Gríðarleg eftirspurn eftir matarúthlutunum – „Þjóðarátak að enginn svelti“

Hópur sjálf­boða­liða kom mat­vælum og nauð­synja­vörum til 1.272 ein­stak­linga í síð­ustu viku og um helg­ina. For­sprakki verk­efn­is­ins segir mikla fátækt vera á Íslandi og að almenn­ingur verði að fara að gera sér grein fyrir því.

Pokum í massavís voru keyrðir út í síðustu viku.
Pokum í massa­vís voru keyrðir út í síð­ustu viku. Mynd: Ásgeir Ásgeirsson

Fjöldi sjálf­boða­liða og Fjöl­skyldu­hjálp Íslands, í sam­vinnu við Slysa­varna­fé­lagið Lands­björgu, tók höndum saman í síð­ustu viku til að koma mat­vælum og nauð­synjum til fjöl­skyldna og ein­stak­linga sem reiða sig á mat­ar­út­hlut­anir í hverjum mán­uði, en vegna sam­komu­banns sem tók gildi í byrjun vik­unnar var ekki lengur hægt að við­hafa hefð­bundnar leiðir til úthlut­un­ar.

Ásgeir Ásgeirs­son, annar for­sprakki átaks­ins, segir í sam­tali við Kjarnann að mat­ar­út­hlut­an­irnar hafi gengið vel, þetta hafi verið gríð­ar­leg vinna en tek­ist á end­anum. Hann og konan hans, Rósa Braga­dóttir, sem einnig tók þátt í að koma verk­efn­inu af stað, keyrðu út síð­ustu send­ing­una síð­ast­lið­inn laug­ar­dag. Alls var farið með mat­ar­poka til 1.272 kvenna, karla og barna.

Um 35 manns tóku þátt í að láta útkeyrsl­una verða að veru­leika og segir Ásgeir að allir hafi tekið þeim vel. Verk­efnið hafi verið mjög gef­andi fyrir þá sem hjálp­uðu til. Þá þakkar hann Ásgerði Jónu Flosa­dóttur hjá Fjöl­skyldu­hjálp­inni sér­stak­lega fyrir sam­starfið – það hafi verið ómet­an­legt.

Beiðnirnar fleiri en þau óraði fyrir

Áður en útkeyrslan hófst var skrán­ing­ar­síða sett á lagg­irnar með leyfi frá Almanna­vörnum og með vit­und emb­ættis sótt­varn­ar­lækn­is. Þar var hægt að senda inn beiðnir um úthlutun og jafn­framt var opnað síma­ver þar sem hægt var að hringja inn í beiðnir. Síma­verið var mannað fólki sem talar íslensku, pólsku, spænsku og arab­ísku og var ætlað þeim sem ekki hafa aðgang að net­inu. Ásgeir segir að mikið álag hafi verið á síma­ver­inu og að beiðn­irnar hafi orðið mikið fleiri en þau óraði fyrir.

Engum blöðum er um það að fletta að margir þurfa á aðstoð að halda í íslensku sam­fé­lagi og bendir Ásgeir á að fólkið sem þurfi á slíkri aðstoð að halda sé ein­ungis venju­legt fólk eins og aðrir. Það nái ein­fald­lega ekki endum saman.

Hann segir enn fremur að allt hafi gengið vel er varðar sótt­varnir – enda hafi allir verið mjög með­vit­aðir um þær. Mikils öryggis hafi verið gætt. „Allir voru spritt­aðir og með hanska og jafn­vel með grímur,“ segir hann en bætir því þó við að þegar for­set­inn kom í heim­sókn hafi fólk tekið af sér grím­urnar – svona fyrir kurt­eisis sakir. „Það hefði kannski ekki alveg verið við­eig­andi að hylja sig fyrir for­set­anum,“ segir hann og hlær.

Ríkið þarf að koma að verkefnum sem þessum

Þegar Ásgeir er spurður út í það hvort hóp­ur­inn ætli að end­ur­taka leik­inn og flytja mat­vörur aftur til þeirra sem þurfa á því að halda segir hann að nú vand­ist málin. Aðgerð sem þessi kosti pen­inga. Eini mögu­leik­inn á að halda þessu áfram, sam­kvæmt Ásgeiri, er að ef stjórn­völd komi að þessu með ein­hverjum hætti. „Við getum ekki sett þetta álag á venju­legt fólk – það þyrfti að þjálfa fólk til að vinna þessa vinnu viku eftir viku.“

En hvernig er þá hægt að hjálpa þessu fólki áfram? Ásgeir segir að svarið liggi í rík­is­stuðn­ingi. Fara þurfi vel yfir hvaða fjár­magn sé nauð­syn­legt og gera góða áætlun. „Það sem þyrfti að ger­ast væri að fá ein­hvern sem ræður sem er til­bú­inn að skella pen­ingum í þetta og heim­ila leigu­bílum að taka þátt í þessu.“ Sem sagt að vita hvaða fjár­magn þurfi og fá síðan gott og reynslu­mikið fólk til að stýra þessu. Þannig gæti átak sem þetta gengið í tvo mán­uði. Þá þurfi að fara í þjóð­ar­á­tak svo eng­inn svelti í þessu ástandi.

Spilum ekki útdeilt jafnt

Ásgeir segir frá því þegar hann fór með pakka síð­ast­lið­inn laug­ar­dag til manns sem hafði verið að bíða eftir honum en hann hafði ekki haft mat alla síð­ustu viku.

„Maður fór að skilja betur að spil­unum sé ekki útdeilt jafnt. Það virð­ist vera vanda­mál sem ekki er tekið á og fólk virð­ist ekki vilja ræða. Það er rosa­lega erfitt að horfa upp á það þegar fólk talar vanda­málið niður þegar það er aug­ljós­lega til staðar. Það er mikil fátækt og erf­ið­leikar í gangi í sam­fé­lag­inu okkar. Það fólk sem talar vanda­málið niður ætti að koma í eina dreif­ingu og segja augliti til auglitis því fólki að ekk­ert vanda­mál sé til staðar,“ segir hann.

Hann seg­ist þó ekki hafa grunað að vanda­málið væri af þess­ari stærð­argráðu áður en verk­efnið hófst en hann bjóst við að um 300 til 400 manns þyrftu á aðstoð að halda en eins og áður segir keyrðu sjálf­boða­lið­arnir út mat­væli og nauð­synja­vörum til um 1.300 manns á þessum nokkru dögum.

Þannig hafi þau í sjálf­boða­liða­hópnum verið ofur­liði borin þegar þau sáu við­brögðin við ákalli þeirra enda ósk­uðu mikið fleiri eftir aðstoð en þeim hafði nokkurn tím­ann grunað.

Ásgeir lýkur máli sínu á að benda á að fólk sé ekki tölur á blaði og ef eitt barn sveltur þá sé það einu barni of mikið. Það sama megi auð­vitað segja um allt annað fólk, til að mynda eldri borg­ara og öryrkja sem margir eru í vanda. „Það er hræði­legt að sjá að fólk sem búið er að vinna alla ævi – búið að skila sínu til sam­fé­lags­ins – að það sé bara skilið eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár