Þétt byggð sem skapi grundvöll fyrir bættum almenningssamgöngum skynsamlegust

Alex­andra Briem segir Pírata vilja hraða upp­bygg­ingu Borg­ar­línu og bjóða upp á sex tíma ókeypis dag­vistun en að gjald fyrir átta tíma vistun verði óbreytt. Píratar eru með sér­staka dýra­vel­ferð­ar­stefnu.

Alexandra kveðst ánægð með meirihlutasamstarfið í borginni.
Alex­andra kveðst ánægð með meiri­hluta­sam­starfið í borg­inni. Mynd: Arnar Þór

Alex­andra Briem sem skipar annað sæti á lista Pírata í Reykja­vík segir að umhverfið sé í fyrsta sæti í stefnu Pírata og að allar ákvarð­anir borg­ar­innar eigi að taka með lofts­lags­á­hrif til hlið­sjónar. Vissu­lega geti það verið kostn­að­ar­samt að fara í miklar aðgerðir til að draga úr kolefn­islosun en slíkar aðgerðir en hún segir það draga úr kostn­aði þegar fram í sækir.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í kosn­inga­hlað­varpi Kjarnans, Með orðum odd­vit­anna, þar sem Eyrún Magn­ús­dóttir ræðir við fram­bjóð­endur úr þeim ell­efu flokkum sem bjóða sig fram í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fram fara næst­kom­andi laug­ar­dag.

Vilja fækka bílferðum í borginni

Að sögn Alexöndru hefur ekki orðið nein kúvend­ing á stefnu flokks­ins á síð­ustu árum en hún segir að búið sé að skerpa á stefn­unni. Mikil áhersla er lögð á upp­bygg­ingu Borg­ar­línu í stefnu flokks­ins. „Við viljum ganga lengra í að byggja upp borg­ar­lín­una, gera það hraðar. Við viljum þétta byggð­ina, við stöndum 100 pró­sent á bak­við það. Við teljum að það sé skyn­sam­leg­asta nýt­ingin á landi og innviðum og þannig getum við dregið úr umferð og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda,“ segir Alex­andra að bætir því við að margir sem iðki bíl­lausan lífs­stíl upp­lifi það sem jað­ar­sport.

Hún segir mark­miðið ekki vera að gera alla í borg­inni bíl­lausa heldur að fækka fjölda bíl­ferða í borg­inni. Það minnki þar að auki umferð­ar­þung­ann á göt­unum. „Besta leiðin til þess draga úr traffík, líka fyrir þau sem eru á bíl, er að efla almenn­ings­sam­göngur,“ segir Alex­andra.

„Reykja­vík hefur til ára­tuga verið byggð upp þannig að fólk þurfi nokkurn veg­inn að vera á bíl ef það getur. Við teljum það vera mikil mis­tök sem þarf að vinda ofan af. Við viljum bjóða upp á val­mögu­leika. Við sjáum í skoð­ana­könn­unum að fleiri vilja nota bíl­inn minna eða mögu­lega ekk­ert heldur en geta það. Það er mjög mik­il­vægt að bjóða fólki upp á þann mögu­leika.“

Þétt byggð dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda

Alex­andra segir þétta byggð skapa grund­völl fyrir góðum almenn­ings­sam­göngum. Til dæmis séu fá hverfi í Reykja­vík það þétt að þau gætu borið spor­vagna­kerfi. Hún bendir á að Borg­ar­línu­kerfið sé þannig úr garði gert að hægt verði að breyta því í spor­vagna­kerfi ef vilji verður fyrir hendi síðar meir. Að mati Alexöndru er mik­il­vægt að þétta byggð mið­svæðis í borg­inni, í hverfis­kjörnum og með­fram Borg­ar­línu­ásum. Það tryggi líka rekstr­ar­grund­völl í nærum­hverfi íbú­anna.

„Því þétt­ari sem við höfum byggð­ina á ákveðnum stöðum, því meiri líkur eru á því að þessi þjón­usta sé nálægt þér og þá get­urðu labbað eða hjólað og þarft ekki að fara endi­lega á bílnum. Þá dregur það líka úr traffík­inni fyrri þá sem þurfa að fara borg­ar­hluta á milli og geta ekki notað almenn­ings­sam­göng­urnar. Þannig að þetta er heild­rænt besta leiðin til þess að draga úr losun, draga úr traffík og auka lífs­gæði fólks,“ segir Alex­andra.

Hún bendir á að vissu­lega geti það verið ódýr­ara í upp­bygg­ingu að byggja dreift en að það muni á end­anum verða dýr­ara fyrir sam­fé­lagið vegna dreifð­ari inn­viða. Dreifðri byggð fylgi líka aukin umferð með til­heyr­andi losun koldí­oxíðs og álagi á gatna­kerfið.

Sex tíma gjaldfrjáls leikskóli

Í leik­skóla­málum vilja Píratar geta boðið upp á sex tíma gjald­frjálsan leik­skóla. Alex­andra segir að boðið verði upp á lengri dag­vistun en sex tíma en að umfram­tím­arnir verði þá dýr­ari. Þannig muni átta tíma dag­vistun í kerf­inu sem Píratar vilja koma á fót kosta jafn mikið og átta tíma dag­vistun í dag.

Spurð að því hvort búið sé að kostn­að­ar­meta sex klukku­stunda ókeypis dag­vistun segir Alex­andra að Píratar telji kostnað borg­ar­innar verða þann sama í nýju kerfi, aðal­lega vegna þess að í nýju kerfi sparist útgjöld leik­skól­anna á móti lægri tekjum, til að mynda launa­kostn­aður.

Ánægð með meirihlutasamstarfið

Eitt af þeim stefnu­málum sem ef til vill fer meira fyrir í stefnu Pírata en í stefnu ann­arra flokka eru dýra­mál. „Við erum dýra­vinir og dýra­vel­ferð­ar­stefnan er ekki jafn kostn­að­ar­söm og nafnið gefur til kynna,“ segir Alex­andra. „Við viljum hunda­gerði í öll hverfi eða í það minnsta lausa­göngu­svæði. Við viljum fá betri þjón­ustu við dýr og dýraunn­endur. Við viljum tryggja öryggi lausa­göngu­katta og lausa­göngu­kan­ína.“

Alex­andra segir Pírata vera ánægða með sam­starfið í borg­inni. Vinnan miði hins vegar oft­ast að því að fikra sig í átt að mála­miðl­unum sem allir geti sætt sig við. „Ef við viljum Píra­ta­legri áherslur í borg­ar­stjórn þá þurfum við fleiri Pírata í borg­ar­stjórn,“ segir hún.

Spurð að því hvort Píratar geti unnið með hvaða flokki sem er segir Alex­andra svo ekki vera. „Það myndi ég ekki segja. Ég er mjög opin fyrir ýmsum mögu­leikum og við erum það held ég bara flest en við höfum úti­lokað, og ég tel að við gerum það áfram, bein­línis sam­starf við flokka sem við teljum að sé ekki treystandi, að það sé ekki hægt að stóla á þá. Svo ég segi það skýrt, ég myndi ekki vilja með Sjálf­stæð­is­flokknum og ég myndi ekki vilja vinna með Mið­flokknum. Allt annað er alveg til umræðu. Mis­mik­illar umræðu vissu­lega en ég per­sónu­lega úti­loka bara þessa tvo flokka.“

Hægt er að hlusta á við­talið við Alexöndru í heild sinni í spil­­ar­­anum hér að neð­an:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórnarkosningar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár