Ríkisstjórnin ætlar ekki að greiða neitt inn á lífeyrisskuld á næsta ári

Rík­is­stjórnin ætlar ekki að greiða inn á ófjár­magn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar sínar á næsta ári. Þetta hefur Kjarninn fengið stað­fest hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Samtals eru skuld­bind­ingar umfram eignir hjá B-deild Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR) og Líf­eyr­is­sjóði hjúkr­un­ar­fræð­inga (LH) tæp­lega 460 millj­arðar króna. Allir fjár­munir sjóð­anna munu verða upp­urnir árið 2030 og eftir það falla greiðslur til sjóðs­fé­laga beint á rík­is­sjóð.

Til að byrja með verður upp­hæðin um 28 millj­arðar króna á ári sam­kvæmt áætl­unum en mun síðan fara lækk­andi ára­tug­ina á eftir.Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar, sem lagt var fram í sept­em­ber, segir: „Í upp­sigl­ingu er því mikið vanda­mál fyrir rík­is­sjóð ef ekk­ert verður að gert.“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði í blaða­við­tali í mars síð­ast­liðnum að greiðsl­urnar myndu hefj­ast á næsta ári. Rík­is­stjórnin hefur hins vegar ákveðið, sam­kvæmt því sem kemur fram í fjár­laga­frum­varp­inu, að gera ekk­ert í þessum málum á árinu 2016, þrátt fyrir að hún fái þá greitt stöð­ug­leika­fram­lag frá slita­búum föllnu bank­anna upp á 334 millj­arða króna til við­bótar við reglu­legar tekjur rík­is­sjóðs.

Greiðslum hætt eftir hrunið


Ófjár­magn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar hins opin­bera hafa verið risa­stórt vanda­mál í lengri tíma. Árið 1997 var A-deild LSR stofnuð. Hún byggir á stiga­kerfi þar sem sjóðs­fé­lagi ávinnur sér rétt­indi miðað við greidd iðgjöld. Kerfið byggir á sjóðs­söfnun. Þ.e. LSR safnar iðgjöldum, ávaxtar þau og greiðir út í sam­ræmi við áunnin rétt­indi. Ef sjóð­ur­inn á ekki fyrir þeim hleypur ríkið undir bagga.

Á sama tíma var eldra kerfi sjóðs­ins, hin svo­kall­aða B-deild, lokuð fyrir sjóðs­fé­lögum. Í henni ávinna sjóðs­fé­lagar sér tvö pró­sent rétt­indi á ári miðað við fullt starf. Reglur LH eru áþekkar B-deild­inni. Þetta kerfi byggir að mestu á gegn­um­streymi fjár­magns, og ein­ungis að hluta til á sjóðs­söfnun. Ástæða þess að kerfið var lagt niður var sú að það blasti við að það gæti ekki staðið undir sér. Því var settur plástur á sárið og lokað á nýliðun í B-deild­ina. Það breytir því ekki að henni blæðir enn mikið. Það var alltaf morg­un­ljóst að ríkið myndi þurfa að greiða háar fjár­hæðir með þessu gamla kerfi.

[caption id="attachment_8710" align="alignnone" width="1024"] Geir H. Haarde var fjár­mála­ráð­herra þegar greiðslur vegna baká­byrgðar rík­is­ins hófust árið 1999. Þeim var hætt eftir hrunið og síðan þá hefur umfang vand­ans fengið að magn­ast.[/caption]

Þess vegna ákvað Geir H. Haarde, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, árið 1999 að rík­is­sjóður skyldi hefja greiðslur til B-deildar LSR og LH umfram laga­skyldu. Mark­miðið var að milda höggið sem fram­tíð­ar­kyn­slóðir skatt­greið­enda myndu þurfa að þola vegna þess og koma í veg fyrir að sjóð­irnir tæmd­ust.

Árið 2008, eftir hrunið, var þessum við­bót­ar­greiðslum hins vegar hætt. Þá hafði rík­is­sjóður, frá árinu 1999, alls greitt 90,5 millj­arða króna inn á útistand­andi skuld sína við B-deild LSR og LH. Um síð­ustu ára­mót var sú fjár­hæð, upp­færð með ávöxtun sjóð­anna, orðin 231,8 millj­arðar króna. Því er ljóst að greiðsl­urnar skiptu veru­legu máli. Ef ekki hefði komið til þess­ara greiðslna væru sjóð­irnir tómir og allar greiðslur féllu nú þegar á rík­is­sjóð.

Staðan teiknuð upp á ríkisstjórnarfundi í ágúst


Þrátt fyrir þetta er vanda­málið enn risa­vaxið. Á rík­is­stjórn­ar­fundi, sem fram fór 20. ágúst síð­ast­lið­inn, kynnti Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efn­hags­ráð­herra, sam­an­tekt um líf­eyr­is­skuld­bind­ingar vegna LSR. Sam­an­tektin var unnin í kjöl­far funda með fram­kvæmda­stjóra, for­manni og vara­for­manni stjórnar LSR sem fram fór 30. júní 2015.

Í sam­an­tek­inni kom fram að skuld­bind­ingar B-deildar LSR eru 407,1 millj­arðar króna umfram eignir deild­ar­innar. Hjá LH eru þær 50,6 millj­arðar króna og því vantar sam­tals 457,7 millj­arða króna í þessar tvær deildir til að þær eigi fyrir skuld­bind­ingum sínum. Rík­is­sjóður er í baká­byrgð fyrir þessum greiðslum, sem þýðir að þær falla á hann þegar engar eignir eru lengur til í sjóð­unum.

Fjallað er um þessa stöðu í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árið 2016. Þar stendur: „Áætlað er að árið 2030 verði allir fjár­munir sjóð­anna upp­urnir og falla þá allar greiðslur úr sjóð­unum beint á rík­is­sjóð. Áætlað er að upp­hæðin muni nema um 28 mia.kr. fyrst í stað en fari síðan lækk­andi næstu ára­tugi þar á eftir. Í upp­sigl­ingu er því mikið vanda­mál fyrir rík­is­sjóð ef ekk­ert verður að gert.“

Þar segir einnig að nauð­syn­legt verði að reka rík­is­sjóð með mynda­legum afgangi á fjár­lögum og losa um stórar rík­is­eignir, til dæmis í Lands­bank­anum "til að greiða upp skuldir og eftir atvikum takast á við ófjár­magn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar".

Ríkið sleppur við greiðslur og fær skatttekjur á móti


Þegar verið er að meta skuld­bind­ingar rík­is­sjóðs vegna opin­berra starfs­manna verður að hafa í huga að ríkið „sleppur“ við að greiða líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur úr almanna­trygg­inga­kerf­inu með því að borga þessar skuldir og hefur auk þess nokkuð háar skatt­tekjur af líf­eyr­is­greiðslum.

Stjórn LSR fékk í vor Benedikt Jóhann­es­son trygg­inga­stærð­fræð­ing til að meta þetta sam­spil. Nið­ur­staða hans er sú að ríkið spari sér 123 millj­arða króna í líf­eyr­is­greiðslur og fái 204 millj­arða króna í skatt­tekjur þegar það er búið að greiða upp skuld­ina. Til við­bótar komi sparn­aður og skatt­tekjur vegna sjóðs­fé­laga í LH.

Þá stendur samt sem áður eftir baká­byrgð rík­is­sjóðs. Þ.e. bein­harðir pen­ingar sem þarf að greiða í skulda­hít­ina og fást ekki aftur með sparn­aði í almanna­trygg­inga­kerf­inu eða með skatt­greiðslum. Á rík­is­stjórn­ar­fund­inum í ágúst kom fram að þessi upp­hæð er áætluð, fyrir B-deild LSR og LH saman, 104,8 millj­arðar króna. Inn á þessa skuld þarf að hefja greiðslur, ann­ars sitja fram­tíð­ar­kyn­slóðir uppi með tug­millj­arða króna kostnað á ári frá 2030.

Í lok sam­an­tekt­ar­innar sem kynnt var á rík­is­stjórn­ar­fund­inum sagði enda að „brýnt er að taka ákvörðun um hvort slíkar greiðslur verði teknar upp aftur og þá í hvaða formi það yrði gert“.

[caption id="attachment_34302" align="alignnone" width="640"] Ef ekk­ert verður gert tæm­ast sjóð­irnir árið 2030. Þá þarf rík­is­sjóður að greiða 28 millj­arða króna, það árið eitt og sér, til að standa undir skuld­bind­ingum þeirra. Þeirri fjár­hags­legu byrði verður að óbreyttu velt á kom­andi kyn­slóðir.[/caption]

Bjarni sagði að greiðslur myndu hefjast


Raunar hefur málið verið á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar í nokkurn tíma. Og svo virt­ist sem að hún væri búin að taka ákvörðun um að hefja greiðslur inn á baká­byrgð rík­is­ins vegna þess­arra skulda, sem eru ekki sýni­legar í rík­is­reikn­ingi, á ný.

[caption id="attachment_40549" align="align­right" width="209"] Forsíða Morg­un­blaðs­ins 11. mars 2015. Í for­síðu­frétt­inni er haft eftir Bjarna Bene­dikts­syni að greiðslur inn á ófjár­magn­aðar skuld­bind­ingar opin­berra líf­eyr­is­sjóða muni hefj­ast árið 2016.[/caption]

Bjarni Bene­dikts­son var mjög afdrátt­ar­laus í við­tali við Morg­un­blaðið þann 11. mars síð­ast­lið­inn. Fyr­ir­sögn for­síðu­fréttar blaðs­ins, sem vís­aði í við­talið, var „Fyr­ir­fram­greiða líf­eyr­inn“. Í við­tal­inu sagði Bjarni að rík­is­sjóður myndi á næsta ári, árið 2016, greiða inn á upp­safn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar opin­berra starfs­manna í fyrsta sinn frá efna­hags­hruni. Jafn­framt væri áformað að gera það árlega á næstu árum og að bætt staða rík­is­sjóðs gerði þetta mögu­legt. „Verði þetta ekki gert mun falla á rík­is­sjóð árleg gjald­færsla upp á um 20 millj­arða eftir tíu ár. Með þess­ari greiðslu og frek­ari greiðslum á næstu árum er ætl­unin að forða þessu og ýta því lengra inn í fram­tíð­ina,“ sagði Bjarni.

Það vakti því athygli þegar þessi greiðsla inn á baká­byrgð­ina var ekki sýni­leg í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar. Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og spurði hvort það væri réttur skiln­ingur að ekki væri gert ráð fyrir greiðslum inn á skuld­bind­ingar rík­is­sjóðs vegna B-deildar LSR og LH í fjár­laga­frmu­varpi árs­ins 2016. Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að það sé réttur skiln­ingur.

Þrátt fyrir að í upp­sigl­ingu sé„mikið vanda­mál fyrir rík­is­sjóð ef ekk­ert verður að gert“, verður ekk­ert að gert.

Bráðabirgðaákvæði fellur úr gildi á næsta ári


Þetta er ekki eina málið sem snýr að opin­bera líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu sem þarf að taka á í nán­ustu fram­tíð. Það þarf einnig að grípa til aðgerða gagn­vart A-deild LSR. Heild­ar­staða hans, að teknu til­liti til fram­tíð­ar­ið­gjalda og skuld­bind­inga vegna þeirra, er nei­kvæð um 55,6 millj­arða króna, eða um 9,6 pró­sent af heild­ar­eign hans. Í gildi er bráða­birgð­ar­á­kvæði sem heim­ilar sjóðnum að virði eigna hans megi vera allt að 15 pró­sent minna virði en fram­tíð­ar­skuld­bind­ingar hans. Þetta bráða­birgða­á­kvæði, sem sett var í kjöl­far hruns­ins, fellur úr gildi á næsta ári. Þá verður mun­ur­inn að vera innan fimm pró­senta.

Til að ná þessu marki er stjórn LSR skylt, sam­kvæmt lögum, að hækka iðgjald launa­greið­enda úr 11,5 pró­sent í 13,4 pró­sent til að vera innan fimm pró­senta marks­ins. Það þýddi að launa­greið­and­inn í líf­eyr­is­sjóð­inn, íslenska ríkið, þyrfti að greiða 1,7 millj­arð króna til við­bótar í iðgjöld á ári. Til að ná jafn­vægi þyrfti að hækka iðgjaldið í 15,4 pró­sent, sem myndi þýða að ríkið greiddi 3,5 millj­arða króna til við­bótar í sjóð­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár