Innflutningsbann á fersku kjöti fer fyrir EFTA dómstólinn

ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, hefur ákveðið að vísa tveimur málum gegn Íslandi til EFTA dóm­stóls­ins. Málin varða inn­flutn­ings­tak­mark­anir á ferskum kjöt­vörum og vörum úr eggjum og mjólk frá öðrum EES ríkjum til Íslands.

ESA segir að inn­flutn­ings­tak­mark­anir á Íslandi leiði af sér ónauð­syn­legar og ástæðu­lausar við­skipta­hindr­anir. „Þetta snýr að aðgengi að innri mark­aðnum og grunn­reglum um gagn­kvæmni í við­skiptum. Senni­lega þætti ýmsum súrt í broti ef önnur EES-ríki beittu við­líka við­skipta­hindr­unum gagn­vart inn­flutn­ingi íslenskrar mat­vöru sem sætir heil­brigð­is­eft­ir­liti á Íslandi,“ segir Helga Jóns­dóttir, stjórn­ar­maður hjá ESA, í til­kynn­ingu til fjöl­miðla.

Aðal­mark­mið reglna um flutn­ing mat­vöru á EES svæð­inu sé að stuðla að og bæta heil­brigð­is­eft­ir­lit í upp­runa­landi vöru til að tryggja öryggi bæði manna og dýra, en á sama tíma sé eft­ir­lit á við­töku­stað minnkað til að auka skil­virkni og auð­velda við­skipti.

Íslensk lög­gjöf er nú þannig að sækja þarf um leyfi fyrir inn­flutn­ingi á kjöt­vörum, vörum úr hráum eggjum og óger­il­sneyddri mjólk. Þá ber inn­flytj­endum að fram­vísa gögnum sem sýna m.a. fram á að ferskt kjöt og aðrar kjöt­vörur hafi verið geymdar í frysti við -18°C í 30 daga áður en heim­ilt er að selja vör­una. Lög­gjöf­inni fylgir umfangs­mikið eft­ir­lit og krafa er gerð um að inn­flytj­endur leggi fram marg­vís­leg gögn til Mat­væla­stofn­unar, sem gengur þvert á mark­mið EES regl­anna.

Vísun máls til EFTA-dóm­stóls­ins er loka­skrefið í form­legu samn­ings­brota­máli ESA á hendur EFTA-ríki. Áður hafa íslensk stjórn­völd verið upp­lýst um afstöðu stofn­un­ar­innar og veittur kostur á að koma rök­semdum sínum á fram­færi sem og að ljúka mál­inu með því að inn­leiða við­eig­andi lög­gjöf innan gild­andi tíma­marka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár