Erlendur sjóður keypti fyrir hálfan milljarð í Högum

Banda­rískur fjár­fest­ing­ar­sjóður sem hefur fjár­fest fyrir á fjórða millj­arð króna í nokkrum íslenskum félögum keypti stóran hlut í Högum í vik­unni. Hluta­bréfa­verð Haga hefur lækkað um tugi pró­senta und­an­farna mán­uði.

Bónus, stærsta verslunarkeðja landsins, er krúnudjásnið í Hagasamstæðunni. Alls reka Hagar 50 verslanir innan fimm smásölufyrirtækja og fjögurra vöruhúsa.
Bónus, stærsta versl­un­ar­keðja lands­ins, er krúnu­djá­snið í Haga­sam­stæð­unni. Alls reka Hagar 50 versl­anir innan fimm smá­sölu­fyr­ir­tækja og fjög­urra vöru­húsa. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn The Wellington Trust Company, sem er á vegum banda­ríska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Wellington Mana­gement, keypti hluta­bréf í Högum fyrir rúm­lega hálfan millj­arð króna í vik­unni. Sjóð­ur­inn átti engin hluta­bréf í Högum fyrir við­skiptin er á nú 1,6 pró­sent eign­ar­hlut í félag­inu og er á meðal 20 stærstu hlut­hafa þess.

Töluverð við­skipti voru með hluta­bréf í Högum í byrjun viku, sem leiddu til þess að hluta­bréfa­verð í félag­inu lækk­aði. Hluta­bréfa­verð í Högum hefur lækkað um 35 pró­sent frá 15. maí. Síðan þá hefur félagið tví­vegis sent frá sér aðkomu­við­vörun vegna þess að bráða­birgða­upp­gjör sýndu sölu­sam­drátt í magni og krónum. Ástæðan er opnun versl­unar Costco þann 23. maí, en sú verslun hefur tekið til sín umtals­verð við­skipti á dag­vöru­mark­aði. Mark­aðsvirði Haga hefur dreg­ist saman um 24 millj­arða króna frá því að Costco opn­aði.

Eiga stóran hlut í nokkrum íslenskum félögum

The Wellington Trust Company er í sjóður í stýr­ingu Wellington Mana­gement. Það er eitt stærsta eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki heims með eignir í stýr­ingu upp á sam­tals um þús­und millj­arða Banda­ríkja­dala. Sjóð­ur­inn keypti fyrir 525 millj­ónir króna í Högum og var langstærsti kaup­andi bréfa í félag­inu í lið­inni viku. Sjóð­ur­inn hefur verið umsvifa­mik­ill á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði það sem af er ári og á stóra hluti í fjórum öðrum skráðum félögum.

Í lok febr­úar keypti sjóð­ur­inn stóran hlut í N1 og á í dag 4,5 pró­sent hlut í félag­inu sem er tæp­lega 1,3 millj­arða króna virði miðað við gengi bréfa í N1 í dag.

Í maí­mán­uði keypti The Wellington Trust Company hlut í Nýherja. Alls á sjóð­ur­inn nú 1,9 pró­sent hlut í félag­inu sem er um 270 millj­óna króna virði.

Þá á sjóð­ur­inn einnig hluti í Símanum (1,8 pró­sent hlut sem er met­inn á 740 millj­ónir króna) og í Eimskip (1,3 pró­sent sem er um 800 millj­óna króna virði). Samtal er mark­aðsvirði þeirra bréfa sem The Wellington Trust Company er á meðal 20 stærstu hlut­hafa í um 3,6 millj­arðar króna.

Kvika keypti í Icelandair

Það voru fleiri stór við­skipti í vik­unni. Icelandair, sem hefur hríð­fallið í verði á und­an­förnum mán­uðum, rétti aðeins úr kútnum í vik­unni. Það gerð­ist sér­stak­lega eftir að tveir lyk­il­stjórn­endur, Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Boga­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála hjá félag­inu, keyptu bréf í því föstu­dag­inn 11. ágúst. Nú er gengi bréfa í félag­inu um 16 krónur á hlut en var 38,9 krónur á hlut í apríl 2016. Frá þeim tíma hefur mark­aðsvirði Icelandair dreg­ist saman um 60 pró­sent. Mark­aðsvirðið er nú um 78 millj­arðar króna en var 189 millj­arðar króna í apríl í fyrra.

Kvika banki keypti í Icelandair fyrir 863 millj­ónir króna í vik­unni og á nú 1,1 pró­sent í félag­inu. Áður átti bank­inn ekk­ert. Arion banki minnk­aði stöðu sína í félag­inu og seldi bréf fyrir 224 millj­ónir króna.

Þá keypti VÍS, sem er skráð á markað, hluta­bréf í Marel fyrir 2,7 millj­arða króna og Marel keypti eigin bréf fyrir 893 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár