Sjúkdómsvaldandi bakteríur fundust í íslensku kjöti

Sjúk­dóms­vald­andi bakt­er­íur fund­ust í 30 pró­sent sýna Mat­væla­stofn­unar af lamba­kjöti og 11,5 pró­sent sýna af naut­gripa­kjöti. Sótt­varn­ar­læknir segir nið­ur­stöð­urnar slá­andi og sýna jafn­framt að umræðan um íslenskt kjöt hafi verið á villi­götum.

Skimun á vegum Mat­væla­stofn­unar sýnir að STEC E. coli finnst bæði í kjöti af íslensku sauðfé og naut­gripum. STEC fannst í 30 pró­sent sýna stofn­un­ar­innar af lamba­kjöti og 11,5 pró­sent sýna af naut­gripa­kjöti. Sótt­varna­læknir segir nið­ur­stöð­urnar slá­andi og segir þær ekki í sam­ræmi við umræð­una um íslenska fram­leiðslu sam­an­borið við erlenda. Fyrir Alþingi liggur stjórn­ar­frum­varp sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra sem heim­ilar inn­flutn­ing á fersku kjöti, eggjum og vörum úr óger­il­sneyddri mjólk, frá og með 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

Getur valdið alvarlegum veikindum í fólki

Skimunin var á vegum Mat­væla­stofn­unar, heil­brigð­is­eft­ir­lits sveit­ar­fé­laga og atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins en þetta er í fyrsta sinn hefur verið ski­mað fyrir eit­ur­mynd­andi teg­und E.coli í kjöti af sauðfé og naut­gripum hér­lendis. Sýna­takan fór fram í versl­unum og tekin voru um 600 sýni af kjöti af sauðfé, naut­gripum, svínum og kjúklingum, af inn­lendum eða erlendum upp­runa frá mars til des­em­ber 2018.

Nið­ur­stöður skimunar fyrir STEC benda til að shigatoxín mynd­andi E. coli sé hluti af nátt­úru­legri örveruflóru íslenskra naut­gripa og sauð­fjár. STEC fannst í 30 pró­sent sýna af lamba­kjöti og 11,5 pró­sent sýna af naut­gripa­kjöti.

Mat­væla­stofnun segir að ljóst sé að rann­saka þarf betur STEC í kjöti og skerpa þarf á fyr­ir­byggj­andi aðgerðum í slát­ur­húsum og kjöt­vinnslum til að minnka líkur á að STEC ber­ist í kjötið. Þá greindust salmon­ella og kampýló­bakter ekki í svína- og ali­fugla­kjöti í skimum stofn­un­ar­innar að und­an­skil­inni salmon­ellu sem fannst í einu sýni af svína­kjöti.

Á vef Mat­væla­stofn­unar segir að STEC sé eit­ur­mynd­andi teg­und E. coli sem getur valdið alvar­legum veik­indum í fólki en algeng sjúk­dóms­ein­kenni eru nið­ur­gangur en einnig getur sjúk­dóm­ur­inn leitt til nýrnaskaða, svo­kallað HUS (Hemolytic Urea Syndrome). Fólk getur smit­ast af STEC með meng­uðum mat­vælum eða vatni, með beinni snert­ingu við smituð dýr, eða umhverfi meng­uðu af saur þeirra. Þá segir að neyt­endur geta dregið veru­lega úr áhættu með því að gegn­u­melda kjöt fyrir neyslu og gæta að kross­mengun.[adspot]

Ráðherra lagði fram frumvarp í kjölfar niðurstöðu EFTA- dómstólsins

[links]Í febrúar síðastliðnum lagði Krist­ján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, fram frum­varp á Alþingi sem felur í sér að frysti­skylda á inn­fluttu kjöti verði afnumin og heim­ilt verði að flytja inn ferskt kjöt, fersk egg og vörur úr óger­il­sneyddri mjólk. Á sama tíma kynnti ráð­herra aðgerða­á­ætlun með mót­væg­is­að­gerðum til þess að verja íslenska búfjár­stofna og bæta sam­keppn­is­­stöðu inn­­­lendrar mat­væla­fram­­leiðslu. ­Nái frum­varpið fram að ganga munu hömlur á inn­flutn­ingi falla niður þann 1. sept­em­ber næst­kom­and­i.

Frumvarpið er lagt fram í kjölfar niðurstöðu EFTA-­dóm­stólsins en þann 14. nóv­­em­ber 2017 komst dóm­stóll­inn að þeirri nið­­ur­­stöðu að íslenska leyf­­­is­veit­inga­­­kerfið fyrir inn­­­­­flutn­ing á hrárri og unn­inni kjöt­­­vöru, eggjum og mjólk sam­­­rým­ist ekki ákvæðum EES-­­­samn­ings­ins. Dóm­­­stóll­inn telur að það sé ósam­­­rým­an­­­legt fimmtu grein til­­­­­skip­un­­­ar­innar að skil­yrða inn­­­­­flutn­ing á slíkum vör­u­m. Hæsti­réttur komst að sömu nið­ur­stöðu þann 11. október 2018 að íslenska ríkið hefði brotið gegn þjóð­rétt­ar­legum skuld­bind­ingum sínum sam­kvæmt EES-­samn­ingn­um ­með því að halda við lýði banni við inn­flutn­ingi á fersku kjöti hingað til lands.

Í febrúar á þessu ári birti Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, rökstutt álit vegna mats stofnunarinnar um það að Ísland hefði ekki uppfyllt skyldur sínar vegna dóms EFTA-dómstólsins. Íslenskum stjórnvöldum var gefinn tveggja mánaða frestur til að ráða bót á því. Sá frestur rann út 13. apríl síðastliðinn.

Leggja til að fresta gildistökunni um tvo mánuði

Frumvarpið fór til meðferðar í atvinnuveganefnd í kjölfar fyrstu umræðu á þingi og birti nefndin nefndarálit sitt með breytingartillögu í lok síðasta mánaðar. Í álitinu segir að nauðsynlegt sé að bregðast við áliti ESA og breyta lögum því að annars sé vísvitandi verið að viðhalda ólöglegu ástandi. Bendir nefndin á að fyrir íslenskt samfélag felist gríðarlega miklir þjóðhagslegir hagsmunir í því að staða landsins sem hluti af hinum innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins sé tryggð, m.a. fyrir útflutning á íslenskum búvörum. Nefndin leggur hins vegar til að gildistöku frumvarpsins verði frestað um tvo mánuði, eða til 1. nóvember 2019, til þess að nægur tími sé til að ljúka tilteknum aðgerðum í aðgerðaáætluninni til að tryggja matvælaöryggi áður en leyfisveitingakerfið verður afnumið.

Frumvarp ráðherra hefur verið harðlega gagnrýnt af Bænda­sam­tökum Íslands og birtu samtökin yfirlýsingu um málið í febrúar. Í yfir­lýs­ing­unni segir að hafið sé yfir allan vafa að inn­flutn­ing­ur­inn mun valda íslenskum land­bún­aði miklu tjóni og ógna bæði lýð­heilsu og búfjár­heilsu.

„Við­skipta­hags­munir eru teknir fram yfir heil­brigð­is­rök. Búfjár­heilsa er látin lönd leið og bit­lausar varnir í aðgerða­á­ætlun land­bún­að­ar­ráð­herra duga skammt. Það er þver­stæða að kynna til sög­unnar aðgerða­á­ætlun til að auka mat­væla­ör­yggi á sama tíma og inn­flutn­ingur á hráu ófrosnu kjöti, eggjum og óger­il­sneyddum mjólk­ur­af­urðum er heim­il­að­ur. Við eigum hreina og heil­brigða búfjár­stofna og erum heppin að því leyti að mat­væla­sýk­ingar eru fátíðar hér­lend­is. Það er bein­línis skylda okkar að við­halda þeirri góðu stöð­u,“ segir í yfirlýsingunni.

Sjúkdómsvaldandi bakteríur finnast líka í íslensku kjöti

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir í samtali við Fréttablaðið í dag að niðurstöður Matvælastofnunar séu sláandi. Hann segir að þessar bakteríur geti valdið sýkingu og það sé sláandi að svona mikið af þessum bakteríum skuli finnast í íslensku lambakjöti og nautakjöti. Hann segir niðurstöðurnar jafnframt sýna að umræðan um erlent kjöt hér á landi hafi verið á villigötum.

„Þetta sýnir bara það að þetta er ekki eins og umræðan hefur verið um íslenska framleiðslu samanborið við þá erlendu. Sjúkdómsvaldandi bakteríur og sýklalyfjaónæmar bakteríur finnast líka í íslensku kjöti. Við erum ekki bara að tala um útlensk matvæli,“ segir Þórólfur.

Í könnun MMR í apríl síðastliðnum sögðust 55 pró­sent aðspurðra vera and­vígir inn­flutn­ingi á fersku kjöti frá löndum Evr­ópska Efna­hags­svæð­is­ins (EES) til Íslands. Alls sögð­ust 27 pró­sent vera fylgj­andi slíkum inn­flutn­ingi. 17 pró­sent aðspurðra tók ekki afstöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár