Ráðherra leggur til að innflutningsbann á fersku kjöti verði afnumið

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp sem heim­ilar inn­flutn­ing á fersku kjöti, eggjum og vörum úr óger­il­sneyddri mjólk, frá og með 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Frum­varpið er lagt fram í kjöl­far nið­ur­stöðu EFTA-­dóm­stóls­ins.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti í gær frumvarp sem felur í sér að frystiskylda á innfluttu kjöti verði afnumin og heimilt verði að flytja inn ferskt kjöt, fersk egg og vörur úr ógerilsneyddri mjólk. Á sama tíma kynnti ráðherra aðgerðaáætlun með mótvægisaðgerðum til þess að verja íslenska búfjárstofna og bæta sam­keppn­is­stöðu inn­lendrar mat­væla­fram­leiðslu. Nái frumvarpið fram að ganga munu hömlur á innflutningi falla niður þann 1. september næstkomandi.

Staðfest að íslensk stjórnvöld brutu gegn EES-samningnum

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti hefur birt frumvarpið í Samráðsgátt stjórnvalda, frumvarpið nær til breytinga á lögum um matvæli, lögum um fóðri, áburði og sáðvöru og lögum um dýrasjúkdóma. Í frumvarpinu er kveðið á um afnám núverandi leyfisveitingakerfis vegna innflutnings á ákveðnum landbúnaðarafurðum innan Evrópska efnahagssvæðisins. Umrætt leyfisveitingakerfi felur í sér að óheimilt er að flytja inn kjöt og egg hingað til lands nema með sérstakri heimild Matvælastofnunar. Með beiðni um slíkt innflutningsleyfi, fyrir hverja vörusendingu, þarf að fylgja vottorð um að vörurnar hafi verið geymdar við a.m.k. 18°C í einn mánuð fyrir tollafgreiðslu.

[links]Árið 2007 tóku íslensk stjórnvöld ákvörðun um að heimila innflutning á ófrystu kjöti frá öðrum ríkjum EES og afnema þannig skilyrði fyrir innflutningi á tilteknum landbúnaðarafurðum innan EES í því skyni að tryggja stöðu Íslands á innri markaði EES. Þá skuldbindingu staðfesti Alþingi árið 2009 en þrátt fyrir það var íslenskum lögum ekki breytt til samræmis við þá skuldbindingu. Á síðustu tveimur árum hafa bæði EFTA-dómstóllinn og Hæstiréttur Íslands staðfest að íslensk stjórnvöld hafi með þessu brotið gegn skuldbindingum sínum samkvæmt EES-samningnum. Þá hefur skaðabótaskylda íslenska ríkisins vegna þessa verið staðfest.

Í núverandi frumvarpinu er því kveðið á um afnám núverandi leyfisveitingakerfis vegna innflutnings á ákveðnum landbúnaðarafurðum innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Aðgerðaáætlun kynnt samhliða frumvarpinu

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að markmið frumvarpsins sé að íslensk stjórnvöld standi við þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Ísland hafi undirgengist á sama tíma og öryggi matvæla og vernd lýðheilsu og búfjárstofna sé tryggð. Ráðuneytið hefur undanfarið ár unnið að aðgerðaráætlun sem miðar að því að efla matvælaöryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu.

Stjórnvöld kynntu því samhliða frumvarpinu aðgerðaáætlun í tólf liðum. Meðal aðgeranna er lagt til óheimilt verði að dreifa alifuglakjöti nema matvælafyrirtæki geti sýnt fram á að kjötið sé ekki sýkt kampýlóbakteríu. Með þessu verður sama krafa gerð til innflutts alifuglakjöts og gerð hefur verið til innlendrar framleiðslu undanfarna tvo áratugi. Ásamt því eru aðgerðir sem snúa að því að bæta samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu, þar á meðal að setja á fót matvælasjóð með áherslu á eflingu nýsköpunar í innlendri matvælaframleiðslu.

Segja að hagsmunum landbúnaðarins sé fórnað fyrir heildsala

Bændasamtök Íslands sendu frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi þar sem frumvarpsdrög ráðherra voru gagnrýnd harðlega. Nái frumvarpið fram að ganga á vorþingi munu hömlur á innflutningi á hráu kjöti falla niður í byrjun sláturtíðar íslenskra lamba, þann 1. september næstkomandi. Í yfirlýsingu segir að mati Bændasamtakanna sé hagsmunum landbúnaðarins fórnað fyrir heildsala sem vilja flytja inn erlendan mat í stórum stíl.

Jafnframt segir í yfirlýsingunni að hafið sé yfir allan vafa að innflutningurinn mun valda íslenskum landbúnaði miklu tjóni og ógna bæði lýðheilsu og búfjárheilsu. „Viðskiptahagsmunir eru teknir fram yfir heilbrigðisrök. Búfjárheilsa er látin lönd leið og bitlausar varnir í aðgerðaáætlun landbúnaðarráðherra duga skammt. Það er þverstæða að kynna til sögunnar aðgerðaáætlun til að auka matvælaöryggi á sama tíma og innflutningur á hráu ófrosnu kjöti, eggjum og ógerilsneyddum mjólkurafurðum er heimilaður. Við eigum hreina og heilbrigða búfjárstofna og erum heppin að því leyti að matvælasýkingar eru fátíðar hérlendis. Það er beinlínis skylda okkar að viðhalda þeirri góðu stöðu.“ 

Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, formaður samtakanna, segir ákvörðun ráðherra vonbrigði. „Þessi ákvörðun ráðherra segir raunverulega að stjórnvöld hafi ekki vilja til þess að efla innlenda matvælaframleiðslu. Það er það sorglegasta í málinu.“

Hann segir jafnframt að það sé óraunhæft að ætla að 1. september næstkomandi verði öll mál komin í höfn sem talin eru upp í aðgerðaáætlun stjórnvalda. „Nú emur málið til kasta Alþingis og við getum ekki annað en treyst því að kjörnir fulltrúar þjóðarinnar standi með almannahagsmunum og komi í veg fyrir að frumvarpið fari í gegn óbreytt.“

FA fagnar frumvarpi ráðherra

Félag atvinnurekenda fagnar aftur á móti frumvarpi Kristjáns. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að með samþykki frumvarpsins ljúki loks áratugalöngum brotum íslenskra stjórnvalda á EES-samningnum. „Frumvarpið tryggir hag neytenda af auknu vöruúrvali og samkeppni, innflutningsfyrirtækja af því að tæknilegar viðskiptahindranir séu afnumdar og íslenskra matvælaútflutningsfyrirtækja, einkum á sviði sjávarafurða, af því að réttur þeirra til útflutnings til EES-ríkja án heilbrigðiseftirlits á landamærum sé áfram tryggður,“ segir í tilkynningunni.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, segir að íslensk stjórnvöld hafi ekki átt annarra kosta völ en að afnema bannið við innflutning. „Með því að fara ekki að dómum EFTA-dómstólsins og Hæstarétt væri gróflega brotið gegn réttaröryggi íslenskra fyrirtækja og gífurlegir hagsmunir íslenskra matvælaútflytjenda settir í uppnám,“ segir Ólafur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár