Ekki á réttri leið þegar fólk upplifir að ekki sé hlustað á það

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins segir ekki eðli­legt að þeir rík­ustu greiði ekk­ert útsvar af tekjum sínum og vill að tekjur vegna útsvars á fjár­magnstekju­skatt séu not­aðar í bygg­ingu félags­í­búða og upp­bygg­ingu grunn­þjón­ustu.

„Það fer ekki alveg saman hljóð og mynd, við tölum um að það þurfi að efla almenningssamgöngur en svo er bara verið að gera kerfið verra,“ segir Sanna.
„Það fer ekki alveg saman hljóð og mynd, við tölum um að það þurfi að efla almenn­ings­sam­göngur en svo er bara verið að gera kerfið verra,“ segir Sanna. Mynd: Arnar Þór

Eitt helsta áherslu­mál Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík er að útsvar verði lagt á fjár­magnstekjur. Launa­fólk greiði hluta af sínum tekjum til sveit­ar­fé­lags­ins sem fari í sam­eig­in­legan sjóð, nýttan til þjón­ustu og upp­bygg­ingar borg­ar­innar og að ekki sé eðli­legt að rík­asta fólkið, fólk sem hafi tekjur sínar af fjár­magni, þ.e. fjár­magnstekjur, sé ekki að greiða neitt af sínum tekjum til borg­ar­innar. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins og eini full­trúi flokks­ins í núver­andi borg­ar­stjórn, segir um að ræða mikið hags­muna­mál fyrir sveit­ar­fé­lags­ins, enda sé útsvar veiga­mesti tekju­stofn þeirra. Útsvar á fjár­magnstekju­skatt þurfi auð­vitað að setja með lögum á Alþingi, en rétt sé að Reykja­vík­ur­borg verði leið­andi í því ákalli.

Þetta kemur fram í við­tali hlað­varps Kjarnans fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar, Með orðum odd­vit­anna, við Sönnu, þar sem hún sagði borg­ina verða af mörgum millj­örðum á ári hverju vegna þess að ekk­ert útsvar sé lagt á tekjur þeirra rík­ustu.

Þá vill Sós­í­alista­flokk­ur­inn að borgin fari sjálf að byggja hús­næði sem henti borg­ar­búum og sér­stak­lega þeim verst settu. Sú nálgun sem notuð sé nú sé ekki að virka, 930 séu á biðlistum hjá Félags­bú­stöðum og það gangi ekki að þeir séu ein­ungis að kaupa íbúðir heldur þurfi að byggja. Þegar skoðað sé hjá Þjóðskrá hvaða ein­stak­lingar það eru sem eru að kaupa sér nýja íbúð sjá­ist að það sé erf­ið­ara fyrir fólk að kaupa sína fyrstu íbúð, á meðan fólk sem eigi þegar íbúð sé að kaupa íbúð númer tvö eða jafn­vel fyr­ir­tæki að kaupa íbúðir. Þannig sé hús­næði að fara í hend­urnar á eigna­fólki; litið sé á hús­næði sem fast­eign en ekki heim­ili. „Það á að líta að hús­næð­is­upp­bygg­ingu sem heim­ili fólks og mann­rétt­indi,“ segir Sanna, og vill að borgin byggi sjálf með sér­staka áherslu á upp­bygg­ingu félags­í­búða, sem sést hafi í lönd­unum í kring um okkur.

[links]Meðal þess sem tek­ist er á um fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar sem fram fara 14. maí er þétt­ing byggðar. Sanna segir þétt­ingu byggðar ágæta og að víða megi þétta, þó passa verði að það verði ekki of langt gengið í þeim efnum. Hins vegar sé ald­eri talað um hús­næð­is­stefn­una sjálfa þegar þétt­ing byggðar er nefnd. Ekki sé nóg að þétta og byggja ef hús­næðið sem byggt er henti ekki þörfum fólks og að ef íbúð­irnar séu of dýrar lagi það ekki hús­næð­is­vand­ann. Formúlan sem hafi verið í notkun síð­ustu ár skilji alltaf eitt­hvað fólk eftir, upp­bygg­ing­ar­á­ætl­unin sé ekki hönnuð að þörfum þeirra verst settu, og vísar Sanna meðal ann­ars til skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar sem sýndi að 860 byggju í atvinnu­hús­næði í Reykja­vík. Skoða þurfi hvernig íbúðir sé verið að byggja, hver sé að byggja þær og að félags­lega nálgun þurfi. „Annars endum við bara með íbúðir sem eng­inn er að kalla eftir.“

Betri samgöngur núna

Hvað Borg­ar­lín­una varðar segir Sanna að allt sem miði að því að efla almenn­ings­sam­göngur sé gott, en ekki á þeim for­sendum að fólk þurfi að sætta sig við nið­ur­skurð á núver­andi kerfi með lof­orði um að allt verði betra í fram­tíð­inni. Alltaf sé spurt um við­horf til Borg­ar­línu í fram­tíð­inni en aldrei rætt um kerfið eins og það sé í dag. Þjónusta Strætó hafi orðið fyrir tals­verðum skerð­ingum nýverið, sem sé mjög vont fyrir fólk sem treysti á Strætó núna og hafi ekki aðra val­mögu­leika, auk þess sem verðið á nokkrum árskortum hafi hækkað. „Það fer ekki alveg saman hljóð og mynd, við tölum um að það þurfi að efla almenn­ings­sam­göngur en svo er bara verið að gera kerfið verra,“ segir Sanna.

Vilja efla og manna gjaldfrjálsa leikskóla

Loks vill Sós­í­alista­flokk­ur­inn leggja áherslu á að efla og manna leik­skól­ana með því að bæta kjörin og hlusta á starfs­fólkið, auk þess sem huga þurfi að starfs­að­stæðum. Meira fjár­magn eigi að leggja í upp­bygg­ingu leik­skól­anna, þar sem um sé að ræða grunn­stoð sam­fé­lags­ins, og það sé meðal ann­ars hægt að fjár­magna með því að setja útsvar á fjár­magnstekjur. Þá vill Sós­í­alista­flokk­ur­inn hafa öll skóla­stig, þar með talið leik­skóla, gjald­frjáls fyrir öll börn, og bendir Sanna á að gjöld for­eldra nemi ekki nema 9,3% af kostn­aði við rekstur leik­skól­anna, svo það sé ekki eins og for­eldrar séu að halda leik­skól­unum uppi.

Hlustað sé á íbúa og starfsfólk borgarinnar

Eins og áður segir er Sanna eini borg­ar­full­trúi Sósísa­lista­flokks­ins og segir hún það geta verið erfitt. Minni­hluti í borg­ar­stjórn upp­lifi oft að ekki sé á hann hlustað og til­lögur þeirra felldar. Þó seg­ist Sanna hafa fengið nokkrar til­lögur sam­þykktar til skoð­unar en gagn­rýnir að ekk­ert hafi komið upp úr þeim skoð­unum. Hún segir þetta geta verið erf­iða stöðu, þegar verið sé að segja frá ákveðnum veru­leika og upp­lifa að ekki sé hlustað, en að Sós­í­alista­flokk­ur­inn hafi þó áhrif; án Sós­í­alista­flokks­ins væri engin stéttaum­ræða innan borg­ar­stjórnar. Flokk­ur­inn þurfi þó að hafa meiri áhrif með því að koma fleirum inn í borg­ar­stjórn og segir Sanna að flokk­ur­inn myndi vilja mynda vinstri-sós­í­alista­meiri­hluta.

Að lokum ítrekar Sanna að mik­il­vægt sé að laga grunn­þjón­ustu borg­ar­innar, án grunns verði borgin aldrei góð og að ekki sé verið á réttri leið þegar fólk í erf­iðri stöðu upp­lifi að ekk­ert sé hlustað á það. Sós­í­alista­flokk­ur­inn vilji að fólk, borg­ar­búar og starfs­fólk borg­ar­innar, hafi meira um málin að segja. Ekki bara að ganga til kosn­inga á fjög­urra ára fresti og geta svo tekið þátt í íbúa­kosn­ingu um það hvort fólk vilji ærsla­belg í hverfið sitt.

Hægt er að hlusta á við­talið við Sönnu í heild sinni í spil­ar­anum hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórnarkosningar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár