Lokaniðurstöður í stærstu sveitarfélögunum – Meirihlutinn fallinn í Reykjavík

Meiri­hlut­inn er fall­inn í Reykja­vík en heldur í flestum nágranna­sveit­ar­fé­lög­unum, nema Mos­fellsbæ. Spenn­andi kosn­inga­nótt er lokið. Kjarninn tók saman loka­nið­ur­stöður í nokkrum af stærstu sveit­ar­fé­lög­unum.

Meirihlutinn í Reykjavík er fallinn og snúnar meirihlutaviðræður eru fram undan.
Meiri­hlut­inn í Reykja­vík er fall­inn og snúnar meiri­hluta­við­ræður eru fram undan. Mynd: Bára Huld Beck

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærstur í Reykja­vík og meiri­hlut­inn er fall­inn. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vinnur stóran kosn­inga­sigur og fær fjóra borg­ar­full­trúa, en flokk­ur­inn náði ekki inn manni í kosn­ing­unum fyrir fjórum árum.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er sömu­leiðis sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna á lands­vísu þar sem hann tvö­faldar fylgi sitt frá síð­ustu kosn­ingum og fær 22 fleiri full­trúa kjörna nú en fyrir fjórum árum, úr um 8,5 pró­sentum á lands­vísu og 45 kjörna full­trúa í rúm átján pró­sent og 67 full­trúa kjörna.

Nýjar kosn­inga­reglur hægðu á taln­ingu, sér­stak­lega í Reykja­vík þar sem biðin eftir fyrstu tölum var hvað lengst. Nýju regl­urnar eru þannig að gera þarf grein fyrir því hvaða taln­ing­ar­maður telur hvern bunka. Þegar fyrstu tölur bár­ust loks klukkan 1.41 var strax ljóst í hvað stefndi: Meiri­hlut­inn féll.

Hér má sjá loka­nið­ur­stöður í nokkrum af stærstu sveit­ar­fé­lögum lands­ins en alls var kosið til sveit­ar­stjórna í 62 af 64 sveit­ar­fé­lögum lands­ins í gær. Í tveimur sveit­ar­fé­lögum var sjálf­kjörið þar sem ein­ungis einn listi kom fram.

Snúin staða í Reykjavík

Staðan í Reykja­vík er snúin. Meiri­hlut­inn er fall­inn. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærstur en missir tvo menn, Píratar bæta við sig manni, Sós­í­alistar bæta við sig einum manni, Viðreisn tapar einum manni og Mið­flokk­ur­inn tapar sínum manni. Staða Vinstri grænna og Flokks fólks­ins er óbreytt, hvor flokk­ur­inn er með einn borg­ar­full­trúa. Hvorki Reykja­vík, besta borgin né Ábyrg fram­tíð ná inn manni.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri sagði eftir að fyrstu tölur voru birtar að núver­andi meiri­hluti ætti að ræða málin á morgun (í dag) og að það yrði eðli­legt skref að ræða við aðra flokka ef meiri­hlut­inn væri fall­inn.

Lokaniðurstaða í Reykjavík:

Sjálf­stæð­is­flokkur: 24,5 pró­sent - 6 full­trúar

Sam­fylk­ing: 20,3 pró­sent - 5 full­trúar

Fram­sókn­ar­flokkur: 18,7 pró­sent - 4 full­trúar

Píratar: 11,6 pró­sent - 3 full­trúar

Sós­í­alista­flokk­ur­inn: 7,7 pró­sent - 2 full­trúar

Viðreisn: 5,2 pró­sent - 1 full­trúi

Flokkur fólks­ins: 4,5 pró­sent - 1 full­trúi

Vinstri græn: 4 pró­sent - 1 full­trúi

Mið­flokk­ur­inn: 2,4 pró­sent

Ábyrgð fram­tíð: 0,8 pró­sent

Reykja­vík, besta borgin: 0,2 pró­sent

Á kjör­skrá: 100.405

Kjörsókn: 61,1 pró­sent

Íbúahópur vann mikinn kosningasigur í Kópavogi en meirihlutinn heldur

Meiri­hlut­inn í Kópavogi, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, heldur en Vinir Kópavogs, nýtt fram­boð sem hefur m.a. lagt áherslu á breytta breytta skipu­lags­stefnu í bæj­ar­fé­lag­inu, er næst­stærsti flokk­ur­inn í sveit­ar­fé­lag­inu og fær tvo bæj­ar­full­trúa.

Sjálf­stæð­is­menn missa einn mann en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir við sig manni. Vinir Kópavogs fá tvo menn kjörna og Sam­fylk­ing og Viðreisn missa einn mann hvor en Píratar halda sínum manni. Mið­flokk­ur­inn nær ekki inn manni.

Lokaniðurstaða í Kópavogi:

Sjálf­stæð­is­flokkur: 33,3 pró­sent - 4 full­trúar

Vinir Kópavogs: 15,3 pró­sent - 2 full­trúar

Fram­sókn­ar­flokkur: 15,2 pró­sent - 2 full­trúar

Viðreisn: 10,7 pró­sent - 1 full­trúi

Píratar: 9,5 pró­sent - 1 full­trúi

Sam­fylk­ing: 8,2 pró­sent - 1 full­trúi

Vinstri græn: 5,3 pró­sent

Mið­flokk­ur­inn: 2,6 pró­sent

Á kjör­skrá: 28.923

Kjörsókn: 59,2 pró­sent[adspot]

Fyrrverandi bæjarstjóri snýr aftur í bæjarstjórn eftir 29 ára hlé

Meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks í Hafn­ar­firði heldur en stóru frétt­irnar eru þær að Sam­fylk­ingin, með fyrr­ver­andi bæj­ar­stjór­ann Guðmund Árna Stef­áns­son í far­ar­broddi, bætir við sig tveimur bæj­ar­full­trúum. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir við sig manni en bæði Bæj­ar­list­inn og Mið­flokk­ur­inn missa sína bæj­ar­full­trúa. Viðreisn heldur sínum manni.

Guð­mundur Árni, sem verður 67 ára í haust, til­kynnti nokkuð óvænt um end­ur­komu sína í stjórn­mál í jan­úar. Hann hefur áður verið leið­andi afl í bæj­­­ar­­stjórn­­­arpóli­­tík í Hafn­­ar­­firði. Hann sat í bæj­­­ar­­stjórn í tólf ár á síð­­­ustu öld, þar af sem bæj­­­ar­­stjóri í sjö. Guð­­mundur Árni steig upp úr þeim stóli 1993, fyrir 29 árum síð­­an, og sett­ist á þing í kjöl­farið fyrir Alþýð­u­­flokk­inn.

Guð­mundur Árni mun að öllum lík­indum ekki snúa aftur í bæj­ar­stjóra­stól­inn en nið­ur­stöður kosn­ing­anna gefa til kynna að Rósa Guð­bjarts­dóttir verði áfram bæj­ar­stjóri í meiri­hluta­sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks.

Lokaniðurstaða í Hafnarfirði:

Sjálf­stæð­is­flokkur: 30,7 pró­sent - 4 full­trúar

Sam­fylk­ing: 29 pró­sent - 4 full­trúar

Fram­sókn­ar­flokkur: 13,7 pró­sent - 2 full­trúar

Viðreisn: 9,1 pró­sent - 1 full­trúi

Píratar: 6,1 pró­sent - 1 full­trúi

Bæj­ar­list­inn: 4,3 pró­sent

Vinstri græn: 4,3 pró­sent

Mið­flokk­ur­inn: 2,8 pró­sent

Á kjör­skrá: 21.744

Kjörsókn: 60,4 pró­sent

Úr tveimur flokkum í fjóra í Garðabæ

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fer í fyrsta sinn undir 50 pró­sent og tapar einum bæj­ar­full­trúa í Garðabæ.

Garða­bæj­ar­list­inn tapar einum manni og fær tvo full­trúa, en Viðreisn sem klauf sig frá Garða­bæj­ar­list­anum og bauð fram sjálf­stætt nú fær einnig einn full­trúa. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn nær svo einum manni inn í bæj­ar­stjórn­ina, sem er skipuð 11 full­trúum.

Fjórir flokkar munu eiga full­trúa í bæj­ar­stjórn Garða­bæjar á kom­andi kjör­tíma­bili, tveimur fleiri en eftir síð­ustu kosn­ingar.

Lokaniðurstaða í Garðabæ:

Sjálf­stæð­is­flokkur: 49,1 pró­sent - 7 full­trúar

Garða­bæj­ar­list­inn: 20,9 pró­sent - 2 full­trúar

Viðreisn: 13,3 pró­sent - 1 full­trúi

Fram­sókn­ar­flokkur: 13,1 pró­sent - 1 full­trúi

Mið­flokk­ur­inn: 3,7 pró­sent

Á kjör­skrá: 13.630

Kjörsókn: 64,1 pró­sent

Engin óvænt úrslit á Seltjarnarnesi

Engin breyt­ing verður á bæj­ar­stjórn­inni á Sel­tjarn­ar­nesi, hvorki frá síð­asta kjör­tíma­bili né fjórtán kjör­tíma­bilum þar á undan ef út það er farið. Núver­andi meiri­hluti á Sel­tjarn­ar­nesi er skip­aður full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og hefur svo verið um ára­tuga skeið.

Þrír flokkar voru í fram­boði: Fram­tíð­ar­list­inn, sem Karl Pétur Jónsson leiðir, Sam­fylk­ing og óháðir, sem Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son leiðir og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn undir for­ystu Þórs Sig­ur­geirs­sonar. Þór er fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi og sonur Sig­ur­geirs Sig­urðs­son, sem sat í bæj­ar­stjórn í fjöru­tíu ár og var bæj­ar­stjóri (sveit­ar­stjóri) mestan þann tíma. Sig­ur­geir lést árið 2017, 82 ára að aldri. Útlit er því fyrir að sonur bæj­ar­stjóra sé að verða bæj­ar­stjóri á Sel­tjarn­ar­nesi.

Lokaniðurstaða á Seltjarnarnesi:

Sjálf­stæð­is­flokkur: 50,1 pró­sent - 4 full­trúar

Sam­fylk­ing og óháðir: 40,8 pró­sent - 3 full­trúar

Fram­tíðin: 9,1 pró­sent

Á kjör­skrá: 3.477.

Kjörsókn: 72,8 pró­sent.

Framsókn í stórsókn í Mosó

Meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna í Mos­fellsbæ er fall­inn. Fram­sókn­ar­flokkur bætir við sig gríð­ar­legu fylgi og fær fjóra menn kjörna í bæj­ar­stjórn. Flokk­ur­inn hefur ekki átt mann í bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæjar frá árinu 2010. Á kjör­tíma­bil­inu á undan, árin 2006-2010, hafði hann einn full­trúa. Í síð­ustu kosn­ingum fékk flokk­ur­inn aðeins 2,9 pró­sent atkvæða.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með 32,2 pró­sent fylgi og heldur sínum fjórum mönnum, Vinir Mos­fells­bæjar með 13 pró­sent og fá einn og Sam­fylk­ing 9 pró­sent. Vinstri græn sem verið hafa í meiri­hluta sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokki síð­ustu árin eru með 5,9 pró­sent og ná ekki inn manni. Bæj­ar­full­trúum í Mos­fellsbæ var fjölgað fyrir kosn­ing­arnar og verða nú ell­efu í stað níu.

Lokaniðurstaða í Mosfellsbæ:

Fram­sókn­ar­flokkur: 32,2 pró­sent - 4 full­trúar

Sjálf­stæð­is­flokkur: 27,3 pró­sent - 4 full­trúar

Vinir Mos­fells­bæjar: 13 pró­sent - 1 full­trúi

Sam­fylk­ing: 9 pró­sent - 1 full­trúi

Viðreisn: 7,9 pró­sent - 1 full­trúi

Vinstri græn: 5,7 pró­sent

Mið­flokk­ur­inn: 4,9 pró­sent

Á kjör­skrá: 9.422

Kjörsókn: 61,2 pró­sent

Flóknar meirihlutaviðræður fram undan á Akureyri – Kattaframboðið nær ekki inn manni

L-listi bæj­ar­listi Akur­eyrar er stærsti flokk­ur­inn þar í bæ og bætir við sig einum manni og fær þrjá full­trúa, Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokkur halda sínum tveimur mönnum hvor og Sam­fylk­ingin sömu­leiðis. Flokkur fólks­ins, sem er að bjóða fram í fyrsta skipti á Akureyri, nær inn einum manni sem og Vinstri græn og Mið­flokk­ur­inn. Sjö flokkar náðu kjöri og útlit er fyrir flóknar meiri­hluta­við­ræður.

Bæj­ar­list­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin mynd­uðu meiri­hluta eftir kosn­ing­arnar 2018 en í sept­em­ber 2020 til­kynntu full­trúar í bæj­ar­stjórn að ákveðið hefði verið að afnema minni- og meiri­hluta í bæj­ar­stjórn það sem eftir lifir kjör­tíma­bils. Mark­miðið með því var mynda breiða sam­stöðu vegna sér­stakra aðstæðna í kjöl­far heims­far­ald­urs og í rekstri sveit­ar­fé­lags­ins. Ólíklegt verður að telj­ast að þessu breiða meiri­hluta­sam­starfi verði haldið áfram nú.

Lokaniðurstaða á Akureyri:

Bæj­ar­listi Akur­eyrar: 18,7 pró­sent - 3 full­trúar

Sjálf­stæð­is­flokkur: 18 pró­sent - 3 full­trúar

Fram­sókn­ar­flokkur: 17 pró­sent - 2 full­trúar

Flokkur fólks­ins: 12,2 pró­sent - 1 full­trúi

Sam­fylk­ing: 11,9 pró­sent - 1 full­trúi

Mið­flokk­ur­inn: 7,9 pró­sent - 1 full­trúi

Vinstri græn: 7,2 pró­sent - 1 full­trúi

Katta­fram­boðið: 4,1 pró­sent

Píratar: 3,1 pró­sent

Á kjör­skrá: 14.698

Kjörsókn: 64,1 pró­sent

Meirihlutinn fallinn í Árborg

Meiri­hluti Fram­sóknar, Sam­fylk­ingar, Mið­flokks og Áfram Árborg er fall­inn í Árborg og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nær hreinum meiri­hluta. Bæj­ar­full­trúum var fjölgað úr níu í ell­efu.

Lokaniðurstaða í Árborg:

Sjálf­stæð­is­flokkur: 46,4 pró­sent - 6 full­trúar

Fram­sókn­ar­flokkur: 19,3 pró­sent - 2 full­trúar

Sam­fylk­ing: 15,4 pró­sent - 2 full­trúar

Áfram Árborg: 7,9 pró­sent - 1 full­trúi

Vinstri græn: 6 pró­sent

Mið­flokkur: 5 pró­sent

Á kjör­skrá: 8.011

Kjörsókn: 63,8 pró­sent

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórnarkosningar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár