„Óendanlega mikilvægt“ að sinna persónulegum smitvörnum

„Við þurfum að standa saman í því að hlýða þre­menn­ing­unum með þrenn­unni; fjar­lægð­ar­mörk, hand­þvottur og sprittun,“ segir Óskar Reyk­dals­son, for­stjóri Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Unnið verður fram­eftir við sýna­töku hjá heilsu­gæsl­unni í dag.

Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu á fundinum í dag.
Óskar Reyk­dals­son, for­stjóri Heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á fund­inum í dag. Mynd: Lögreglan

„Það virð­ist vera komin ný bylgja hjá okkur eins og í öðrum löndum. Við þurfum að standa saman í því að hlýða þre­menn­ing­unum með þrenn­unni; fjar­lægð­ar­mörk, hand­þvottur og sprittun. Þetta er óend­an­lega mik­il­vægt,“ sagði Óskar Reyk­dals­son, for­stjóri Heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

Hann sagði að fólk þyrfti að halda ró sinni og sýna skyn­semi á meðan unnið væri að því að takast á við þá stöðu sem komin er upp, en fimm­tíu virk smit eru nú í land­inu og tengj­ast flest þeirra sömu hóp­sýk­ing­unni sem bundin er við suð­vest­ur­horn lands­ins.

Óskar sagði að fólk hefði í auknum mæli verið að hringja inn til heilsu­gæsl­unnar og segj­ast vera með ein­hvers­konar ein­kenni, lítil eða mikil, eftir að umfjöllun fór af stað um að veiran væri að láta á sér kræla í íslensku sam­fé­lagi á ný.

„Íslensk erfða­grein­ing sinnir skimun fyrir þá sem frískir eru, en við erum að sinna þeim sem veikir eru,“ sagði Óskar og bætti við að það yrði unnið fram eftir við sýna­töku hjá heilsu­gæsl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag og að áfram yrði hægt að fara í sýna­töku yfir helg­ina.

Grímunotkun tekin upp á heilsugæslustöðvum

For­stjór­inn sagði að í dag hefði verið tekið upp breytt verk­lag á heilsu­gæslu­stöðv­unum, tveggja metra reglan væri að sjálf­sögðu komin í gildi og einnig væri því nú beint til fólks að setja upp grímur við kom­una þangað.

Sam­skiptin á milli heil­brigð­is­starfs­fólks og not­enda heilsu­gæsl­unnar yrðu því ögn öðru­vísi núna, þegar við ætl­uðum að koma í veg fyrir að sýk­ingin næði sér á strik í sam­fé­lag­inu.

Hvernig skal hafa samband?

Hann fór yfir það hvernig fólk ætti að hafa sam­band við heilsu­gæsl­una til þess að óska eftir sýna­töku: Á dag­vinnu­tíma á að hringja í heilsu­gæsl­una eða hafa sam­band við net­spjallið á vefnum heilsu­vera.is, en utan dag­vinnu­tíma og þá um helg­ina á að hafa sam­band við Lækna­vakt­ina í síma 1700.

Óskar sagði að það hefði verið „tölu­vert at“ í sím­anum og á net­spjall­inu í gær og í dag og biðl­aði hann til fólks um að láta ákveðin erindi, til dæmis „vott­orða­skrif sem ekki liggur á“ bíða á meðan.

„Við þurfum að for­gangs­raða,“ sagði Óskar.

Ekki biðja um að fá að flýta seinni skimun

Eitthvað hefur borið á því, að sögn Óskars, að þeir sem eru að fara í seinni skimun eftir að hafa áður farið í skimun á landa­mær­unum eftir kom­una til lands­ins hefðu sam­band í von um að reyna að fá seinni skimun­inni flýtt, en alla­vega fjórir dagar eiga að líða frá fyrri skimun til þeirrar seinni.

Bað hann fólk um að virða það og reyna ekki að fá seinni skimun sinni flýtt.

Fólk með einkenni mun geta ekið í skimun

Tjöld til þess að fram­kvæma skimun á þeim sem eru með ein­kenni verða sett upp á bíla­stæð­inu fyrir utan Orku­húsið við Suð­ur­lands­braut.

Inn í þau mun fólk með ein­kenni geta ekið á bílum sínum, en Óskar minnt­ist á að erfitt hefði reynst að fá leigð tjöld fyrir helg­ina, þar sem mörg hefðu verið tekin frá, vænt­an­lega vegna við­burða sem halda átti um helg­ina.

En ljóst er að vegna hertra sótt­varn­ar­að­gerða verður lítið um sam­komur og mann­fagn­aði og tjöld feng­ust laus til þess að hægt væri að nýta þau til skim­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár