Logi spyr hvort til greina komi að setja lög á verkfall hjúkrunarfræðinga

Logi Ein­ars­son spurði Bjarna Bene­dikts­son um kjara­deilu hjúkr­un­ar­fræð­inga í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í dag. Verkfall hjúkr­un­ar­fræð­inga hefst að öðru óbreyttu á mánu­dag.

Logi spurði hvort ekki væri kominn tími til að höggva á hnútinn í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga við ríkið.
Logi spurði hvort ekki væri kom­inn tími til að höggva á hnút­inn í kjara­deilu hjúkr­un­ar­fræð­inga við ríkið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ingar, spurði Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við upp­haf þing­fundar hvort ekki væri kom­inn tími til að höggva á hnút­inn í kjara­deilu hjúkr­un­ar­fræð­inga við ríkið og gefa samn­inga­nefnd rík­is­ins auk­inn sveigj­an­leika til að semja. Það stefnir í verk­fall hjúkr­un­ar­fræð­inga á mánu­dag.

Logi sagði að mest athygli hefði verið á áhrifum verk­falls á sýna­tökur ferða­manna við landa­mæri en minna á áhrif á þjón­ustu á öldr­un­ar­heim­ilum, í heima­hjúkrun og heilsu­gæslu. Nýaf­stað­inn far­aldur hefði sýnt fram á mik­il­vægi stétt­ar­innar. „Það eru nefni­lega ekki bara flug­fé­lög og bankar sem eru kerf­is­lega mik­il­vægir hæst­virtur ráð­herra,“ bætti hann við.

Logi var harð­orður í óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn sinni til Bjarna og sagði meðal ann­ars: „Ef upp kemur kemur alvar­leg staða í heil­brigð­is­kerf­inu 22. júní verður hún að þessu sinni ekki af völdum fram­andi veiru heldur vegna rík­is­stjórnar sem hefur ekki nægan vilja til að semja.“

Spyr hvort Logi skilji heildarsamhengi samninganna

Í svari sínu sagði Bjarni að ríkið hefði átt af fullri alvöru í við­ræðum um nýja kjara­samn­inga við hjúkr­un­ar­fræð­inga. Ríkið hefði mætt öllum helstu kröfum þeirra ef frá væri tal­inn launa­lið­ur­inn, enn ættu samn­ings­að­ilar eftir að ná saman þar. Þá spurði Bjarni hvort að Logi teldi að ríkið ætti bara að fall­ast á allar kröfur í kjara­samn­ings­deilum.

Í kjöl­farið bar Bjarni upp nokkrar spurn­ingar. „Skilur hátt­virtur þing­maður ekki heild­ar­sam­hengi kjara­samn­inga hins opin­bera? Loforði gagn­vart lif­s­kjara­samn­ingum? Að menn geti ekki sprengt for­sendur allra ann­arra samn­inga? Veit hátt­virtur þing­maður ekki að við höfum náð nið­ur­stöðu við 80 pró­sent við­semj­enda okkar?“

Logi spurði að lokum eftir að hafa tekið til máls síð­ara sinni hvort að til greina komi að setja lög á hjúkr­un­ar­fræð­inga ef ekki náist að semja.

Bjarni segir málflutninginn dapurlegan

Í svari sínu sagði Bjarni mál­flutn­ing­inn dap­ur­legan. „Ég verð að segja mér þykir orðið mjög dap­ur­legt hvernig menn vilja reyna að ná póli­tísku höggi á stjórn­völd hverju sinni með því að taka alltaf upp ein­hliða mál­stað þess sem er að semja við ríkið. Þetta er orðin lenska hér í umræðu um kjara­mál á þing­inu. Og er auð­vitað full­kom­lega óábyrgur mál­flutn­ingur hér á ferð­inni hjá for­manni sam­fylk­ing­ar­innar. Sem hefur í raun og veru ekk­ert annað fram að færa en að það eigi að fall­ast á allar kröfur hjúkr­un­ar­fræð­inga svo að samn­ingar geti tek­ist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár