Ríkissjóður ætlar að byrja að greiða niður hallann á lífeyriskerfinu

Rík­is­sjóður mun á næsta ári, árið 2016, byrja að greiða á ný inn á upp­safn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar opin­berra starfs­manna. Það verður í fyrsta sinn frá því fyrir hrun sem þetta verður gert og áform eru uppi um að greiða inn á hall­ann árlega næstu árin. Þetta segir Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við Morg­un­blaðið í dag.

Þar er haft eftir Bjarna: "Verði þetta ekki gert mun falla á rík­is­sjóð árleg gjald­færsla upp á um 20 millj­arða eftir um tíu ár. Með þess­ari greiðslu og frek­ari greiðslum á næstu árum er ætl­unin að forða þessu og ýta því lengra inn í fram­tíð­ina."

Vandi sem velt hefur verið á undan


Frá og með þessu ári, 2015, verður byrjað að reikna auknar ævi­líkur Íslend­inga inn í stöðu íslenska líf­eyr­is­kerf­is­ins. Kjarninn greindi frá þessu í nóv­em­ber í fyrra. Þar sem Íslend­ingar eru sífellt að verða eldri aukast þar með skuld­bind­ing­arnar. Áætlað er að halli opin­bera kerf­is­ins, sem er með rík­is­á­byrgð og er því í raun "skuld" rík­is­ins við greið­endur iðgjalda í opin­bera líf­eyr­is­sjóði, verði vel yfir 700 millj­arða króna eftir þessa breyt­ingu.

[quote font="0" align="right"]Áætlað er að halli opin­bera kerf­is­ins, sem er með rík­is­á­byrgð og er því í raun "skuld" rík­is­ins við greið­endur iðgjalda í opin­bera líf­eyr­is­sjóði, verði vel yfir 700 millj­arða króna eftir þessa breyt­ingu. [/quote]

Þessi skuld er ekki til­greind á rík­is­reikn­ingi, en hún er eitt stærsta vanda­mál sem ríkið stendur frammi fyrir þrátt fyrir það.

Langstærsti hluti þess­arrar skuldar er við B-deildir opin­berra líf­eyr­is­sjóða, að mestu leyti við Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna rík­is­ins. Eina leiðin til að takast á við þennan vanda er að ríkið greiði háar upp­hæðir upp í skuld sína á hverju ári. Geri ríkið það ekki safn­ast skuldin ein­fald­lega upp og gerir það að verkum að ríkið þarf að greiða um 20 millj­arða króna á ári í hít­ina eftir um ára­tug. Þær skuldir myndu sem sagt lenda á fram­tíðar skatt­greið­endum.

Á árunum fyrir hrun var reyndar byrjað að takast á við hall­ann og frá árinu 1999 fram að hruni voru nokkrir millj­arðar króna greiddir árlega til að minnka gatið. Því var snar­lega hætt eftir hrun og engin þeirra rík­is­stjórna sem setið hafa síðan þá hefur séð til­efni til að byrja á slíkum greiðslum aftur. Þangað til að Bjarni gaf út ofan­greinda yfir­lýs­ingu í Morg­un­blað­inu í morgun.

Líka vandamál hjá A-deildum sjóðanna


Vandamál opin­bera líf­eyr­is­kerf­is­ins liggur þó ekki bara hjá B-deild­unum, heldur líka hjá A-deildum sjóð­anna. Sá halli sem er á þeim er bein­leiðis ólög­legur. Í stað þess að taka á vanda­mál­inu er hins vegar lagt fram nýtt laga­frum­varp árlega sem heim­ilar opin­beru sjóð­unum að safna meiri halla.

Nú síð­ast var það lagt fram í sept­em­ber 2014. Samkvæmt lögum mátti ekki reka A-deild Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna sveit­ar­fé­laga og sömu deild innan Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna ríks­ins með meira en 11 pró­sent halla. Sveita­fé­laga­sjóð­ur­inn var rek­inn með 12,5 pró­sent halla og A-deild LSR með 11,7 pró­sent halla árið 2013.

[quote font="0" align="right"]Samkvæmt lögum mátti ekki reka A-deild Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna sveit­ar­fé­laga og sömu deild innan Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna ríks­ins með meira en 11 pró­sent halla. Sveita­fé­laga­sjóð­ur­inn var rek­inn með 12,5 pró­sent halla og A-deild LSR með 11,7 pró­sent halla árið 2013.[/quote]

Til að takast á við þessa stöðu var svig­rúmið ein­fald­lega hækkað upp í 13 pró­sent með nýju laga­frum­varpi og sá tími sem heim­ilt er að reka sjóð­ina yfir 10 pró­sent halla lengdur úr sex árum í sjö. Árið 2014 var því sjö­unda árið í röð sem A-deild sjóðs­ins er nei­kvæð. Haldi þetta áfram verður sjóð­ur­inn auð­vitað á end­anum tómur.

Vandi sem taka verður á


Þessu verður óhjá­kvæmi­lega mætt á ein­hverjum tíma­punkti með sömu með­ölum og þarf að beita til að vinna á halla almenna líf­eyr­is­kerf­is­ins. T.d. með því að hækka eft­ir­launa­aldur í allt að 70 ár, með því að hækka iðgjöldin sem við borgum til sjóð­anna um hver mán­að­ar­mót og með ein­hvers­konar skerð­ingu rétt­inda, til dæmis með því að dreifa töku líf­eyris á fleiri ár.

Auk þess er yfir­lýstur vilji hjá öllum innan kerf­is­ins að breyta opin­bera kerf­inu til sam­ræmis við það almenna. Erf­ið­lega hefur hins vegar gengið að ná saman um þá breyt­ingu þar sem for­svars­menn þeirra sem eru hluti af opin­bera kerf­inu vilja ekki gefa hinn góða og rík­is­á­byrgða líf­eyri eftir nema að fá eitt­hvað í stað­inn, til dæmis hærri laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár