Bankarnir lána þrefaldan árskammt af húsnæðislánum árið 2020

Árið 2020 hefur séð vexti hús­næð­is­lána hríð­lækka. Óverð­tryggðir vextir hjá bönkum eru nú um helm­ingur þess sem þeir voru í byrjun síð­asta árs. Fyrir vikið hafa lands­menn flykkst í hús­næð­is­lána­við­skipti við bank­ana.

Íslensku við­skipta­bank­arnir lán­uðu heim­ilum lands­ins 273,3 millj­arða króna umfram upp­greiðslur og umfram­greiðslur gegn veði í fast­eign á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins. Ef ásókn í hús­næð­is­lán þeirra verður svipuð í des­em­ber og hún var síð­ustu mán­uði á undan munu nettó hús­næðis­út­lán bank­anna fara yfir 300 millj­arða króna á árinu 2020.

Þetta má lesa út úr hag­tölum um banka­kerfið sem Seðla­banki Í Íslands birti í vik­unni.

Það er athygl­is­verð upp­hæð í ljósi þess að síð­ustu þrjú árin á undan: 2017, 2018 og 2019 námu nettó hús­næð­is­lán við­skipta­bank­anna sam­tals 329 millj­örðum króna.

Því stefnir í að bank­arnir láni næstum sömu upp­hæð í ný hús­næð­is­lán að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðslum á árinu 2020 og þeir lán­uðu þrjú árin þar á undan.

Færa sig þangað sem bestu kjörin eru

Meg­in­á­stæða þessa er sú stýri­vextir Seðla­­banka Íslands voru lækk­aðir niður í eitt pró­sent, og svo niður í 0,75 pró­sent þegar leið á árinu. Það hefur leitt til þess að óverð­tryggðir hús­næð­is­lána­vextir þriggja stærstu bank­anna hafa hríð­­­lækk­­­að.

[adspot]Breyt­i­­­legir óverð­­­­tryggðir vextir á hús­næð­is­lánum Lands­­­­bank­ans eru nú til að mynda 3,3 pró­­­­sent. Hjá Íslands­banka eru þeir 3,4 pró­sent. Á sam­­­­­bæri­­­­­legum lánum hjá Arion banka eru vext­irnir 3,44 pró­­­­­sent.

Í upp­­­­hafi árs í fyrra voru breyt­i­­­­legir óverð­­­­tryggðir vextir bank­anna á bil­inu sex til 6,6 pró­­­­sent. Þeir hafa því helm­ing­ast.

Við þessu hafa íslenskir lán­tak­endur brugð­ist með því að færa lánin sín þangað sem bestu kjörin eru.

Flótti marga mánuði í röð

Frá því í júní 2020 hefur átt sér stað flótti hús­næð­is­lán­tak­enda frá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins og til við­skipta­bank­anna. Hann byrj­aði hægt. Í fyrsta mán­uði þessa tíma­bils dróg­ust útlán umfram upp­greiðslur saman um nokkur hund­ruð millj­ónir króna. Í júlí var sam­drátt­ur­inn vel á þriðja millj­arð króna. Í ágúst var hann tæp­lega fimm millj­arðar króna og í sept­em­ber um 3,5 millj­arðar króna. Sam­an­lagt greiddu sjóðs­fé­lagar upp lán fyrir um 13,7 millj­arða króna umfram ný útlán á þessum fjórum mán­uð­um.

Október sló svo öll met þegar horft er til sam­dráttar í hús­næð­is­lánum til sjóðs­fé­laga. Alls dróg­ust útlán sjóð­anna saman um 8.955 millj­ónir króna í októ­ber­mán­uði. Það er mesta lækkun sem orðið hefur í einum mán­uði á útlána­safni líf­eyr­is­sjóða lands­ins frá því að Seðla­bank­inn fór að halda utan um, og birta opin­ber­lega, þær tölur í byrjun árs 2009.

Fyrir júní­mánuð 2020 hafði það aldrei ger­st, sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem Seðla­bank­inn birt­ir, að upp­greiðslur líf­eyr­is­sjóðs­lána námu hærri fjár­­hæð en nýjar lán­tök­­ur.

Nú hefur það gerst fimm mán­uði í röð. Fastlega má búast við því að nóv­em­ber hafi verið sá sjötti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár