Innflutningur á fersku kjöti ekki sú ógn sem haldið hefur verið fram

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri FA, segir að nið­ur­stöður skimunar á vegum Mat­væla­stofn­unar á íslensku sauðfé og nauta­kjöti sýni að staðan sé ekki jafn góð hér á landi og áður hefur verið haldið fram.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.
Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri FA. Mynd: Hringbraut

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, segir að það fjölgi stöðugt upp­lýs­ingum og gögnum sem sýni fram á að inn­flutn­ingur á fersku kjöti sé alls ekki sú ógn sem haldið hefur verið fram. Hann segir í sam­tali við Kjarnann að nið­ur­stöður skimunar á vegum Mat­væla­stofn­unar á íslensku sauðfé og nauta­kjöti sýni að staðan er ekki jafn góð hér á landi líkt og haldið hefur verið fram. Sjúk­dóms­vald­andi bakt­er­íur og sýkla­lyfja­ó­næmi í kjöti sé alþjóð­legt vanda­mál sem ekk­ert land sé ónæmt fyrir.

Fundu sjúkdómsvaldandi bakteríur í íslensku kjöti

[links]Skimun á vegum Mat­væla­stofn­unar, heil­brigð­is­eft­ir­lits sveit­ar­fé­laga og atvinnu- og ný­sköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins sýnir að ­STEC E. coli finnst bæði í kjöti af íslensku sauðfé og naut­grip­um. ­STEC fannst í 30 pró­sent sýna stofn­un­ar­innar af lamba­kjöti og 11,5 pró­sent sýna af naut­gripa­kjöt­i. Þetta er í fyrsta sinn hefur verið ski­mað fyrir eit­ur­mynd­andi teg­und E.coli í kjöti af sauðfé og naut­gripum hér­lend­is.

Á vef Mat­væla­stofn­unar segir að ­STEC sé eit­ur­mynd­andi teg­und E. coli sem getur valdið alvar­legum veik­indum í fólki en algeng sjúk­dóms­ein­kenni eru nið­ur­gangur en einnig getur sjúk­dóm­ur­inn leitt til nýrnaskaða, svo­kall­að HUS (Hemolytic Urea ­Syndrome). Fólk getur smit­ast af ­STEC ­með meng­uðum mat­vælum eða vatni, með beinni snert­ingu við smituð dýr, eða umhverfi meng­uðu af saur þeirra. Þá segir að neyt­endur geta dregið veru­lega úr áhættu með því að gegn­u­melda kjöt fyrir neyslu og gæta að kross­mengun.

Samanburðurinn byggður á ófullnægjandi upplýsingum

Ólafur segir í sam­tali við Kjarnann að sam­an­burð­ur­inn á inn­fluttu kjöt og íslensku hafi verið byggður á ófull­komnum upp­lýs­ingum. Hann segir að í fyrsta lagi vanti að miklu leyti upp­lýs­ingar um sýkla­lyfja­notkun í íslenskum land­bún­aði en að einnig sé erfitt að bera þær upp­lýs­ingar saman við önnur Evr­ópu­ríki. Það sé vegna þess að lífmassi ­fisk­eldis er með­tal­inn í útreikn­ingum á sýkla­lyfja­notk­un í land­bún­aði. Sýkla­lyf eru hins vegar ekki notuð í fisk­eldi á Íslandi og vegna þess hve stór hlutur fisk­eldis er af land­bún­aði á Íslandi þá skekkir það hlut­fallð. „Sam­an­burð­ur­inn um sýkla­lyfja­notkun í land­bún­aði við hin Evr­ópu­ríkin verður því skakkur og óraun­hæfur, “ segir Ólafur.

Í öðru lagi bendir hann á að hér á landi séu aðeins nýhafnar skimanir sam­kvæmt evr­ópskum reglu­gerðum. Skimun Mat­væla­stofn­unar á sjúk­dóms­vald­andi bakt­er­íum í íslensku kjöti er sú fyrsta sem fram­kvæmd er hér á landi. Ólafur segir að nið­ur­stöður Mat­væla­stofn­unar sýni að staðan er ekki jafn góð hér og landi og áður hefur verið haldið fram. „Nú fjölgar stöðugt upp­lýs­ingum og gögnum sem sýna fram á að inn­flutn­ingur á fersku kjöti er alls ekki sú ógn sem haldið hefur verið fram,“ segir Ólafur.[adspot]

Hann bendir á að sjúk­dóms­vald­andi bakt­er­íur og sýkla­lyfja­ó­næmi í kjöt sé alþjóð­legt vanda­mál sem ekk­ert land sé ónæmt fyrir. „Það er rangt, líkt og þessu hefur verið stillt upp í umræð­unni, að inn­lenda varan sé svo hrein og heil­næm en útlenda varan óhrein og hættu­leg.“

Enn fremur segir Ólafur að stjórn­völd hafi van­rækt ýmsar var­úð­ar­ráð­staf­anir og að það þurfi að horfa til fleiri þátta en inn­flutn­ings til að sporna við frek­ari útbreiðslu sjúk­dóms­vald­andi bakt­ería og sýkla­lyfja­ó­næmi. Í stað þess að mis­muna erlendri vöru með því banna inn­flutn­ing á fersku kjöti þá hvetji félagið frekar til þess að stjórn­völd grípi til alhliða ráð­staf­anna þegar að kemur að mat­væla­ör­yggi.

Bjartsýn á að frumvarpið fari í gegn

Í ­febr­úar síð­ast­liðnum lagði Krist­ján Þór Júl­í­us­­son, sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráð­herra, fram frum­varp á Alþingi sem felur í sér að fryst­i­­skylda á inn­­­fluttu kjöti verði afnumin og heim­ilt verði að flytja inn ferskt kjöt, fersk egg og vörur úr óger­il­­sneyddri mjólk. Frum­varpið er nú í annarri umræðu á þing­inu en nái frum­varpið fram að ganga munu hömlur á inn­­­flutn­ingi falla niður þann 1. sept­­em­ber næst­kom­and­i.

Ólafur segir aðspurður að FA sé bjart­sýnt á frum­varpið verði sam­þykkt á Alþingi. „Að sjálf­sögðu erum við bjart­sýn á að þetta fari í gegn, það getur ekki verið að Alþingi brjóti áfram gegn EES- samn­ingum vís­vit­andi.“

Munu beita sér fyrir frekari rannsóknum

Guðrún Tryggva­dóttir, for­maður Bænda­sam­taka Íslands, segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að nið­ur­stöður Mat­væla­stofn­unnar sýni, eins og fram kemur í skýrsl­unni, að það þarf að rann­saka þessi mál betur og skerpa á fyr­ir­byggj­andi aðgerðum í slát­ur­húsum og kjöt­vinnslum.

„Bænda­sam­tökin munu beita sér fyrir því Mat­væla­stofnun rann­saki þessi mál enn frekar. Frekari rann­sóknir eru mik­il­vægar til þess að leiða í ljós hvort bakt­er­í­urnar eru, í ein­hverjum til­fellum, til staðar í sjúk­dóms­vald­andi magni, en þær nið­ur­stöður sem nú eru kynntar sýna ein­göngu hvort þær finn­ast eða ekki,“ segir Guðrún.

Hún segir jafn­framt að áhuga­vert væri í þessu til­felli að hafa sam­an­burð við önnur lönd í Evrópu. „Iðra­sýk­ingar af völdum STEC eru afar fátíðar hér á landi í sam­an­burði við önnur lönd og er tíðni þeirra hér á landi til dæmis með því lægsta sem ger­ist í Evrópu þrátt fyrir að skimun Mat­væla­stofn­unar hafi sýnt fram á algengi þeirra á kjöti.“

Auk þess bendir Guðrún á að nið­ur­stöður skimun­ar­innar sýni sterka stöðu íslenska svína­kjöt og kjúklinga­kjöts en í sýnum úr íslensku kjúklinga- og svína­kjöti fannst hvorki salmon­ella né kampýló­bakter „Þetta eru mjög jákvæðar nið­ur­stöður og til marks um hversu sterkar þessar greinar standa hér á landi og að sú áhersla sem lögð á þessi mál af hálfu bænda hefur skilað árangri,“ segir Guðrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár