Málaferli vegna synjunar á innflutningi fersks kjöts hafa kostað ríkið 47 milljónir

Kostn­aður íslenska rík­is­ins vegna tveggja mála­ferla um synjun á heim­ildum til inn­flutn­ings á fersku kjöti er í heild 47 millj­ónir króna. Mat­væla­stofnun hefur einu sinni hafnað umsókn um inn­flutn­ing kjöts eftir að dómur Hæsta­réttar féll í fyrra.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Mála­ferli vegna synj­unar á heim­ildum til inn­flutn­ings á fersku kjöti hafa kostað íslenska ríkið sam­tals um 47 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í svari Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Jóns Stein­dórs Valdi­mars­sonar, þing­manns Við­reisnar um kostnað vegna banns á inn­flutn­ingi á fersku kjöti.

Tvö mál vegna innflutnings á fersku kjöti

[links]Alls hafa tvö mál verið rekin vegna ákvæða íslenskra laga og reglan um inn­flutn­ing á fersku kjöti. Í fyrra mál­inu hóf Eft­ir­lits­stofnun EFTA athugun árið 2012 á sam­ræmi íslenskra laga við skuld­bind­ingar rík­is­ins sam­kvæmt EES-samn­ingum í kjöl­far kvört­unar frá Samtökum versl­unar og þjón­ustu. Íslensk lög­gjöf felur í sér inn­flutn­ings­tak­mark­anir á fersku kjöti, unnu sem óunnu, kældu sem frosnu, inn­mat og ýmsum mjólk­ur­vör­um. Inn­flytj­endur verða sam­kvæmt gild­andi lögum að sækja um leyfi og leggja fram marg­vís­leg gögn til Mat­væla­stofn­unar. Samtökin töldu þetta bann ganga gegn ákvæðum EES-­samn­ings­ins varð­andi frjálsa vöru­flutn­inga og að eft­ir­lits­kerfi hér á landi með inn­flutn­ingi á kjöti feli í sér landamæra­eft­ir­lit sem ekki sé í sam­ræmi við lög­gjöf EES-­samn­ings­ins.

Málið var sent til EFTA- dóm­stóls­ins árið 2017 og í kjöl­farið féll dómur 14 nóv­em­ber 2017. EFTA- dóm­stól­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að að íslenska leyf­is­veit­inga­kerfið fyrir inn­flutn­ing á hrárri og unn­inni kjöt­vöru, eggjum og mjólk sam­rým­ist ekki ákvæðum EES-­samn­ings­ins. Dóm­stóll­inn telur að það sé ósam­rým­an­legt fimmtu grein til­skip­un­ar­innar að skil­yrða inn­flutn­ing á slíkum vör­u­m. Kostn­aður íslenska rík­is­ins vegna máls­ins var í heild tæp­lega 36 millj­ónir eða 35.974.169.

Í seinna mál­inu stefndi fyr­ir­tækið Ferskar kjöt­vörur ehf. íslenska rík­inu þann 25. apríl 2014 til greiðslu vegna skaða­bóta vegna synjar á inn­flutn­ingi ófrysts kjöt. Málinu lauk með dómi Hæsta­réttar 11. októ­ber 2019, þar sem Hæsti­réttur tók undir með mála­til­bún­aði fyr­ir­tæk­is­ins um að sú synjun hefði farið gegn skuld­bind­ingum íslenska rík­is­ins sam­kvæmt EES-samn­ingnum sem leiddi til bóta­skyldu rík­is­ins gagn­vart fyr­ir­tæk­inu. Bæturnar námi and­virði kjöts­ins og flutn­ings­kostn­aði og þá var ríkið dæmt til að greiða fyr­ir­tæk­inu máls­kostnað á báðum dóm­stigum. Mála­ferlin kost­aði því íslenska ríkið að skaða­bótum með­töldum, 11.059.832.

Samtals er því kostn­aður rík­is­ins vegna mála­ferl­anna tveggja í heild rúmar 47 millj­ónir.

Matvælastofnun hefur einu sinni hafnað umsókn um innflutning kjöts eftir að dómur Hæstaréttar féll í fyrra

Enn fremur spyr Jón Steindór spyr ráð­herra hvert áætlað verð­mæti þeirra kjöt­vara sem synjað hefur verið eftir komu til lands­ins, þrátt fyrir að kröfur um dýra­heil­brigð­is­eft­ir­lit á send­ing­ar­stað hafi verið upp­fylltar og í and­stöðu við nið­ur­stöður Hæsta­réttar í fyrra. Í svari sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra segir að mat­væla­stofnun hafi hafnað einni umsókn um inn­flutn­ing kjöt eftir að dómur Hæsta­réttar féll. Sú send­ing inni­hélt 226,5 kíló af ófrystu nauta­kjöti eða verð­mæti 487.055 krónur.

Unnið að aðgerðum til að minnka áhættu af innflutning

Eftir nið­ur­stöðu EFTA- dóm­stóls­ins í nóv­em­ber 2017 hefur atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið unnið að frum­varpi til breyt­inga á lögum um inn­flutn­ing fersks kjöts. Samhliða því segir Kristján Þór, í svari sínu, að unnið hafi verið að aðgerðum í sam­starfi við Mat­væla­stofnun til að koma í veg fyrir breytt fyr­ir­komu­lag inn­flutn­ings leiði af sér áhættu gagn­vart heilsu manna og dýra.

Meðal þess sem gert hefur verið ráðu­neytið hefur sótt um við­bót­ar­trygg­ingar varð­andi salmon­ellu til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA 4. júlí 2018. Hinn 16. jan­úar síð­ast­lið­inn var þessi umsókn íslenskra stjórn­valda sam­þykkt og er stjórn­völdum þar af leið­andi heim­ilt að setja sér­stakar við­bót­ar­trygg­ingar vegna salmon­ellu í kjúklinga­kjöti, hænu­eggjum og í kalkúna­kjöti. Jafn­framt hafi verið unnið að aðgerðum til að tak­marka hættu vegna kampýló­bakter, sýkla­lyfja­ó­næmis o.fl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár