þessu hafa Íslend­ingar kynnst vel á síð­ustu árum. En of mikið má af öllu gera og íbúar og yfir­völd í mörgum evr­ópskum borgum vilja nú draga úr ferða­manna­straumnum.

Flestir hafa gaman af að kynn­ast nýjum stöðum, ferð­ast á fram­andi slóðir eða heim­sækja aftur borgir og lönd sem leiðin hefur áður legið til. Ferða­mennskan skapar mörg störf og miklar tekjur, þessu hafa Íslend­ingar kynnst vel á síð­ustu árum. En of mikið má af öllu gera og íbúar og yfir­völd í mörgum evr­ópskum borgum vilja nú draga úr ferða­manna­straumnum.

Skrölt í ferða­töskum er á síð­ustu árum orðin eins konar tákn­mynd síauk­ins fjölda ferða­manna í borgum og bæjum, ekki hvað síst í Evrópu. Sú tíð er löngu liðin að flug­ferðir tak­mark­ist við dag­tím­ana, nú eru flug­vélar á ferð­inni nær allan sól­ar­hring­inn. Ferða­menn­irnir streyma svo inn í borgir og bæi, eða á flug­völl­inn að lok­inni dvöl, nótt sem nýtan dag. Rútur og leigu­bílar flytja stóran hluta þessa hóps fram og til baka.

Mið­borg­irnar eru eft­ir­sótt­ustu stað­irnir, þar eru yfir­leitt flest hótel og gisti­heim­ili. Áður­nefnt tösku­skrölt, hróp og köll, ásamt hávaða frá far­ar­tækjum og skemmti­stöðum veldur miklu ónæði. Þótt ferða­fólk­inu þyki þetta kannski full­kom­lega eðli­legt gegnir öðru máli um íbúa við­kom­andi svæðis, þeir þreyt­ast á skarka­l­anum.

Airbnb og íbúðaskipti

Í ágúst 2008 varð til hús­næð­is­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Airbnb. Nánast hvert manns­barn þekkir, eða hefur heyrt minnst á þetta leigu­fyr­ir­komu­lag, sem á skömmum tíma náði miklum vin­sældum. Í dag eru á þriðju milljón íbúða og her­bergja sem standa ferða­fólki til boða í nær tvö hund­ruð löndum. Þetta fyr­ir­komu­lag er hrein við­bót við hin hefð­bundnu gisti­hús, og er að jafn­aði tals­vert ódýr­ara. Íbúðir og her­bergi í boði eru ekki ætíð stað­sett í mið­bæjum, heldur dreifast vítt og breitt. Húsnæðið sem býðst með þessum hætti er iðu­lega eitt­hvað sem eig­and­inn þarf ekki sjálfur að nota (kjall­ari, bíl­skúr o.þ.h) en einnig leigja margir út eigin íbúð, í gegnum Airbnb, meðan farið er í frí, og búa þá kannski í annarri Airbnb íbúð! Einnig má í þessu sam­bandi nefna íbúða­skipti, sem margir not­færa sér. Spán­verj­inn flytur í mánuð til Seyð­is­fjarðar og Seyð­firð­ing­ur­inn ger­ist á sama tíma Spán­verji. Ætíð leyn­ist mis­jafn sauður í mörgu fé og stundum verða árekstrar vegna ónæðis, þeir sem eru í fríi hafa, að minnsta kosti stundum, annan takt.

Feneyingar riðu á vaðið

Ein þeirra borga sem lengi hefur notið mik­illa vin­sælda ferða­manna er Feneyjar. Eins og víða ann­ars staðar hefur ferða­mönnum fjölgað þar mikið á síð­ustu árum og í fyrra voru þeir rúm­lega 20 millj­ónir, 60 þús­und á dag. Þessi mikli og síaukni ferða­manna­straumur hefur orðið til þess að æ fleiri borg­ar­búar (voru um 270 þús­und í fyrra) hafa valið þann kost að flytja á brott. Hús­næð­is­verð, og leigu­verð, hefur rokið upp vegna mik­illar eft­ir­spurnar, það veldur því að færri sækj­ast eftir að setj­ast að í borg­inni. Mengun hefur líka auk­ist mjög, þar eiga risa­stór skemmti­ferða­skip stóran hlut að máli.

Þótt ferða­menn­irnir skapi mörg störf og miklar tekjur var þó svo komið að árið 2015 var íbúum borg­ar­innar nóg boðið og þeir efndu til fjöl­mennra mót­mæla, sem voru end­ur­tekin ári síðar og einnig á þessu ári. Fólkið krafð­ist þess að ein­hverjar hömlur yrðu settar á fjölda ferða­manna til borg­ar­innar og ýmsar fleiri kröfur voru á lofti, meðal ann­ars að bannað yrði, að við­lögum háum sektum, að draga háværar ferða­töskur um stræti og torg. Ekki hlutu þessar kröfur allar náð fyrir augum borg­ar­yf­ir­valda en þau hafa nýlega sett reglur sem­tak­marka fjölda hót­el­her­bergja og lagt bann við götu­eld­húsum. Sérstök deild innan lög­regl­unnar (kölluð túrist­a­lögga) ann­ast eft­ir­lit með að regl­unum sé fylgt.

Sama sagan í Barcelóna, Róm, Amsterdam, Berlín og víðar

Íbúar Barcelóna eru um 1,6 milljón. Á síð­asta ári komu rúm­lega átta millj­ónir ferða­manna til Barcelóna fyrir utan alla þá sem komu með skemmti­ferða­skipum (allt að 30 þús­und manns á dag) og gistu sem sagt ekki í borg­inni. Ólymp­íu­leik­arnir voru haldnir í Barcelóna árið 1992, þeir voru mikil aug­lýs­ing fyrir borg­ina og ferða­mönnum hefur síðan fjölgað jafnt og þétt. Mörgum heima­mönnum þykir nóg um þennan stríða túrista­straum og þar má iðu­lega sjá á lofti borða með slag­orðum einsog „þið eruð að eyði­leggja Barcelóna, farið heim ferða­menn.“

Borg­ar­yf­ir­völd hafa nú sett reglur sem tak­marka fjölda þeirra íbúða sem heim­ilt er að leigja út, í sumum hverfum borg­ar­innar eru tíu pró­sent íbúða leigðar út til ferða­manna. Borg­ar­stjór­inn, Ada Colau, sagði nýlega í blaða­við­tali að það væri vanda­verk að ætla sér að stýra ferða­manna­straumnum en slíkt væri nauð­syn­legt, þrátt fyrir tekj­urnar „við viljum ekki enda eins og Feneyjar“.

Berlín hefur ekki farið var­hluta af ferða­manna­straumnum, á síð­asta ári heim­sóttu um 12 millj­ónir ferða­manna borg­ina. Þessi mikli fjöldi hefur þrýst íbúða­verð­inu upp, en þrátt fyrir það sýna kann­anir að mik­ill meiri­hluti íbú­anna er ánægður með að svo margir skuli hafa áhuga á að koma til borg­ar­innar og kynn­ast henni.

Amster­dam er ein þeirra borga sem æ fleiri ferða­menn leggja leið sína til, fjöld­inn slíkur að það veldur borg­ar­yf­ir­völdum áhyggjum. Hollensk ferða­mála­yf­ir­völd leggja mikla áherslu á að kynna aðra staði í land­inu fyrir ferða­mönnum, t.d Rott­er­dam, Haag og Utrecht. Borg­ar­stjór­inn í Amster­dam hefur viðrað þá hug­mynd að ferða­fólk geti ferð­ast ókeypis frá borg­inni og til ann­arra borga í land­inu.

Meðal evr­ópskra borga þar sem ferða­mönnum hefur fjölgað mjög á síð­ustu árum eru Róm, Mílanó, Reykja­vík, Palma, Prag og Kaup­manna­höfn.

Dubrovnik og Krúnuleikarnir

Eina borg, eða betur sagt einn bæ, er rétt að nefna hér til við­bótar: Dubrovnik í Króatíu, íbúar þar eru tæp­lega fimm­tíu þús­und. Dubrovnik er stundum nefnd „perla Adría­hafs­ins“, og bær­inn var fyrir ára­tugum settur á heimsminja­skrá Unesco. Ástæða þess að ferða­menn streyma nú þangað er einkum talin sú að sjón­varps­þátta­röðin „Game of Thrones“ (Krúnu­leik­arnir) er að hluta tekin upp í bænum. Bæj­ar­yf­ir­völd ákváðu fyrir skömmu að setja reglur um hámarks­fjölda skemmti­ferða­skipa sem hverju sinni gætu verið á hafn­ar­svæð­inu. Daginn sem fundur bæj­ar­yf­ir­valda var hald­inn voru far­þegar sjö skemmti­ferða­skipa á gangi í gamla mið­bænum, „var þá þröngt set­inn Svarf­að­ar­dalur“.

Í þessum pistli hafa ekki verið nefndar tvær mestu ferða­manna­borgir Evrópu: París og London. Ástæðan er sú að þar hefur ekki orðið sama „ferða­manna­spreng­ingin“ og í þeim borgum sem um er fjallað í pistl­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár