Vaxtalækkanir hafa margskonar áhrif á íbúðamarkað

Vaxta­lækk­anir geta haft margs­konar áhrif á íbúða­markað, að sögn hag­fræð­ings í Hag­fræði­deild Lands­bank­ans. Þær geta lækkað greiðslu­byrði og bætt fjár­hags­stöðu heim­il­anna til skemmri tíma, en aftur á móti hækkað hús­næð­is­verð til lengri tíma litið.

Una Jónsdóttir
Una Jóns­dóttir Mynd: Aðsend mynd

Áhrif vaxta­lækk­ana hafa gert vart við sig á íbúða­mark­aði en vextir á íbúða­lánum hafa víð­ast hvar lækkað og eru orðnir mjög lágir, sögu­lega séð. Þetta hefur það í för með sér að greiðslu­byrði af lánum lækkar og þar með aukast ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­ila. Lægri vextir geta einnig aukið svig­rúm fólks til fast­eigna­kaupa, þar sem hægt er að taka hærra lán en ella án þess að greiðslu­byrði auk­ist.

Þetta skrifar Una Jóns­dóttir, hag­fræð­ingur í Hag­fræði­deild Lands­bank­ans, í grein­inni „Íbúða­mark­aður á tímum heims­far­ald­urs – Vaxta­lækk­anir og nokkuð óvænt hækkun íbúða­verðs“ sem birt­ist í nýj­ustu Vís­bend­ingu.

Hún segir að slíkt geti skapað þrýst­ing til hækk­unar hús­næð­is­verðs. Vaxta­lækk­anir geti því haft margs­konar áhrif á íbúða­markað. Lækkað greiðslu­byrði og bætt fjár­hags­stöðu heim­il­anna til skemmri tíma, en aftur á móti hækkað hús­næð­is­verð til lengri tíma litið.

„Gera hefði mátt ráð fyrir því að aukið atvinnu­leysi, versn­andi efna­hags­horfur og almenn óvissa myndi draga úr við­skiptum með íbúð­ar­hús­næði og verð­hækk­anir yrðu litlar sem engar út þetta ár. Nýjustu tölur frá maí­mán­uði bera þess hins vegar merki að íbúða­mark­aður sé nokkuð líf­legur. Verð hækk­aði um 0,8 pró­sent milli mán­aða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem er mesta hækkun milli mán­aða síðan í nóv­em­ber 2018. Í apríl stóð verð hins vegar í stað og í mars var hækk­unin aðeins 0,1 pró­sent frá fyrri mán­uði.

Gera má ráð fyrir því að vaxta­lækk­anir hafi ýtt undir eft­ir­spurn og komið í veg fyrir það að mark­að­ur­inn færi í algjört frost með litlum sem engum hreyf­ingum á nafn­verði milli mán­aða og auknum líkum á raun­verðs­lækk­unum,“ skrifar hún.

Una segir að ef litið sé til breyt­inga á hús­næð­isliðnum í mæl­ingum Hag­stof­unnar á vísi­tölu neyslu­verðs sjá­ist áhrif vaxta­breyt­inga glögg­lega. „Í júní hækk­aði hús­næð­islið­ur­inn reiknuð húsa­leiga, sem end­ur­speglar útgjöld hús­næð­is­eig­enda, um 0,37 pró­sent milli mán­aða. Vísitala mark­aðs­verðs hús­næðis, sem fangar breyt­ingar á hús­næð­is­verði, hækk­aði hins vegar um 0,89% milli mán­aða. Mis­mun­ur­inn skýrist af lægri vöxtum, sem vógu 0,52 pró­sentu­stigum til lækk­unar í júní. Haldi verð­hækk­anir áfram á hús­næð­is­mark­aði munu áhrifin af vaxta­lækk­unum, að óbreyttu, vega minna og verð­bólga gæti orðið meiri. Fylgjast þarf því vel með þess­ari þróun á næstu mán­uðum og er við­búið að frek­ari hækk­anir íbúða­verðs kunna að hafa áhrif á verð­bólgu sem aftur dregur úr líkum á áfram­hald­andi vaxta­lækk­unum.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár