Vill tryggja aðgengi að leiðsöguhundum

Í nýju laga­frum­varpi Ingu Sæland er lagt til að fram­boð leið­sögu­hunda fyrir sjón­skerta sé tryggt með fjár­fram­lagi rík­is­sjóðs. Nú eru 18 á biðlista eftir slíkum hundum, sem rækt­aðir eru í Noregi, en hver hundur kostar á bil­inu fjórar til fimm millj­ónir.

Rík­is­sjóður mun tryggja árlega fjár­magn til að afla, þjálfa og flytja inn leið­sögu­hunda fyrir sjón­skerta, verði nýtt frum­varp Ingu Sælands, þing­manns Flokks fólks­ins, að lögum. Frum­varpi Ingu var útbýtt í vik­unni og er frum­varp um breyt­ingu á lögum um þjón­ustu- og þekk­ing­ar­mið­stöð fyrir blinda, sjón­skerta og ein­stak­linga með sam­þætta sjón- og heyrn­ar­skerð­ingu.

Lagt er til að nýr kafli um leið­sögu­hunda bæt­ist við núgild­andi lög. Í frum­varp­inu er lagt til að not­endur sem þurfa á leið­sögu­hundum að halda skuli ekki bera kostnað af öflun, þjálfun eða inn­flutn­ingi slíkra hunda. Þjónustu- og þekk­ing­ar­mið­stöð skuli sjá um öflun hund­anna í sam­starfi við Blindra­fé­lagið. Frum­varpið byggir að hluta til á fylgi­skjali með reglu­gerð um úthlutun á hjálp­ar­tækjum á vegum þjón­ustu- og þekk­ing­ar­mið­stöðvar. Fram kemur í grein­ar­gerð að lagt sé til að sá texti fylgi­skjals­ins verði að mestu leyti felldur inn í lögin með til­teknum breyt­ingum. Ólíkt fylgi­skjal­inu er lagt til að mið­stöðin ákveði ekki fjölda hunda til úthlut­unar á ári heldur eigi eft­ir­spurn alfarið að ráða för.

50 þúsund krónur á mánuði til fólks á biðlistum

Í laga­texta frum­varps­ins er fjallað um úthlut­un­ar­ferli leið­sögu­hunda en sam­kvæmt því skal þjón­ustu- og þekk­ing­ar­mið­stöð fyrir blinda taka á móti og afgreiða umsóknir um slíka hunda. Ein­stak­lingar sem taldir eru geta nýtt sér þá sem hjálp­ar­tæki til auk­ins öryggis og sjálf­stæðis til dag­legs lífs skulu fá leið­sögu­hund að und­an­gengnu mati.

Þá er lagt til að þeir ein­stak­lingar sem beðið hafa eftir úthlutun leið­sögu­hunds lengur en 12 mán­uði eigi rétt á auknum fjár­hags­legum stuðn­ingi, 50 þús­und krónum á mán­uði, þar til úthlutun fer fram. Með þeim stuðn­ingi sé þeim sem ekki njóta aðstoðar leið­sögu­hunds tryggt fjár­magn til að standa straum af auknum kostn­aði sem fylgir því að hafa ekki slíkan hund, segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins. Þá skapi ákvæðið auk­inn þrýst­ing á stjórn­völd að tryggja nægt fram­boð leið­sögu­hunda.

Hver hundur kostar fjórar til fimm milljónir

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu eru leið­sögu­hundar sagðir vera ómet­an­legur stuðn­ingur fyrir blint og sjón­skert fólk og að þeir veiti fólki aukið öryggi og sjálf­stæði. Þar kemur fram að nú séu 18 á biðlista eftir leið­sögu­hundi og að óbreyttu muni það fólk þurfa að bíða árum saman eftir úthlutun. Þá sé fram­boðið tak­markað því engin þjálf­un­ar­stöð er fyrir slíka hunda á Íslandi en Þeir eru rækt­aðir og þjálfaðir í Noregi og síðan fluttir til Íslands.

Samkvæmt grein­ar­gerð­inni kostar hver leið­sögu­hundur að jafn­aði fjórar til fimm millj­ónir króna en fram að þessu hafa frjáls félaga­sam­tök þurft að greiða fyrir kostn­að­inn að ein­hverju marki: „Rík­is­valdið hefur aldrei tryggt nægi­legt fjár­magn til að afla leið­sögu­hunda og gjarnan er það svo að frjáls félaga­sam­tök greiða fyrir hundana með sjálfsaflafé. Það er með öllu ótækt að fólk þurfi að bíða árum saman eftir nauð­syn­legum hjálp­ar­tækjum og að biðin leng­ist vegna þess að rík­is­sjóður tekur ekki fullan þátt í fjár­mögnun,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þar segir enn fremur að ekki sé nóg að tryggja fjár­magn heldur þurfi einnig að tryggja fram­boð. „Verði frum­varp þetta að lögum þurfa stjórn­völd að sýna frum­kvæði og tryggja reglu­legt fram­boð leið­sögu­hunda. Vonandi verður þetta fyrsta skrefið í átt að því að stofna leið­sögu­hunda­skóla á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár