Síðasta helgi æfing fyrir þá næstu – „Er þetta ekki bara komið gott?“

Yfir­lög­reglu­þjónn stingur upp á því að Íslend­ingar slaki á heima og taki pásk­ana bara í róleg­heit­unum í gegnum fjar­fundi með vinum og stór­fjöl­skyldu.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn
Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn Mynd: Lögreglan

„Þetta verða skrítnir páskar,“ sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn á blaða­manna­fundi almanna­varna í dag en heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa hvatt Íslend­inga til að vera heima um pásk­ana. Þá voru lands­menn jafn­framt hvattir til að vera heima um síð­ustu helgi en eitt­hvað hefur sú hvatn­ing farið fram­hjá sumum.

„Var helgin ekki bara ágætis æfing? Við vorum að tala um það að vera heima um helg­ina og við erum að tala um það að vera heima um pásk­ana. Það voru opn­aðar fjölda­hjálp­ar­stöðvar fyrir Íslend­inga sem fest­ust uppi á heiðum og þurfi að bjarga nán­ast 100 Íslend­ingum um helg­ina. Er þetta ekki bara komið gott?

Eigum við ekki bara að slaka á núna heima og taka pásk­ana bara í róleg­heit­unum í fjar­fundi með stór­fjöl­skyld­unni, mat­ar­boð með vin­unum í gegnum fjar­fundi og njótum návistar við okkar nán­ustu?“ spurði hann.

Víðir hvatti fólk enn fremur til að vera áfram gott við hvort annað „og höldum áfram að vera ábyrg. Þá tekst okkur að kom­ast í gegnum þetta“.

Þurfum að hlúa að hvert öðru

Alma Möller land­læknir sagði á fund­inum það vera alveg ljóst að róð­ur­inn myndi þyngj­ast næstu vik­urnar og að fleiri myndu veikj­ast og lát­ast. „Þessi far­aldur mun taka sífellt meira á okk­ur, and­lega og til­finn­inga­lega og við þurfum því – eins og við höfum alltaf sagt – að hlúa hvert að öðru og að sjálfum okk­ur.“

Af þeim sem ­greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru sex lát­in. Tveir lét­ust í gær, karl­­maður á níræð­is­aldri sem var íbúi á hjúkr­un­­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­­ar­vík­ og karl­­maður á sjö­tugs­aldri sem lá á Land­­spít­­al­an­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár