Svíar endurvekja herskylduna

Rík­is­stjórn Sví­þjóðar hefur ákveðið að end­ur­vekja her­skyld­una, sem var afnumin, tíma­bundið, árið 2010. Ungmenni fædd 1999 og 2000 fá á næst­unni kvaðn­ingu og hefja her­þjón­ustu 1. jan­úar 2018. Svíar ótt­ast aukin hern­að­ar­um­svif Rússa, það gera Danir líka.

Her­skylda var inn­leidd í Svíþjóð árið 1901 en saga hers­ins er þó langtum eldri, nær aftur til árs­ins 1521.

Eftir að her­skyldan var inn­leidd voru næstum allir karlar, sem töld­ust hæfir til að gegna her­þjón­ustu kvaddir í her­inn og til að taka þátt í æfingum. Her­skyldu­tíma­bilið gat varað frá 80 uppí 450 daga. Á fyrstu tveimur ára­tugum eftir að her­skyld­unni var komið á fjölg­aði mjög í hernum, fram undir 1920. Sænskir stjórn­mála­menn voru sam­mála um nauð­syn þess að hafa sterkan og vel búinn her; landið er stórt (fimmta stærsta land Evrópu) og strand­lengjan spannar 3200 kíló­metra.

Á þriðja ára­tug síð­ustu aldar var komið annað hljóð í strokk­inn, margir töldu her­inn alltof fjöl­mennan og fjár­munum væri betur varið í annað. Þegar kom fram undir síð­ari heims­styrj­öld hafði fækkað til muna í hernum og tækja­kost­ur­inn orð­inn gam­all og úreltur.

Hlutleysi og hernaðaruppbygging

Þegar síð­ari heims­styrj­öldin braust út varð Svíum ljóst að her­afli þeirra mætti sín einskis gegn Þjóð­verjum. Sænska rík­is­stjórnin lýsti landið hlut­laust og féllst á að Þjóð­verjar mættu nota sænskar járn­braut­ar­lestir til flutn­inga á her­mönnum og vopnum til Noregs. Á meðan stríðið geys­aði unnu Svíar að upp­bygg­ingu hers­ins, með varnir lands­ins í huga. Tvennt hefur, þegar litið er til baka, einkum vakið athygli varð­andi upp­bygg­ingu og skipu­lag sænska hers­ins á þessum tíma. Annars vegar her­skyldan, öllum ungum mönnum bar skylda til að gegna her­þjón­ustu þegar, og ef, svo bæri undir. Þetta þýddi að hægt væri að kalla til allt að 350 þús­und manns sem allir hefðu hlotið þjálfun fyrir utan fasta­her­inn sem taldi um 100 þús­und. Hitt atriðið, sem ekki þótti síður athygl­is­vert, var að í stað þess að útbúa til­tölu­lega fáar stórar her­stöðvar voru útbúnar 6 - 8 þús­und minni stöðvar, vand­lega faldar, um allt land. Allir sem hægt var að kalla til her­þjón­ustu æfðu reglu­lega og vissu nákvæm­lega hvert skyldi halda ef kvaðn­ing bær­ist. Með þessu fyr­ir­komu­lagi tæki skamman tíma að safna lið­inu saman. Hern­að­að­ar­upp­bygg­ing Svía hélt áfram eftir að síð­ari heims­styrj­öld­inni lauk, ríf­legar fjár­veit­ingar gerðu hernum kleift að efla mjög tækja­búnað sinn og árið 1980 réði sænski her­inn yfir 300 flug­vélum, 40 her­skipum og 12 kaf­bátum.

Ákváðu að standa fyrir utan NATO

Þegar Atl­ants­hafs­banda­lagið, NATO, var stofnað árið 1949 urðu all­miklar deilur í Svíþjóð um hvort landið skyldi ger­ast aðili að banda­lag­inu. Nið­ur­staðan var að standa fyrir utan, við­halda þannig hlut­leys­inu. Margir sænskir stjórn­mála­menn ótt­uð­ust að ef Svíar gerð­ust aðilar myndu Rússar neyða Finna til sam­starfs, bein­línis „draga landið austur fyrir járn­tjald“ eins og Östen Undén sem var utan­rík­is­ráð­herra Svía 1945 – 1962 orð­aði það. Hins­vegar var ljóst að Svíar horfðu til vest­urs, og sam­starfs við NATO, þótt ekki yrði af beinni þátt­töku í banda­lag­inu.

Lok kalda stríðsins og upplausn Sovétríkjanna

Eftir fall Berlín­ar­múrs­ins í nóv­em­ber 1989, lok kalda stríðs­ins og upp­lausn Sov­ét­ríkj­anna, breytt­ist við­horf Svía til hern­að­ar­mála. Ógnin úr austri væri ekki lengur til staðar „Rússar ættu nóg með sig.“ Þess vegna væri hægt að minnka umsvif hers­ins, hinn hugs­an­legi óvinur væri gufaður upp. Þess vegna væri nú tíma­bært að draga úr umsvifum og verja fjár­munum til ann­arra hluta. Hug­myndir um nið­ur­skurð til hers­ins mælt­ust vel fyrir meðal stjórn­mála­manna. Á fyrstu árum tíunda ára­tug­ar­ins gengu Svíar í gegnum miklar efna­hags­þreng­ingar og hug­myndir um minnk­andi umsvif hers­ins, og minni fjár­veit­ingar, voru „betri en nokkur jóla­gjöf“ sagði sænskur ráð­herra í umræðum í þing­inu. Og sænsk stjórn­völd létu ekki sitja við orðin tóm. Fjár­veit­ingar til hers­ins minnk­uðu ár eftir ár, sumir þing­menn töl­uðu jafn­vel um að leggja niður her­inn „á einu bretti“, aðrir töl­uðu um að kannski væri hægt að koma upp ein­hverjum skynj­urum „hér og þar“ sem gerðu vart við óeðli­legar manna­ferðir og einn þing­maður spurði hvort „þetta þarna inter­net“sem allir væru að tala um gæti ekki komið í stað­inn fyrir her­inn. Loft­belgir og ómann­aðar flug­vélar voru líka nefndar. Þessar hug­myndir gengu ekki eftir en nið­ur­skurð­ur­inn hélt áfram. Þingmenn töl­uðu um nýjan og nútíma­legan her, yfir­menn hers­ins sögðu það ágæta hug­mynd en þegar þeir spurðu í hverju þessi nýi nútími fælist var fátt um svör.

Þegar rýnt er í tölur frá árinu 2000 kemur í ljós að her­deild­irnar voru aðeins 15% af því sem verið hafði árið 1985, sér­stakar heima­varna­deildir voru 10%, flug­her­inn, þar með taldar flug­vélar, hafði minnkað um helm­ing og flot­inn var fjórð­ungur þess sem hann var fimmtán árum fyrr. Wilhelm Agrell sagn­fræð­ingur, sér­fróður um sögu hers­ins, hefur sagt að ástandið í hernum hafi verið næsta ótrú­legt. Vopn og annar bún­aður hers­ins var fluttur í ein­hverjar stórar geymslur hingað og þangað í land­inu og margt „týnd­ist“ á leið­inni. „Það skorti alla yfir­sýn“ sagði sagn­fræð­ing­ur­inn.

En nið­ur­skurð­ur­inn hélt áfram: árið 2004 var fjórð­ungi her­manna (5000 manns) sagt upp og nú var svo komið að her­inn gat ekki með nokkru móti annað þeim verk­efnum sem honum voru ætluð.

Útrásin til Afganistan

Vegna þess að ekki virt­ist bein þörf fyrir sér­stakan varn­ar­við­búnað heima fyrir, rúss­neski björn­inn lá jú í dvala, beindu sænskir stjórn­mála­menn sjónum sínum út fyrir land­stein­ana, til alþjóð­legra verk­efna. Nánar til­tekið til Afganistan. Slíkum verk­efnum máttu aðeins atvinnu­her­menn sinna og her­skyldan (sem ekki tald­ist) atvinnu­mennska var sett í tíma­bundið hlé, ekki afnumin með lögum.

Rússneski björninn lætur til sín taka

Í ágúst 2008 gerð­ist það sem fæstir höfðu séð fyrir né grunað, Rússar réð­ust inn í Georgíu. Fæstir höfðu gert sér í hug­ar­lund að til þess kæmi að evr­ópskt land réð­ist á annað land í álf­unni. En nú hafði það gerst. „Svíar vökn­uðu við vondan draum, þegar spurt var um varnir og við­búnað klór­uðu stjórn­mála­menn sér í koll­inum og gátu litlu svarað“ sagði áður­nefndur Wilhelm Agrell sagn­fræð­ingur.

Svíum líst ekki á blikuna

Svíar voru dauð­skelk­aðir. „Hvað ætla Rússar sér“ var spurt. Varnir lands­ins í molum og eitt sænsku blað­anna full­yrti að örfáir rúss­neskir her­menn gætu til dæmis lagt undir sig Gotland „rétt si svona“.

Árið 2009 sendi sænska þingið Evr­ópu­sam­band­inu sér­staka yfir­lýs­ingu þar sem fram kemur að Svíar muni ekki sitja aðgerða­lausir ef ráð­ist verður á annað aðild­ar­ríki, eða nor­rænt land. „Svíar vænta þess sama af öðrum ríkjum.“

Spennan fór vax­andi, árið 2011 fóru rúss­neskar her­flug­vélar aftur að fljúga nálægt, og stundum inn í, sænskt loft­rými. Slíkt hafði ekki gerst síðan á dögum kalda stríðs­ins. Fréttir bár­ust líka æ oftar af erlendum kaf­bátum við strendur Sví­þjóðar, her­inn taldi lít­inn vafa á að þeir væru rúss­neskir. NATO fór nú að fylgj­ast grannt með umsvifum Rússa og árið 2014 var haldin stór her­æf­ing þar sem yfir­skriftin var „Rússar hafa hernumið Suður-Svíþjóð“.

Fyrir þremur árum und­ir­rit­uðu Svíar og Finnar sam­komu­lag um nán­ara sam­starf land­anna og við NATO. Þetta sam­komu­lag sem var sam­þykkt í sænska þing­inu, Riks­dagen, í maí á síð­asta ári olli mik­illi reiði í Kreml. Rúss­neski utan­rík­is­ráð­herr­ann sagði að ef til þess kæmi að Svíar gerð­ust aðilar að NATO „myndi Rússland bregð­ast við“ án þess að útskýra orð sín nánar.

Herskyldan innleidd á ný

Flestir sænskir þing­menn við­ur­kenna nú það sem nefnt var „nútíma­væð­ing“ hers­ins hafi gjör­sam­lega mis­tek­ist og nið­ur­skurð­ur­inn hafi nán­ast lamað her­inn. Bera jafn­framt fyrir sig að engan hafi getað grunað að Rússar yrðu ógn við frið­inn. Þessar skýr­ingar gefa yfir­menn hers­ins lítið fyrir, segja að stjórn­mála­menn­irnir hafi ekki viljað hlusta. Nú hafa fjár­veit­ingar til hers­ins verið stór­auknar á ný og fyrir nokkrum dögum ákvað rík­is­stjórnin að end­ur­vekja her­skyld­una. Þegar her­skyldan var afumin 2010, var það ekki gert með lögum, heldur var hún „ sett í hlé“.

Til að end­ur­vekja her­skyld­una þarf þess vegna ekki sam­þykki þings­ins en þar er þó mik­ill meiri­hluti fylgj­andi þess­ari ákvörðun.

Sænska varn­ar­mála­ráðu­neytið og her­inn höfðu gert sér vonir um, þegar her­skyldan var afnumin, að um það bil 4 þús­und manns myndu árlega skrá sig í her­inn en það hefur ekki gengið eftir. Að með­al­tali hafa 1502 árlega skráð sig og þess vegna vantar nú her­inn mann­skap.

Sænsk hern­að­ar­yf­ir­völd draga ekki dul á ástæður þess að styrkja þurfi her­inn „rúss­neski björn­inn er með hramm­inn á lofti“ sagði einn af yfir­mönnum hers­ins í við­tali í lið­inni viku.

Það má að lokum bæta því við að Danir eru líka ugg­andi. Danski varn­ar­mála­ráð­herr­ann sagði fyrir nokkrum dögum í við­tali við banda­rísku sjón­varps­stöð­ina CNN að danska stjórnin stefndi að því að stór­auka fram­lög sín til her­mála. Það gæti reyndar orðið þungur róður að fá slíkt sam­þykkt í danska þing­inu, en sýnir á hinn bóg­inn áhyggjur danska varn­ar­mála­ráð­herr­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár