Fræða ferðamenn um góða sjúkdómsstöðu íslenskra búfjárstofna

Land­bún­að­ar­ráð­herra telur mik­il­vægt að ferða­menn fái fræðslu um góða sjúk­dóma­stöðu íslenskra búfjár­stofna og hversu við­kvæmir þeir eru fyrir nýju smit­i. Því verða sett upp vegg­spjöld með þeim upp­lýs­ingum á helstu komu­stöðum til lands­ins.

Sett verða upp vegg­spjöld með upp­lýs­ingum um góða sjúk­dóma­stöðu íslenskra búfjár­stofna og hversu við­kvæmir þeir eru fyrir nýju smiti á helstu komu­stöðum til lands­ins. Vegg­spjöldin eru hluti auk­inni fræðslu til ferða­manna um inn­flutn­ing afurða úr dýra­rík­inu. Þetta kemur fram í skýrslu sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra um vernd búfjár­stofna og bætta sam­keppn­is­stöðu inn­lendrar mat­væla­fram­leiðslu.

Leyfa innflutning á fersku kjöti í janúar

[links]Í júní síð­ast­liðnum var frum­varp Krist­jáns Þórs Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um að heim­ila inn­flutn­ing á ófrystu kjöti sam­þykkt á Alþingi. Á sama tíma kynnti ráð­herra aðgerða­á­ætlun með mót­væg­is­að­gerðum til þess að verja íslenska búfjár­stofna og bæta sam­keppn­is­­stöðu inn­­­lendrar mat­væla­fram­­leiðslu. Í aðgerð­ara­á­ætl­un­inni er að finna 17 aðgerðir.

Sjö aðgerðum er nú þegar lokið sam­kvæmt nýrri skýrslu ráð­herra. Þar á meðal hafa við­bót­ar­trygg­ingar verði settar gagn­vart inn­fluttu kalkúna­kjöti, kjúklinga­kjöti og eggjum. Auk þess sem óskað hefur verið eftir við­bót­ar­trygg­ingum vegna inn­flutts svína­kjöts og nauta­kjöts.

Í skýrslu ráð­herra kemur jafn­framt að fyr­ir­hugað er að fimm aðgerðum til við­bótar verði lokið fyrir 1. jan­úar 2020. Þar á meðal hefur ráð­herra falið Mat­væla­stofnun að tryggja aukna fræðslu til ferða­manna um inn­flutn­ing afurða úr dýra­rík­inu.

Hluti verk­efn­is­ins felst í því að setja upp vegg­spjöld til upp­lýs­inga á helstu komu­stöðum til lands­ins fyrir árs­lok 2019. „Mik­il­vægt er að far­þegar til Íslands fái fræðslu um góða sjúk­dóma­stöðu íslenskra búfjár­stofna og hversu við­kvæmir þeir eru fyrir nýju smiti,“ segir skýrsl­unni.

Vill setja á fót tryggingarsjóð vegna búfjársjúkdóma

Í skýrsl­unni er jafn­framt fjallað um aðgerð sem sem telst til lengri tíma verk­efna en það er að tekið verði til skoð­unar að setja á fót setja á fót sér­stakan trygg­inga­sjóð vegna tjóns sem fram­leið­endur geta orðið fyrir vegna búfjár­sjúk­dóma.

Ráðu­neyti sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra óskaði eftir því við Bænda­sam­tök Íslands að sam­tökin upp­lýstu um hug­myndir sínar um slíkan trygg­inga­sjóð, meðal ann­ars um mótun hans, upp­bygg­ingu og í hvaða til­fellum réttur til bóta gæti stofn­ast.

Tillögur Bænda­sam­taka Íslands bár­ust í októ­ber síð­ast­liðnum og hefur ráðu­neytið til­lög­urnar til skoð­unar, sam­kvæmt skýrsl­unni. Þá hefur ráðu­neytið til skoð­unar mögu­leg úrræði í nágranna­ríkj­unum og innan Evr­ópu­sam­bands­ins.

Fundu sjúk­dóms­vald­andi bakt­er­íur í íslensku kjöti

Í skimum á vegum Mat­væla­­stofn­un­ar, heil­brigð­is­eft­ir­lits sveit­­ar­­fé­laga og atvinnu- og ný­­sköp­un­­ar­ráðu­­neyt­is­ins ­fannst bæði ­­STEC E. coli í kjöti af íslensku sauðfé og naut­­grip­­um. ­­Þetta var í fyrsta sinn sem ski­­mað hefur verið fyrir eit­­ur­­mynd­andi teg­und E.coli í kjöti af sauðfé og naut­­gripum hér­­­lend­­is en sýna­takan fór fram í versl­unum á kjöti frá mars til des­em­ber 2018.

STEC fannst í 30 pró­­sent sýna stofn­un­­ar­innar af lamba­­kjöti og 11,5 pró­­sent sýna af naut­­gripa­kjöti. STEC er eit­­ur­­mynd­andi teg­und E. coli sem getur valdið alvar­­legum veik­indum í fólki en algeng sjúk­­dóms­ein­­kenni eru nið­­ur­­gangur en einnig getur sjúk­­dóm­­ur­inn leitt til nýrnaskaða, svo­­kall­að HUS (Hemolyt­ic Ur­ea ­­Syndrome).

Þá greindust ekki salmon­ella og ­kampýló­bakter í svína- og ali­fugla­kjöti í skimum stofn­un­ar­innar að und­an­skil­inni salmon­ellu sem fannst í einu sýni af svína­kjöt­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár