Allir ríkisstjórnarflokkar tapa fylgi frá kosningum – Andstaðan bætir vel við sig

Engin þriggja flokka rík­is­stjórn er í kort­unum, sam­eig­in­legt fylgi frjáls­lyndu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna helst enn stöðugt og er að aukast en atkvæði sem falla niður dauð gætu ráðið úrslitum í kosn­ingum.

Sitjandi rík­is­stjórn væri kol­fall­inn, einu tölu­legu mögu­lega þriggja flokka rík­is­stjórn­irnar sem væri hægt að mynda ganga ekki upp í raun­veru­leik­anum og hægt væri að mynda rík­is­stjórn þeirra flokka sem stýra málum í Reykja­vík sem hefði þægi­legan meiri­hluta en minni­hluta atkvæða á bak við sig.

Þetta er meðal þess sem lesa má úr nýj­ustu könnun MMR á fylgi stjórn­mála­flokka sem byggir á svörum 2.057 ein­stak­linga 28 ára og eldri. Könnunin var fram­kvæmd dag­anna 3. til 13. jan­úar 2020.

Allar líkur eru á því að kosið verði næst vorið 2021, eða eftir rúmt ár. Verði það nið­ur­staðan má búast við því að eig­in­leg kosn­inga­bar­átta hefj­ist að ein­hverju leyti síðar á þessu ári, og að þeir flokkar sem ætla að boða til próf­kjöra haldi þau jafn­vel fyrir lok þess.

Allir ríkisstjórnarflokkarnir tapa fylgi

Samkvæmt henni væri Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærsti flokkur lands­ins með 20,3 pró­sent fylgi ef kosið yrði í dag. Það myndi þýða að flokk­ur­inn fengi fimmt­ungi minna fylgi en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum. Hinir rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir tveir tapa líka umtals­verðu fylgi. Rúmlega þriðji hver kjós­andi hefur yfir­gefið flokk for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur, Vinstri græn, og hann mælist nú með 11,1 pró­sent fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur tapað tæp­lega fjórða hverjum kjós­anda og mælist með 8,2 pró­sent fylgi. Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna nær ekki 40 pró­sentum sam­kvæmt könn­un­inni, en þeir fengu alls 52,8 pró­sent í kosn­ing­unum í októ­ber­lok 2017.

[adspot]Sam­fylk­ingin yrði næst stærsti flokk­ur­inn á þingi og fengi 16,8 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag. Hún myndi bæta við sig vel yfir þriðj­ungs­fylgi frá síð­ustu kosn­ingum. Mið­flokk­ur­inn myndi einnig bæta við sig tveimur pró­sentu­stigum ef kosið yrði í dag, Píratar myndu bæta við sig 1,8 pró­sentu­stigi og Viðreisn myndi auka fylgi sitt um heil 56 pró­sent ef nið­ur­staða könn­un­ar­innar kæmi upp úr kjör­köss­unum.

Þeir þrír flokkar sem eru í stjórn­ar­and­stöðu og starfa nú saman í meiri­hluta í Reykja­vík myndu fá sam­tals 38,3 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag, eða 10,3 pró­sentu­stigum meira en haustið 2017. Þegar Mið­flokknum er bætt við mælist fylgi þeirra fjög­urra stjórn­ar­and­stöðu­flokka sem mæl­ast nú með kjör­dæma­kjörna þing­menn með 51,2 pró­sent stuðn­ing.

Dauðu atkvæðin gætu ráðið úrslitum

Alls gætu 8,1 pró­sent atkvæða fallið niður dauð ef nið­ur­staða kosn­inga yrði eins og nýjasta könnun MMR gerir ráð fyrir. Það eru atkvæði sem myndu falla til Sós­í­alista­flokks Íslands (4,1 pró­sent), Flokks fólks­ins (3,5 pró­sent) og fara í „annað“ (0,5 pró­sent).

Það myndi þýða að sitj­andi rík­is­stjórn væri fall­inn, enda næði fengi hún undir 40 pró­sent atkvæða ef kosið væri í dag. Það myndi ein­ungis skila Sjálf­stæð­is­flokki (14 þing­menn), Vinstri grænum (átta þing­menn) og Fram­sókn­ar­flokki (sex þing­menn) 28 þing­mönnum, sem er ansi langt frá 32 manna lág­marks­meiri­hlut­anum.

Slík staða myndi gera það að verkum að hægt þeir flokkar sem mynda meiri­hlut­ann í Reykja­vík­ur­borg, Sam­fylk­ing (ell­efu þing­menn), Píratar (átta þing­menn), Viðreisn (sjö þing­menn) og Vinstri græn (átta þing­menn), myndu að óbreyttu geta myndað rúman 34 manna meiri­hluta. Aðrir flokkar á þingi myndu þá fá 29 þing­menn. Slík rík­is­stjórn myndu samt sem áður ekki njóta stuðn­ings meiri­hluta lands­manna þar sem sam­eig­in­legt fylgi flokk­anna fjög­urra væru 49,4 pró­sent.

Það væri einnig hægt að mynda 33 manna meiri­hluta með því að skipta Viðreisn út fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn eða 32 manna meiri­hluta ef Framsókn tæki sæti Vinstri grænna við borðið.

Ef vilji væri til að mynda rík­is­stjórn á hægri ás stjórn­mál­anna myndi þurfa til fjóra flokka líka. Sjálf­stæð­is­flokkur, Mið­flokkur (níu þing­menn) og Viðreisn næðu ein­ungis 30 þing­mönnum og þyrfti Fram­sókn­ar­flokk­inn til að ná meiri­hluta upp á 36 þing­menn.

Eini mögu­leik­inn til að mynda þriggja flokka meiri­hluta­stjórn væri ef að tveir stærstu flokk­arnir, Sjálf­stæð­is­flokkur og Sam­fylk­ing, myndu ná saman og taka einn af Mið­flokki, Vinstri grænum, Pirötum eða Viðreisn með sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár