Tæknilausnir og einföldun stofnæða með mislægum gatnamótum í stað Borgarlínu

Oddviti Mið­flokks­ins í Reykja­vík vill leysa hús­næð­is­vand­ann með því að flýta skipu­lags­málum og byggja hraðar. Víða sé hægt að byggja til að mynda í Örfirisey, Gufunesi, á Kjal­ar­nesi og Keldum. Hann segir flokk­inn alfarið á móti Borg­ar­línu.

„Hvað þjónar íbúunum best, er það að vera með eina sameiginlega stjórnsýslu fyrir allt höfuðborgarsvæðið?“ spyr Ómar Már Jónsson í kosningahlaðvarpi Kjarnans en hann telur það geta haft mikinn sparnað í för með sér.
„Hvað þjónar íbú­unum best, er það að vera með eina sam­eig­in­lega stjórn­sýslu fyrir allt höf­uð­borg­ar­svæðið?“ spyr Ómar Már Jónsson í kosn­inga­hlað­varpi Kjarnans en hann telur það geta haft mik­inn sparnað í för með sér. Mynd: Bára Huld Beck

„Þegar ég kem vestur þá þekkja mig flestir þegar ég kem út á götu en þegar ég labba Lauga­veg­inn þekkir mig eng­inn. Mig langar rosa­lega mikið inn í þetta. Ég horfi á þetta sem krefj­andi verk­efni, miklar áskor­anir en ég tel svo auð­velt að gera betur,“ segir Ómar Már Jónsson odd­viti Mið­flokks­ins í Reykja­vík í við­tali í hlað­varps­þætt­inum Með orðum odd­vit­anna í hlað­varpi Kjarnans. Vestur, segir Ómar, því hann hefur tölu­verða reynslu úr sveit­ar­stjórn­ar­málum á Vest­fjörðum. Hann tók við starfi sveit­ar­stjóra Súða­vík­ur­hrepps árið 2002 og gegndi því í tólf ár, auk þess sem hann sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2006.

Nú er hann kom­inn til þess að „banka á dyrnar“ í borg­inni eins og hann orðar það, undir merkjum Mið­flokks­ins sem býður fram undir slag­orð­inu „Meiri borg“. Eitt af helstu áherslu­málum flokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar eru hús­næð­is­málin en Ómar segir neyð­ar­á­stand ríkja í hús­næð­is­málum í borg­inni.

„Það er óeðli­legt að sveit­ar­fé­lag eins og Reykja­vík­ur­borg sé í þeirri stöðu að það vanti fjög­ur­þús­und eignir inn á mark­að­inn, fjögur þús­und íbúðir. Þessi neyð­ar­staða hefur orðið til þess að fast­eigna­verð hefur tvö­fald­ast á örfáum árum sem hefur gert ungu fólki nán­ast ómögu­legt að kom­ast í eigið hús­næði. Leigu­verð er komið upp fyri öll eðli­leg mörk og þetta ófremd­ar­á­stand er af manna­völdum. Ég vil meina að þetta sé tengt kerf­is­vanda , alvar­legum kerf­is­vanda í borg­inni og skort á fyr­ir­hyggju.“

Víða hægt að byggja

Að mati Ómars tapi allir á ástand­inu nema borgin sjálf: „Það er einn aðili sem hagn­ast hvað mest á þessu og það er borgin sjálf en á kostnað íbú­anna. Með hækkun á fast­eigna­verði verður hækkun á fast­eigna­mati sem þýðir meiri tekjur í kassa borg­ar­sjóðs.“

Hann segir að hægt sé að bæta ástandið með betri áætl­unum og fyr­ir­hyggju og að Mið­flokk­ur­inn muni beita sér fyrir því að flýta skipu­lags­málum og byggja hraðar. Hvað þétt­ingu varðar segir Ómar Mið­flokk­inn ekki vera á móti þétt­ingu en að hún þurfi að vera ein­hverjum tak­mörk­unum háð.

„Það er gríð­ar­lega víða sem hægt er að byrja að byggja, það er í Örfirisey, á Kjal­ar­nesi, Gufunesi, Keldum og það er allt í lagi að þétta byggð­ina eins og fók­us­inn hefur verið allt of mik­ill á en það má ekki gera það með þeim hætti að fast­eigna­mark­að­ur­inn sé lagður í rúst á sama tíma.“

Alfarið á móti Borgarlínu

Spurður út í þær áskor­anir sem geta skap­ast í kjöl­far dreif­ingar byggðar með til­liti til sam­gangna segir Ómar Mið­flokk­inn vera alfarið á móti Borg­ar­línu. „Ég var nú sveit­ar­stjóri í litlu sveit­ar­fé­lagi, Súða­vík­ur­hreppi og nú er ég að banka á dyrnar hjá borg­inni og þegar við horfum á mun­inn á milli að vera í litlu sveit­ar­fé­lagi og koma inn í borg­ina þá vissu­lega er Súða­vík­ur­hreppur lít­ill í sam­an­burði við Reykja­vík en Reykja­vík er líka agn­arsmá í sam­an­burði við aðrar borgir í Evrópu og borg­ar­línan er svona apparat sem að sómir sér rosa­lega vel í stærri borgum, þriggja millj­óna manna borgum eða fimm, sex millj­óna manna borgum.“

Ómar segir að frekar þurfi að horfa til þess að nýta stofnæðar borg­ar­innar betur. Þær séu aftur á móti illa nýttar vegna þess að stærsti hluti umferð­ar­innar rennur í gegnum stofnæð­arnar á umferða­teppu­tímum og á rauðu ljósi. „Með því að ein­falda stofnæða­kerfið með mis­lægum gatna­mótum, með því að taka gang­andi fólk af þessum stofnæðum ann­að­hvort með und­ir­göngum eða yfir stofnæð­arnar og mynda þannig óhindrað flæði, þá er mjög ein­fald­lega hægt að leysa þessar stíflur sem við búum við í dag,“ segir Ómar og bætir því við að slíkar lausnir muni kosta brot af af því sem borg­ar­línan muni koma til með að kosta.

Hann segir að eina leiðin til þess að fjölga not­endum almenn­ings­sam­gangna sé að þvinga einka­bíl­inn af göt­unum. „Það er þvingun sem við höfnum algjör­lega vegna þess að við viljum stuðla að frelsi ein­stak­ling­anna til þess að velja sinn eigin sam­göngu­máta en ekki láta borg­ina velja fyrir okkur.“

Að mati Ómars geta deili­bíla­leigur á borð Zipcar og skutl­þjón­ustur á borð við Uber einnig minnkað álagið í umferð­inni. „Ég tel að tæknin sem við sjáum fram undan muni að mörgu leyti sjálf leysa úr þessum áhyggjum sem meiri­hlut­inn og fleiri eru með í borg­inni.“

Vill fjölbreytileika í skólakerfinu

Eitt af þeim málum sem fram­bjóð­endur Mið­flokks­ins hafa sterkar skoð­anir á eru skóla­mál, enda oft­ast dýr­asti og stærsti mála­flokkur hvers sveit­ar­fé­lags líkt og Ómar bendir á. Hann segir að mik­il­vægt sé að huga að þörfum ólíkra hópa í skóla­kerf­inu en einnig að skól­arnir séu ekki allir steyptir í sama mót.

„Við eigum að búa til meiri fjöl­breyti­leika í skóla­kerf­inu, í grunn­skól­unum og við eigum að gera það með því að vald­efla skóla­stjóra og kenn­ara. Það er eng­inn í betri stöðu heldur en stjórn­endur skól­anna til þess að útfæra hvaða aðferða­fræði virkar fyrir hvern hóp. Skól­arnir eru mis­mun­andi, nem­end­urnir eru mis­mun­andi, þarf­irnar eru mis­mun­andi.“

Spurður að því hvernig Mið­flokk­ur­inn sjái fyrir sér að spara á móti auknum kostn­aði, til dæmis í skóla­málum, segir Ómar að taka þurfi til í starfs­manna­málum borg­ar­innar. „Reykja­vík er ekki stór borg, hún er lítil borg. Hér búa ein­ungis 140 þús­und manns en hjarta okkur Íslend­inga er stórt og við hugsum borg­ina stóra. Það er frá­bært, hún er ein heitasta borgin í Evrópu en hún er ekki stór. Að vera að blása út kerfið, að starfs­manna­fjöldi borg­ar­innar sé kom­inn í 12 þús­und manns segir mér að eitt­hvað sé að.“

Mætti sameina stjórnsýslu höfuðborgarsvæðisins?

Hann bendir á að eftir banka­hrun hafi fyr­ir­tæki í B-hluta borg­ar­innar náð að sinna þjón­ustu­hlut­verki sínu þrátti fyrir að hafa þurft að segja upp allt að helm­ingi starfs­fólks. Vissu­lega geti verið gott að hafa margt starfs­fólk til að gera „alls konar“ en það megi ekki vera á kostnað íbú­anna.

„Þar mundi ég vilja horfa á það að setja algjört ráðn­ing­ar­stopp í borg­inni en verja alla grunn­þjón­ustu, bæta í snemmtæka íhlutun og eft­ir­fylgni með þeim sem þess þurfa í skóla­kerf­inu. Ein­beitum okkur að þeim lög­bundnu verk­efnum sem borgin á að vera að sinna. Við erum ekki að því í dag, borgin er að þjóna sjálfri sér með allt of mikið af gælu­verk­efnum,“ segir Ómar og minn­ist sam­þætt­ingar á þjón­ustu sem ráð­ist var í fyrir vestan á hans tíð.

„Ég held að það væri hægt að ná fram gríð­ar­legum sparn­aði með því að skoða á heið­ar­legan, sann­gjarnan og hlut­lausan hátt með hag íbú­anna í fyr­ir­rúmi. Hvað þjónar íbú­unum best, er það að vera með eina sam­eig­in­lega stjórn­sýslu fyrir allt höf­uð­borg­ar­svæðið?“ spyr Ómar og segir þetta vera spurn­ingu sem áhu­ag­vert gæti verið að skoða.

„Vegna þess að þetta snýst um íbú­ana, þetta snýst ekki um sveit­ar­fé­lögin. Þetta snýst um að þjóna íbú­unum og að gera það vel.“

Hægt er að hlusta á við­talið við Ómar Má í heild sinni í spil­ar­anum hér að neð­an:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórnarkosningar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár