Fjárfesting í gamla FL Group þegar búin að skila milljarðaávöxtun

Snemma á árinu keyptu Trygg­inga­mið­stöðin (TM) og nokkrir fjár­festar meiri­hluta í Stoðum, áður FL Group. Hópurinn var að mestu sam­an­settur af hlut­höfum í TM og mönnum sem áður gegndu lyk­il­stöðum hjá FL Group. Virði hlut­ar­ins hefur auk­ist um millj­arða.

FL Group var eitt alræmdasta fjárfestingafélag fyrirhrunsáranna. Það fór aldrei í þrot og er enn starfandi undir sömu kennitölu. Í dag heitir það Stoðir og heldur nú utan um eina eign.
FL Group var eitt alræmdasta fjár­fest­inga­fé­lag fyr­ir­hrunsár­anna. Það fór aldrei í þrot og er enn starf­andi undir sömu kenni­tölu. Í dag heitir það Stoðir og heldur nú utan um eina eign. Mynd: Úr safni

Í vor keyptu tvö félög stóran hlut í Stoðum, sem áður hét FL Group. Félögin keyptu hlut­ina að mestu af GlitniHoldco, eifn­ar­halds­fé­lagi utan um eft­ir­stand­andi eignir hins fallna banka Glitnis. Þegar hlutur félag­anna tveggja var lagður saman við lít­inn hlut hol­lensks aðila sem starfar með þeim er sam­eig­in­legur eign­ar­hlutur hóps­ins um 52 pró­sent. Hann er því með meiri­hluta í Stoðum/FL Group, sem eitt sinn var alræmdasta fjár­fest­inga­fé­lag lands­ins.

GlitnirHolco hefur ekk­ert viljað gefa upp um hvað hefði verið greitt fyrir hlut­inn sem félagið seldi, en það hafði átt 40,28 pró­sent hlut. Raunar hafa ekki feng­ist upp­lýs­ingar um hvenær hóp­ur­inn sem nú á meiri­hluta í Stoðum hóf upp­kaup sín á bréf­um, hvað hann greiddi fyrir hlut­inn né hvernig þau kaup voru fjár­mögn­uð.

Hlutafé samtals 4,8 milljarðar króna

Í sam­þykktum félags­ins sem keypti hlut­inn, S122 ehf., er hlutafé þess félags um 4,1 millj­arður króna. Eina eign S122 er hlut­ur­inn í Stoðum/FL Group og félagið var stofn­sett í þeim eina til­gangi að kaupa þann hlut.

Hitt félagið sem keypti stóran hlut í Stoðum heitir S121 ehf. Það á 8,45 pró­sent hlut í félag­inu. Hlutafé þess er 700 millj­ónir króna. Fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar, sem hægt er að nálg­ast úr fyr­ir­tækja­skrá, benda því til þess að greitt hafi verið um 4,8 millj­arðar króna fyrir 48,73 pró­sent hlut í Stoðum snemma í vor.

Miðað við það verð mætti ætla að mark­aðsvirði Stoða væri um tíu millj­arðar króna.

Eina eft­ir­stand­andi eign Stoða/FL Group er 8,87 pró­sent hlutur í hol­lenska drykkja­vöru­fram­leið­and­anum Refresco. Um síð­ustu ára­mót var mark­aðsvirði þess hlutar um 12 millj­arðar króna sam­kvæmt árs­reikn­ingi Stoða.

Samkvæmt kynn­ingu sem haldin var á hlut­hafa­fundi Stoða/21. apríl síð­ast­lið­inn, eftir að kaupin voru öll um garð gengin, kom fram að virði hlut­ar­ins væri um 128 millj­ónir evra, sem er 15,9 millj­arðar króna á núvirði. Síðan þá hefur hluta­bréfa­verð í Refresco reyndar fallið um átta pró­sent. Virðið í dag ætti því að vera um 14,6 millj­arðar króna.

[adspot]Í apríl gerði félagið PAI Partners SAS, sem er fjár­­­fest­inga­­fé­lag sem ein­blínir á Evr­­ópu­­mark­að, yfir­­­tökutil­­boð í Refresco. Til­boðið var upp á 1,4 millj­arða evra. Sam­kvæmt því til­boði myndu Stoðir fá 15,4 millj­arða króna fyrir sinn hlut á núvirði. Það er aðeins minna en skráð mark­aðsvirði Refresco en umtals­vert meira en þeir 12 millj­arðar króna sem hlut­ur­inn var met­inn á í árs­reikn­ingi Stoða fyrir árið 2016. Til­boð­inu var hins vegar hafnað. Það þótti ekki nægi­lega gott.

Því virð­ist ljóst að hóp­ur­inn sem keypti hlut­inn í Stoðum snemma á þessu ári, í við­skiptum sem litlar upp­lýs­ingar fást um, hefur hagnað mjög vel á fjár­fest­ingu sinni. Við­mæl­endur Kjarnans í við­skipta­líf­inu segja fyr­ir­liggj­andi að saman hafi hóp­ur­inn þegar hagn­ast, bók­halds­lega, um nokkra millj­arða króna.

Gamlir lykilmenn úr FL og stjórnarmenn TM

En hverjir eru í þessum hópi? S122 (áður Ell 323) og S122 eru í eigu fjög­urra einka­hluta­fé­laga og eins skráðs félags, Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar. Félögin fjögur heita Helg­ar­fellehf., Esju­borg ehf., Einir ehf. og GGH ehf. Þrjú þeirra, eru í eigu aðila sem eru líka stórir hlut­hafar í Trygg­ing­ar­mið­stöð­inni. Og eig­endur þeirra voru margir hverjir lyk­il­menn í FL Group á árunum fyrir hrun.

Esju­borg er í 50 pró­sent eigu félags sem heitir Jökla­borg. Það er skráð í 100 pró­sent eigu Jóhanns Arn­ars Þór­ar­ins­son­ar, for­stjóra og eins stærsta eig­anda veit­ing­aris­ans Foodco. Hinn helm­ing­ur­inn í Esju­borg er í eig Riverside Capi­tal SARL, félags sem er skráð í Lúx­em­borg. Sam­kvæmt Panama­skjöl­unum er það félag í end­an­legri eigu For­town Corp, félags skráð á Möltu. Eig­andi þess félags er Örvar Kærne­sted. RiversideCapi­tal á líka 2,63 pró­sent hlut í Trygg­inga­mið­stöð­inni í gegnum íslenska félagið Riverside Capi­tal ehf. Hann situr einnig í stjórn Trygg­inga­mið­stöðv­ar­inn­ar. Örvar var yfir starf­semi FL Group í London um tíma fyrir banka­hrun og þar áður hjá Kaup­þingi í níu ár. Hann er nú umsvifa­mik­ill fjár­fest­ir. Hann sett­ist í stjórn Stoða á síð­asta aðal­fundi félags­ins, se fór fram 21. apríl síð­ast­lið­inn.

Einar Örn Ólafs­son er líka á meðal eig­enda Trygg­inga­mið­stöðv­ar­inn­ar. Hann á 2,76 pró­sent hlut í henni í gegnum félag sitt Einir ehf. Það félag er líka á meðal þeirra sem náð hafa yfir­ráðum í Stoð­um. Einar starf­aði hjá Glitni og síðar Íslands­banka á árum áður. Hann var meðal ann­ars for­stöðu­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Íslands­banka fyrstu mán­uð­ina eftir að bank­inn var end­ur­reistur eftir hrun­ið. Hann gerð­ist síðan for­stjóri Skelj­ungs í maí 2009 eftir að hafa hætt hjá bank­anum vegna trún­að­ar­brests. Hann er í dag umsvifa­mik­ill fjár­fest­ir.

Stærsti ein­staki eig­andi að hlutum í Trygg­inga­mið­stöð­inni, að und­an­skildum líf­eyr­is­sjóðum og sjóðs í stýr­ingu Stefn­is, er félag sem heitir Helg­ar­fell ehf. með 6,34 pró­sent hlut. Helg­ar­fell er líka á meðal þeirra félaga sem keyptu stóran hlut í Stoðum með Trygg­ing­ar­mið­stöð­inni á síð­ustu mán­uð­um.

Eig­endur Helg­ar­fells eru Björg Fen­ger, Kristín Fen­ger Ver­munds­dóttir og Ari Fen­ger. Björg er eig­in­kona Jóns Sig­urðs­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra FL Group/Stoða. Jón tók við sem stjórn­ar­for­maður Stoða á síð­asta aðal­fundi félags­ins fyrir tæpum mán­uði síð­an.

Fjórða félagið sem er stór eig­andi í S122 og S121 heitir GGH ehf. Eig­endur þess eru Gruppen ehf. (í eigu hol­lenska félags­ins Golden Gate Mana­gement BV, sem teng­ist Magn­úsi Ármann), Ágúst Már Ármann (faðir Magn­úsar Ármann), og BNB Consulting (fé­lag í eigu Bern­hards Boga­son­ar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra lög­fræð­is­sviðs FLGroup) sem á eitt pró­sent hlut. Magnús Ármann var á meðal hlut­hafa í FL Group fyrir hrun og sat í stjórn félags­ins.

Sam­starfs­að­ili hóps­ins er félagið Tavira Securities sem er í eigu óþekkts hol­lensk fjár­fest­is.

Félögin sem notuð voru til að kaupa hluti í Stoðum hafa þegar skipt um stjórn­ir. Í S121er Gunnar Sturlu­son lög­maður í stjórn. Hann var lengi vel náinn sam­starfs­maður Hann­esar Smára­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra FL Group, var lög­maður hans, sat í stjórnum og var skráður fram­kvæmda­stjóri félaga í eigu Hann­es­ar. Gunnar er líka í stjórn S122. Þar situr hann ásamt Þor­steini M. Jóns­syni, sem á árum áður var oft­ast kenndur við kók. Þor­steinn átti hlut í FL Group fyrir banka­hrun­ið, sat í stjórn félags­ins og tók við sem stjórn­ar­for­maður Glitnis um tíma eftir að FL Group og tengdir aðilar náðu yfir­ráðum yfir bank­an­um.

Bæði Jón Sig­urðs­son og Þor­steinn M. Jóns­son hafa setið í stjórn Refresco fyrir hönd íslenskra eig­enda. Jón situr þar raunar enn og hefur gert frá 2009.

„Vegur lang þyngst í afkomunni“

Trygg­inga­mið­stöðin birti hálfs­árs­upp­gjör sitt í síð­ustu viku. Þar kemur fram að mjög vel hafi gengið í fjár­fest­inga­starf­semi félags­ins á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2017. Í fjár­festa­kynn­ingu sem haldin var í tengslum við upp­gjörið kom fram að eign­ar­hlutur Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar í Stoðum er bók­færður á tæp­lega 1,8 millj­arða króna.

Í kynn­ing­unni var einnig greint frá því að mjög góð afkoma hafi verið af óskráðum hluta­bréfum í eigu Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar á fyrri hluta árs­ins, en ávöxtun þeirra var 9,5 pró­sent á tíma­bil­inu. . Sigurður Við­ars­son, for­stjóri Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar, sagði á fjár­fest­inga­kynn­ing­unni að þarna vegi „ lang þyngst ný eign, sem við keyptum í vor, þegar við keyptum ásamt öðrum fjár­festum meiri­hluta í Stoðum, sem eiga eina eign, eign­ar­hlut í Refresco. Það veldur því að óskráðu hluta­bréfin hækk­uðu meira en við höfðum gert ráð fyrir og vegur lang þyngst í afkom­unni þarna.“

Því er ljóst að fjár­fest­ingin hefur skilað Trygg­inga­mið­stöð­inni, og einka­fjár­fest­unum sem tóku þátt í henni með félag­inu, mönnum sem sitja í stjórn Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar og eru í hlut­hafa­hópi félags­ins, mik­illi ávöxtun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár