Íslensk stjórnvöld hafa tvo mánuði til að bregðast við niðurstöðu EFTA-dómstólsins

Ef íslensk stjórn­völd bregð­ast ekki við nið­ur­stöðu EFTA-dóm­stóls­ins, um inn­flutn­ings­tak­mark­anir á fersku kjöti til lands­ins, innan tveggja mán­aða þá getur ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, vísað mál­inu til EFTA- dóm­stóls­ins.

Íslensk stjórn­völd hafa nú tvo mán­uði til að bregð­ast við nið­ur­stöðu EFTA dóm­stóls­ins varð­andi inn­flutn­ing á fersku, kjöti, eggjum og mjólk­ur­vörum. Þetta er nið­ur­staða rök­studds álits Eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar EFTA, ESA, sem birt var í dag. Hafi íslensk stjórn­völd ekki brugð­ist við innan tveggja mán­aða getur ESA, vísað mál­inu til EFTA-dóm­stóls­ins.

Samkvæmt íslenskum lögum þurfa inn­flutn­ings­að­ilar að sækja um sér­staka heim­ild ef þeir hyggj­ast flytja inn ferskt kjöt og aðrar kjöt­vörur, hrá egg, óger­il­sneidda mjólk og mjólk­ur­vörur unnar úr óger­il­sneiddri mjólk. EFTA dóm­stóll­inn komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að slíkar inn­flutn­ings­tak­mark­anir væru brot á EES samn­ingnum í nóv­em­ber 2017.

Bann á innflutning á hrárri kjötvöru, eggjum mjólkum ekki samræmi við EES-samninginn

[links]Eft­ir­lits­stofnun EFTA hóf athugun árið 2012 á hvort að íslensk lög væru í sam­ræmi við skuld­bind­ing­ar ­rík­is­ins ­sam­kvæmt EES-­samn­ingum í kjöl­far kvört­unar frá Sam­tök­um versl­unar og þjón­ustu. Íslensk lög­­­gjöf felur í sér inn­­­flutn­ings­tak­­mark­­anir á fersku kjöti, unnu sem óunnu, kældu sem frosnu, inn­­mat og ýmsum mjólk­­ur­vör­­um. Inn­­flytj­endur verða sam­­kvæmt gild­andi lögum að sækja um leyfi og leggja fram marg­vís­­leg gögn til­ Mat­væla­stofn­un­ar. Sam­tökin töldu þetta bann ganga gegn ákvæðum EES-­­samn­ings­ins varð­andi frjálsa vöru­­flutn­inga og að eft­ir­lits­­kerfi hér á landi með inn­­­flutn­ingi á kjöti feli í sér landamæra­eft­ir­lit sem ekki sé í sam­ræmi við lög­­­gjöf EES-­­samn­ings­ins.

Málið var sent til EFTA- ­dóm­stóls­ins árið 2017 og í kjöl­farið féll dómur 14 nóv­em­ber 2017. EFTA- dóm­stól­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að að íslenska leyf­­is­veit­inga­­kerfið fyrir inn­­­flutn­ing á hrárri og unn­inni kjöt­­vöru, eggjum og mjólk sam­­rým­ist ekki ákvæðum EES-­­samn­ings­ins. Dóm­­stóll­inn telur að það sé ósam­­rým­an­­legt fimmtu grein til­­­skip­un­­ar­innar að skil­yrða inn­­­flutn­ing á slíkum vör­u­m.

Hæsti­réttur komst að sömu nið­ur­stöðu þann 11.októ­ber 2018 að íslenska ríkið hefði brotið gegn þjóð­rétt­ar­legum skuld­bind­ingum sínum sam­kvæmt EES-samn­ingnum með því að halda við lýði banni við inn­flutn­ingi á fersku kjöti hingað til lands.

Annað skref í meðferð samningabrotamála

Í dag birti síðan Eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar EFTA, ESA, rök­sutt álit um málið. Í álit­inu kemur fram að þar sem meira en fjórtán mán­uðir hafa liðið síðan dómur EFTA- dóm­stóls­ins féll og íslensk stjórn­völd hafi ekki enn brugð­ist við nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins, hefur ESA tekið ákvörðun um að taka næsta skref í með­ferð samn­inga­brota­mála en það er að senda stjórn­völdum rök­stutt álit.

Í áliti ESA kemur fram að þann 16. jan­úar 2018 sendi stofn­unin íslensku rík­is­stjórn­inni bréf þar sem óskað var eftir upp­lýs­ingum um hvernig rík­is­stjórnin ætl­aði að fylgja eftir nið­ur­stöðu EFTA- dóm­stóls­ins um að bann íslenskra stjórn­valda við inn­flutn­ingi á fersku kjöti, ferskum eggjum og vörum úr óger­il­sneyddri mjólk sam­rýmd­ist ekki EES-samn­ingnum. Rík­is­stjórnin svar­aði bréf­inu þann 19. febr­úar 2018 þar sem fram kom að íslensk stjórn­völd væru að vinna að frum­varpi um breyt­ingu á lögum um inn­flutn­ing fersk kjöts. Í bréf­inu kom einnig fram að stefnt væri að leggja fram frum­varpið fyrir þing­lok.

ESA sendi aftur bréf til rík­is­stjórn­ar­innar þann 22. mars 2018 til að fá stað­fest­ingu á áætl­unum rík­is­stjórn­ar­innar. Rík­is­stjórnin svar­aði með bréfi þann 20. apríl þar sem fram kom að unnið væri að sækja um við­bót­ar­trygg­ingar varð­andi salmon­ellu til ESA 4. júlí 2018. Þann 11. júlí sendi ESA rík­is­stjórn­inn aftur bréf þar sem ítrekað var Ísland þyrfti að bregð­ast við nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins. Rík­is­stjórnin svar­aði síðan því bréfi þann 12. októ­ber síð­ast­lið­inn þar sem fram kom að frum­varpið væri komið á þing­mála­skrá og stefnt væri að kynna frum­varpið í febr­úar 2019.

Í lok álits­ins, sem birt var í dag, kemur fram að íslensk stjórn­völd hafi haft nægan tíma til að bregð­ast við nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins og því gefi stofn­unin íslenskum stjórn­völdum tvo mán­uði til að breyta lög­unum en ann­ars getur ESA vísað mál­inu til EFTA- dóm­stóls­ins.

Unnið að aðgerðum til að minnka áhættu af inn­flutn­ing

Í svari Krist­jáns Þórs Júl­í­us­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Jóns Stein­dórs Valdi­mars­son­ar, þing­manns Við­reisnar, um hvernig rík­i­s­tjórnin hafi brugð­ist við nið­ur­stöðu EFTA-dóm­stóls­ins segir að unnið hafi verið að við­brögðum frá því að dóm­ur­inn féll í nóv­em­ber 2017. Í svar­inu kemur fram að talin hafi verið rík þörf á því að und­ir­búa ekki ein­göngu breyt­ingar á lögum til sam­ræmis við dóm EFTA-dóm­stóls­ins, heldur hafi stjórn­völd viljað tryggja að gripið sé til aðgerða þannig að breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi inn­flutn­ings­eft­ir­lits leiði ekki til auk­innar áhættu fyrir menn og dýr.

Því hafi sam­hliða und­ir­bún­ingi á frum­varpi til breyt­inga á lögum um inn­flutn­ing á kjöti, verið unnið að aðgerðum til að koma í veg fyrir að breytt fyr­ir­komu­lag inn­flutn­ings leiði af sér áhættu gagn­vart heilsu manna og dýra. Ráðu­neytið og Mat­væla­stofnun hafi unnið að þessum und­ir­bún­ingi frá því dómur féll. Meðal þess sem gert hefur verið er að sækja um við­bót­ar­trygg­ingar varð­andi salmon­ellu til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA 4. júlí 2018. Hinn 16. jan­úar síð­ast­lið­inn var þessi umsókn íslenskra stjórn­valda síðan sam­þykkt og er stjórn­völdum þar af leið­andi heim­ilt að setja sér­stakar við­bót­ar­trygg­ingar vegna salmon­ellu í kjúklinga­kjöti, hænu­eggjum og í kalkúna­kjöti. Jafn­framt hefur verið unnið að aðgerðum til að tak­marka hættu vegna kampýló­bakter, sýkla­lyfja­ó­næmis. Í svar­inu segir að í þeirri vinnu hafi verið leitað til erlendra sér­fræð­inga á sviði mat­væla­ör­yggis. Auk þessa hafa íslensk stjórn­völd átt fundi með full­trúum fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins og Eft­ir­lits­stofnun EFTA um dóm EFTA-dóm­stóls­ins og áhrif þess hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár